Andrés Iniesta

spænskur knattspyrnumaður

Andrés Iniesta Lujan (fæddur 11. maí 1984) er spænskur knattspyrnumaður sem spilar fyrir katarska liðið Emirates Club Hann spilaði lengst af sem miðjumaður fyrir FC Barcelona og landslið Spánar.

Andrés Iniesta
Upplýsingar
Fullt nafnAndrés Iniesta Luján
Fæðingardagur11. maí 1984 (1984-05-11) (39 ára)
Fæðingarstaður   Fuentealbilla, Spánn
Hæð1,70 m[1]
LeikstaðaMiðjumaður
Núverandi lið
Núverandi liðEmirates Club
Númer8
Yngriflokkaferill
1994–1996
1996–2001
Albacete
Barcelona
Meistaraflokksferill1
ÁrLiðLeikir (mörk)
2001–2003Barcelona B54 (5)
2002–2018Barcelona442 (35)
2018-2023Vissel Kobe114 (21)
2023-Emirates Club0 (0)
Landsliðsferill
2000–2001
2000–2001
2001–2002
2001–2002
2001–2002
2003–2004
2003–2006
2006–2018
2004–2005
Spánn U15
Spánn U16
Spánn U17
Spánn U18
Spánn U19
Spánn U20
SpánnU21
Spánn
Katalónía
2 (0)
7 (1)
4 (0)
1 (0)
7 (1)
7 (3)
18 (6)
131 (13)
2 (0)

1 Leikir með meistaraflokkum og mörk
talið í aðaldeild liðsins og
síðast uppfært júlí 2023.

Uppeldisfélag hans er akademía Barcelona La Masia. Árið 2002 lék hann fyrsta leik sinn með aðalliðinu, 18 ára að aldri. Iniesta spilaði reglulega með liðinu frá 2004.

Hann spilaði fyrir unglingalandslið Spánar undir 16 ára, undir 19 ára og undir 21 árs, áður en hann lék sinn fyrsta leik með A-landsliðinu 2006. Hann var valinn á heimsmeistaramótið 2006 og 2010 sem og árin 2014 og 2018. Á heimsmeistaramótinu 2010 var hann valinn maður leiksins í úrslitaleik landsliðsins gegn Hollandi og skoraði hann sigurmarkið.

Árið 2018 ákvað Iniesta að kveðja Barcelona eftir 22 ár hjá félaginu. Hann hefur unnið 34 titla á leikferli sínum.

Tilvísanir