Skógur

Skógur er vistkerfi með ríkjandi trjágróðri sem þekur að minnsta kosti 1 hektara og að þekju-hlutfall fullorðinna trjáa sem eru að minnsta kosti 2 metra há sé um og yfir 10%. Séu trén lægri en 2 metrar að hæð kallast þau kjarr. Þetta er skilgreining skógasviðs FAO[1] að öðru leyti en því að þar er gert ráð fyrir að hæð fullorðinna trjáa sé 5 metrar. Skógar hafa mikil áhrif á umhverfi sitt og skapa meðal annars kyrrara loftslag og svokallað nærloftslag (enska: microclimate). Auk þess bindur skógurinn loftraka, mengunarefni og rykagnir úr loftinu, temprar vatnsrennsli á leið til sjávar, dregur úr hávaða í þéttbýli og skapar verðmætar auðlindir sem eru óþrjótandi ef þær eru nýttar með sjálfbærum hætti.

Útbreiðsla skóga um heiminn.
Handewitter-skógur í Norður-Þýskalandi.

Ísland

Um 2% landsins eru vaxin skógi og kjarri. Birkiskógar telja þar mest en ræktaðir skógar með barrtrjám eru um fjórðungur af heildartölunni. Sitkagreni, stafafura og rússalerki hafa þrifist best. Þau eru meðal trjáa sem hafa náð yfir 20 metra hæð og er sitkagreni um 30 metrar hæst. [2]

Orð tengd skógi

  • hlíðþang - er forn kenning í skáldamáli og þýðir skógur.
  • holt - þýddi í fornu máli skógur, sbr: sjá í gegnum holt og hæðir. Holtriði var orð haft um þann sem bjó í skógi.
  • lundur - þýðir skógarlundur eða trjáþyrping.
  • myrkviður - er myrkur margslunginn skógur.
  • mörk - þýðir skógur, sbr.: dýr merkurinnar og Þórsmörk.

Eitt og annað

  • Fyrsta bókin sem kom út um skógrækt á Íslandi hét: Skógurinn og æskulýðurinn (norska: Skogen for de unge) og kom út árið 1938. Hún var eftir hinn norska Chr. Gjerlöff, sem var rithöfundur og skipulagsfræðingur. [3] [4]

Tengt efni

Tilvísanir

Tenglar

Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu
  Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.