Cambridge-háskóli

Háskóli í Cambridge á Englandi

Cambridge-háskóli (enska University of Cambridge eða Cambridge University) er enskur háskóli í bænum Cambridge á Englandi. Hann er næstelsti háskólinn í enskumælandi landi og er af mörgum talinn annar af tveimur bestu háskólum Bretlands (ásamt Oxford-háskóla) og einn besti háskóli í heimi.

Clare College og King's Chapel í Cambridge.

Gamlar heimildir benda til þess að skólinn hafi verið stofnaður af óánægðum fræðimönnum frá Oxford, sennilega árið 1209, í kjölfarið á uppþoti og óeirðum í Oxford þar sem til átaka kom milli háskólamanna og nemenda annars vegar og þorpsbúa hins vegar.

Háskólarnir í Oxford og Cambridge eru oft nefndir einu nafni Oxbridge.

Í skólanum eru á 26. þúsund nemendur, þar af rúmlega 16. þúsund grunnnemar og tæplega 10 þúsund framhaldsnemar. Einkunnarorð skólans eru: Hinc lucem et pocula sacra, sem þýðir (bókstaflega) „Héðan kemur ljós og helgir teygar“ eða (ekki bókstaflega) „Héðan þiggjum við upplýsingu og verðmæta þekkingu“.

Skólar innan skólans

Innan háskólans eru 31 smærri skóli (e. college) sem er að einhverju leyti sjálfstæð stjórnsýslueining en að einhverju leyti lúta þeir sameiginlegri yfirstjórn háskólans.

LitirSkóliStofnaðurGrunnemarFramhaldsnemarHeimasíða
           
Christ's College150539595Heimasíða
               
Churchill College1960482210Heimasíða
           
Clare College1326400180Heimasíða
               
Clare Hall1965Engir135Heimasíða
           
Corpus Christi College1352250210Heimasíða
               
Darwin College1964Engir570Heimasíða
         
Downing College1800409292Heimasíða
           
Emmanuel College158449498Heimasíða
           
Fitzwilliam College1966474180Heimasíða
               
Girton College1869503201Heimasíða
    
Gonville and Caius College1348468291Heimasíða
           
Homerton College1976550500Heimasíða
       
Hughes Hall188539314Heimasíða
   
Jesus College1496503237Heimasíða
           
King's College1441397239Heimasíða
                  
Lucy Cavendish College1965106*†116*Heimasíða Geymt 25 mars 2008 í Wayback Machine
           
Magdalene College1428335169Heimasíða
               
New Hall1954377*74*Heimasíða Geymt 3 ágúst 2019 í Wayback Machine
           
Newnham College1871396*120*Heimasíða
           
Pembroke College1347420194Heimasíða
    
Peterhouse1284270125Heimasíða
           
Queens' College1448490270Heimasíða
         
Robinson College1977385105Heimasíða
           
St Catharine's College1473436165Heimasíða
                 
St Edmund's College1896100200Heimasíða
               
St John's College1511570340Heimasíða
               
Selwyn College1882360140Heimasíða
  
Sidney Sussex College1596338181Heimasíða
           
Trinity College1546656380Heimasíða
           
Trinity Hall1350364241Heimasíða
               
Wolfson College196590510Heimasíða

Markverðir nemendur og kennarar