Tina Turner

bandarísk söngkona (1939-2023)

Tina Turner (fædd Anna Mae Bullock; 26. nóvember 1939 – 24. maí 2023) var bandarísk söngkona, lagahöfundur og leikkona, sem oft hefur verið nefnd „drottning rokksins“. Hún náði fyrst frægð sem hluti af Ike & Tina Turner Revue áður en hún hóf vel heppnaðan sólóferil.

Tina Turner
Turner árið 1970
Fædd
Anna Mae Bullock

26. nóvember 1939(1939-11-26)
Brownsville, Tennessee, BNA
Dáin24. maí 2023 (83 ára)
Küsnacht, Sviss
Ríkisfang
  • Bandaríkin (til 2013)
  • Sviss (frá 2013)
Störf
  • Söngvari
  • dansari
  • leikari
  • rithöfundur
Ár virk1957–2023
Maki
  • Ike Turner (g. 1962; sk. 1978)
  • Erwin Bach (g. 2013)
Börn4
Tónlistarferill
Stefnur
HljóðfæriRödd
Útgefandi
Vefsíðatinaturnerofficial.com
Undirskrift
Tina Turner á hálfrar aldar afmælistónleikaröð árið 2009

Tina Turner hóf söngferilinn með hljómsveit Ikes Turner, Kings of Rhythm, árið 1957. Hún söng með þeim lagið „Boxtop“ sem „Little Ann“. Árið 1960 var hún kynnt sem Tina Turner þegar smellurinn „A Fool in Love“ kom út. Ike & Tina Turner urðu einn af frægustu tónleikadúettum sögunnar.[1] Þau gerðu fjölda vinsælla laga á borð við „It's Gonna Work Out Fine“, „River Deep – Mountain High“, „Proud Mary“ og „Nutbush City Limits“. Þau hættu samstarfinu árið 1976.

Á 9. áratugnum hleypti Tina Turner af stokkunum einni best heppnuðu endurkomu tónlistarsögunnar.[2] Árið 1984 gaf hún út metsöluplötuna Private Dancer með smellinum „What's Love Got to Do with It“ sem hlaut Grammýverðlaun sem plata ársins og varð fyrsta og eina lag hennar sem náði 1. sæti á Billboard-listanum. Hún var 44 ára gömul og elsta sólótónlistarkona sem hafði náð í efsta sæti listans.[3] Velgengni hennar hélt áfram með lögunum „Better Be Good to Me“, „Private Dancer“, „We Don't Need Another Hero“, „Typical Male“, „The Best“, „I Don't Wanna Fight“ og „Goldeneye“. Árið 1988 hélt hún í tónleikaferðina Break Every Rule World Tour og setti heimsmet í aðsókn á tónleika með sólótónlistarmanni (180.000 áhorfendur).[4] Hún lék í kvikmyndunum Tommy (1975), Mad Max Beyond Thunderdome (1985) og Last Action Hero (1993). Árið 1993 kom ævisögulega kvikmyndin What's Love Got to Do with It sem byggðist á ævisögu hennar, I, Tina: My Life Story út. Árið 2009 dró hún sig í hlé eftir tónleikaröðina Tina!: 50th Anniversary Tour sem er 15. söluhæsta tónleikaröð 21. aldar. Árið 2018 var söngvamyndin Tina gerð um hana.

Tina Turner seldi yfir 100 milljón plötur um allan heim. Hún var einn af söluhæstu tónlistarmönnum allra tíma. Hún hlaut 12 sinnum Grammýverðlaun, þar á meðal átta samkeppnisverðlaun, þrjú heiðursverðlaun og Grammy Lifetime Achievement Award. Hún var fyrsti svarti listamaðurinn og fyrsta konan sem birtist á forsíðu tímaritsins Rolling Stone. Tímaritið setti hana á lista yfir 100 mestu tónlistarmenn allra tíma og 100 mestu söngvara allra tíma.[5]

Hún á stjörnu á Hollywood Walk of Fame og St. Louis Walk of Fame og var tvisvar tekin inn í Frægðarhöll rokksins, fyrst með Ike Turner árið 1991 og sem sólólistakona árið 2021.[6] Hún fékk heiðursverðlaun Kennedy Center og Women of the Year-verðlaunin.[7]

Tilvísanir

  Þessi tónlistargrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.