Forseti Þýskalands

Forseti Þýskalands (þýska: Bundespräsident) er þjóðhöfðingi þýska sambandsríkisins. Líkt og í mörgum öðrum þingræðisríkjum er forseti Þýskalands fremur valdalítill, en telst þó æðsti embættismaður þjóðarinnar. Forsetakjör í Þýskalandi fer fram á sérstökum kjörmannafundi sem skipaður er þingmönnum Sambandsþingsins og jafn mörgum fulltrúum kosnum af þingum sambandslandanna sextán.Núverandi forseti Þýskalands er Frank-Walter Steinmeier og er hann sá 12. í röðinni frá stofnun Sambandlýðveldisins árið 1949.

Skjaldarmerki Þýskalandsforseta

Á tíma Weimar-lýðveldisins og Þýskalands nasismans hét forsetaembættið formlega ríkisforseti (þýska: Reichspräsident).

Forsetar Þýskalands frá stofnun sambandslýðveldisins

ForsetiEmbættistímiStjórnmálaflokkur
Theodor Heuss1949-1959FDP
Heinrich Lübke1959-1969CDU
Gustav Heinemann1969-1974SPD
Walter Scheel1974-1979FDP
Karl Carstens1979-1984CDU
Richard von Weizsäcker1984-1994CDU
Roman Herzog1994-1999CDU
Johannes Rau1999-2004SPD
Horst Köhler2004-2010CDU
Christian Wulff2010-2012CDU
Joachim Gauck2012-2017-
Frank-Walter Steinmeier2017-SPD

Tengt efni