Norðurrín-Vestfalía

eitt af 16 sambandslöndum Þýskalands

Norðurrín-Vestfalía (þýska: Nordrhein-Westfalen) er fjórða stærsta sambandsland Þýskalands með rúmlega 34 þús km². Það er hins vegar fjölmennasta sambandslandið með 17,9 milljónir íbúa (2018). Ástæðan fyrir því er Ruhrhéraðið, en það er þéttbýlasta svæði Þýskalands og fjórða þéttbýlasta (eða fjölmennasta) svæði Evrópu. Norðurrín-Vestfalía liggur norðarlega í vesturhluta Þýskalands. Fyrir norðan er Neðra-Saxland, fyrir suðaustan er Hessen og fyrir sunnan er Rínarland-Pfalz. Auk þess er Holland fyrir vestan og Belgía fyrir suðvestan. Norðurrín-Vestfalía nær ekki að sjó. Hins vegar eru nokkrar hafnir þar, því stórfljótið Rín rennur í gegnum landið frá suðri til norðurs. Höfuðborgin er Düsseldorf.

Fáni Norðurrín-VestfalíuSkjaldarmerki Norðurrín-Vestfalíu
Flagge von Hessen
Flagge von Hessen
Landeswappen Hessens
Upplýsingar
Höfuðstaður:Düsseldorf
Stofnun:23. ágúst 1946
Flatarmál:34.110,26 km²
Mannfjöldi:17.900.000 (2018)
Þéttleiki byggðar:516/km²
Vefsíða:nrw.de
Stjórnarfar
Forsætisráðherra:Hendrik Wüst (CDU)
Lega

Fáni og skjaldarmerki

Fáni Norðurrín-Vestfalíu samanstendur af þremur láréttum röndum, grænni, hvítri og rauðri. Græni og hvíti liturinn eru frá héraðinu Rínarlandi, en litir Vestfalíu voru áður fyrr hvítur og rauður. Þegar þessi héröð voru sameinuð 1946 voru litirnir einnig sameinaðir í þessu nýja flaggi.

Skjaldarmerkið samanstendur sömuleiðis af litunum grænum, hvítum og rauðum. Auk þess er hvíta áin til vinstri tákn Rínarlands og merkir Rínarfljót. Til hægri er hvíti hestur Vestfalíu, sem minnir á hina fornu saxa sem þar bjuggu áður fyrr. Neðst er rauð og gul rós sem er tákn héraðsins Lippe, en það hérað var sameinað Norðurrín-Vestfalíu 1947.

Orðsifjar

Nordrhein er einungis norðurhluti Rínarlands sem teygir sig eftir endilangri ánni. Vestfalía (Westfalen) er hins vegar gamalt héraðsnafn síðan á dögum Hinriks ljóns á 12. öld. Sennilegt þykir að endingin -falen sé dregin af gömlum germönskum þjóðflokki [1]

Söguágrip

Fyrir heimstyrjöldina síðari var hér um þrjú héröð að ræða: Rheinland (með Ruhrhéraðinu), hið gamla konungsríki Westfalen og loks hið sjálfstæða hérað Lippe. Í stríðslok hertóku Bretar öll þessi héruð. Ári síðar klufu Bretar Rínarlandið í tvö lönd og sameinuðu norðurhluta þess Vestfalíu. Þar með varð til nýtt hérað, Norðurrín-Vestfalía, með Düsseldorf að höfuðborg. Suðurhluti Rínarlands var hins vegar sameinaður héraðinu Pfalz í annað hérað. 1947 var héraðið Lippe sameinað Norðurrín-Vestfalíu. 1949 var sambandsríki Þýskalands stofnað og varð Norðurrín-Vestfalía þá að sambandslandi.

Borgir

Í Norðurrín-Vestfalíu eru fleiri stórborgir en í nokkru öðru sambandslandi Þýskalands, enda er það langfjölmennast. Flestar eru borgirnar í Ruhrhéraðinu. Rín-Ruhr-stórborgarsvæðið telur um 11 milljónir. Stærstu borgirnar:

(2018)

RöðBorgÍbúarAth.
1Köln1100 þúsundFjórða stærsta borg Þýskalands
2Düsseldorf620 þúsundHöfuðborg Norðurrín-Vestfalíu
3Dortmund604 þúsund
4Essen584 þúsund
5Duisburg500 þúsund
6Bochum365 þúsund
7Wuppertal354 þúsund
8Bielefeld333 þúsund
9Bonn327 þúsundFyrrverandi höfuðborg Vestur-Þýskalands
10Münster300 þúsund
11Gelsenkirchen260 þúsund
12Mönchengladbach260 þúsund
13Aachen242 þúsundGamla keisaraborgin
14Krefeld222 þúsund
15Oberhausen211 þúsund
16Hagen186 þúsund
17Hamm176 þúsund
18Mülheim an der Ruhr167 þúsund
19Leverkusen164 þúsund
20Solingen156 þúsund
21Herne154 þúsund
22Neuss154 þúsund
23Paderborn144 þúsund

Tilvísanir

Heimildir

Fyrirmynd greinarinnar var „Nordrhein-Westfalen“ á þýsku útgáfu Wikipedia. Sótt apríl 2010.