Dharma
Dharma (á sanskrít: धर्म) eða Dhamma (á palí: धम्म) er trúarlegt og heimspekilegt hugtak í flestum trúarbrögðum af indverskum uppruna svo sem hindúisma, búddisma og jaínisma. Hugtakið hefur þó mismunandi þýðingu í hinum ýmsu trúarhefðum.
Orðið er upprunnið úr indóevrópsku rótinni dher- sem þýddi að halda fast í eða styðja. Það er meðal annars sama rót í gríska orðinu þronos sem varð throne (hásæti) á ensku.[1]
Í hindúisma er ætíð notað sanskrítarorðið dharma (eða á hindí, eintala daruma, fleirtala darm). Þar er hugtakið notað um:
- grundvallarlögmál allra hluta, veraldlegra sem andlegra
- félagslegar og siðferðilegar reglur þjóðfélagsins, þar á meðal stéttaskipting, andlegt og veraldlegt réttarfar.
- hegðun og skyldur einstaklingsins gagnvart þjóðfélaginu
Búddistar í suður og suðaustur Asíu nota ætíð palíorðið dhamma, búddistar annars staðar nota dharma. Í búddisma er hugtakið notað yfir:
- kenningar Búdda um eðli tilverunnar og leiðina úr þjáningu lífsins
- grunneiningar hins áþreifanlega heims
Neðanmálsgreinar
Heimildir
- Coogan, Michael D. (ritstj.), The Illustrated Guide to World Religions (Oxford: Oxford University Press, 2003). ISBN 1-84483-125-6.
🔥 Top keywords: ForsíðaKerfissíða:Nýlegar breytingarKerfissíða:LeitCarles PuigdemontLandsbankinnForsetakosningar á Íslandi 2024Listi yfir íslensk póstnúmerHalla Hrund LogadóttirMarie AntoinetteFiann PaulListi yfir skammstafanir í íslenskuÍslandsbankiListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaSeinni heimsstyrjöldinListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaSumardagurinn fyrstiListi yfir íslensk mannanöfnÍslandIsland.isBaldur ÞórhallssonBørsenJón GnarrAlþingiHalla TómasdóttirForsetakosningar á Íslandi 2016Alþingiskosningar 2021Hjálp:EfnisyfirlitBjarni Benediktsson (f. 1970)Wikipedia:Um verkefniðKatrín JakobsdóttirÓlafur Ragnar GrímssonHáskóli ÍslandsBrúðkaupsafmæliForseti ÍslandsVigdís FinnbogadóttirGylfi Þór SigurðssonÓlafur Darri ÓlafssonReykjavíkWikipedia:Samfélagsgátt