Sinfónía

Sinfónía er kaflaskipt tónlistarform. Orðið sinfónía er tekið úr grísku og beinþýðist „samhljómur“, stundum eru sinfóníur kallaðar hljómkviður, sem er íslensk þýðing sem ekki hefur náð fótfestu.

Sinfóníuhljómsveitin í Salford, Englandi.

Saga sinfóníunnar

Sinfóníur voru upphaflega forleikir, bakgrunnstónlist eða millispil. Þær voru hlutar í stærri verkum, spilaðar af tiltölulega litlum hljómsveitum og einnig var orðið sjálft notað sem samheiti yfir alls kyns tónlist. Á 18. öld varð formið smám saman fastmótaðra og loks varð fjögurra kafla sónötuform orðið partur af skilgreiningunni á sinfóníu. Við lok 18. aldar tóku hljómsveitirnar að stækka og fleiri hljóðfæri að bætast við, þessi þróun hélt áfram allt til loka Síðrómantíska tímabilsins, en þá náði hún hámarki í risavöxnum sinfóníum Mahlers þar sem formið er teygt út yfir ystu mörk og flytjendurnir skiptu hundruðum.

Valin verk

Barrokk tímabilið

  • vantar verk

Klassíska tímabilið

Rómantíska tímabilið: