Jürgen Klinsmann

Jürgen Klinsmann (30. júlí 1964 í Göppingen) er þýskur knattspyrnumaður og þjálfari. Hann er núverandi þjálfari Suður-Kóreu. Klinsmann lék með fjölmörgum liðum í ýmsum löndum og var ávallt framherji og mikill markaskorari. Eftir að hann hætti knattspyrnuiðkun sneri hann sér að þjálfun. Hann þjálfaði þýska landsliðið í tvö ár og Bayern München í eitt ár.

Jürgen Klinsmann
Klinsmann að sleppa í gegn í leik gegn Dynamo Dresden 1989

Leikferill

Jürgen Klinsmann fæddist í Göppingen í Suður-Þýskalandi 1964 og byrjaði að æfa með bæjarfélaginu níu ára gamall. Þegar hann var 16 ára flutti fjölskylda hans til Stuttgart, þar sem faðir hans opnaði bakarí. Klinsmann sjálfur lærði bakaraiðn á þessum árum. Árið 1979 bauð félagið Stuttgarter Kickers honum samning, en það var ekki fyrr en tveimur árum seinna sem hann gerðist atvinnumaður hjá því. Þá var hann 18 ára og spilaði með landsliði U-16. 1984 skipti hann yfir í VfB Stuttgart. Með því félagi náði hann miklum árangri sem markaskorari. Í 156 leikjum með félaginu skoraði hann 79 mörk, eða hér um bil eitt mark í öðrum hverjum leik að jafnaði. Samhliða því spilaði hann með landsliði U-21 og Ólympíuliði Þýskalands og var svo valinn í aðallandslið Þýskalands 1987. Með því lék hann 108 leiki og skoraði alls 47 mörk. Hann er þar með þriðji markahæsti markaskorari landsliðsins, ásamt Rudi Völler. Klinsmann varð heimsmeistari 1990 í HM á Ítalíu. Frá München fór Klinsmann til Ítalíu og spilaði með Inter Milan. Hann spilaði næstu árin með ýmsum þekktum félögum víða um Evrópu, svo sem AS Monaco, Tottenham, Bayern München og Sampdoria Genua. Árið 2003 flutti Klinsmann til Kaliforníu og spilaði eitt keppnistímabil með Orange County Blue Star, reyndar aðeins átta leiki. 2004 lagði hann skóna á hilluna, en tók þá við þjálfarastöðu þýska landsliðsins. 2008 tók Klinsmann við Bayern München, en var rekinn í apríl 2009.

Félög Klinsmann sem leikmaður

FélagÁrLeikirMörk
Stuttgarter Kickers1981-19844122
VfB Stuttgart1984-198915679
Inter Milan1989-19929534
AS Monaco1992-19946529
Tottenham Hotspur1994-19954121
Bayern München1995-19976531
Sampdoria Genua199782
Tottenham Hotspur1998159
Orange County Blue Star2003-200485

Stórmót

MótStaðurÁrangurAth.
OL 1988Seoul3. sætiLeikmaður
HM 1990ÞýskalandMeistariLeikmaður
EM 1992Svíþjóð2. sætiLeikmaður
HM 1994Bandaríkin8. liða úrslitLeikmaður
EM 1996EnglandMeistariLeikmaður
HM 1998Frakkland8. liða úrslitLeikmaður
HM 2006Þýskaland3. sætiÞjálfari

Félög sem þjálfari

FélagÁr
Þýska landsliðið2004-2006
Bayern München2008-2009
Bandaríska landsliðið2011-2016
Hertha Berlin2019-2020
Suður-kóreska karlalandsliðið í knattspyrnu2023-

Annað markvert

Klinsmann hefur tvisvar verið kjörinn knattspyrnumaður ársins í Þýskalandi (1988 og 1994) og einu sinni í Englandi (1995). Hann var einnig valinn markahrókur heims 1995.

Jürgen Klinsmann á sitt eigið fyrirtæki, Business Development, sem hann rekur í Bandaríkjunum. Auk þess er gamla fjölskyldubakaríið enn starfrækt í Stuttgart. Klinsmann er kvæntur bandarískri konu, Debbie Chin, og eiga þau tvö börn. Sonur þeirra Jonathan Klinsmann spilar sem markvörður fyrir þýska Bundesliga liðið Hertha Berlin.

Heimildir