Kristen Bell

bandarísk leikkona

Kristen Anne Bell (f. 18. júlí 1980) er bandarísk leikkona. Árið 2001 kom hún fyrst fram á Broadway sem Becky Thatcher í Ævintýrum Tom Sawyer. Eftir að hafa flutt til Los Angeles landaði Bell fjölmörgum gestahlutverkum í sjónvarpsþáttum og litlum kvikmyndum áður en hún lék aðalhlutverkið í kvikmyndinni Spartan. Fyrsta kvikmyndahlutverk hennar var pínulítið hlutverk í Polish Wedding. Hún hlaut frægð og frama fyrir að fara með titilhlutverkið í sjónvarpsþáttaröðinni Veronica Mars sem voru sýndir á árunum 2004-2007.

Kristen Bell
Bell árið 2012
Bell árið 2012
Upplýsingar
FæddKristen Anne Bell
18. júlí 1980
Huntington Woods, Michigan
Ár virk1998 -

Á meðan hún lék í Veronicu Mars lék Bell Mary Lane í kvikmyndinni Reefer Madness: The Movie Musical, en það var endurtekning á hlutverki sem hún hafði leikið í leikhúsuppfærslu í New York. Árið 2007 gekk hún til liðs við leikaralið Heroes þar sem hún fór með hlutverk Elle Bishop, og Gossip Girl þar sem hún er sögumaður. Árið 2008 lék hún Söruh Marshall í gamanmyndinni Forgetting Sarah Marshall. Síðan þá hefur hún leikið í fjölmörgum gamanmyndum, þ.á m. Fanboys, Couples Retreat og When in Rome. Bell hefur fengið Satellite- og Saturn-verðlaun, og tilnefnd nokkrum sinnum til Television Critics Association-verðlauna og Teen Choice-verðlauna.

Kvikmyndir

! ÁrMyndHlutverkAthugasemdir
1998Polish Weddingtáningsstúlka
2001Pootie Tangdóttir plötuútgefanda
2002The Cat ReturnsHiromi
People are DeadFriend of Angela Bettis/Herself
2003The ShieldJessica Hintel
American DreamsAmy Fielding
The O'KeefesVirginia's Owner
EverwoodStacey Wilson
The King and Queen of Moonlight BayAlison Dodge
2004Gracie's ChoiceGracie Thompson
SpartanLaura Newton
DeadwoodFlora Anderson
Veronica MarsVeronica MarsAðalhlutverk (64 þættir 2004-2007)
2005Reefer Madness: The Movie MusicalMary Lane
DeepwaterNurse Laurie
The ReceiptPretty Girl
The Last Days of AmericaFriend in New York #1
2006Fifty PillsGracie
PulseMattie Webber
RomanThe Girl
2007Gossip GirlGossip Girl (þulurinn)
HeroesElle Bishop
Assassin's CreedLucy Stillman
Flatland: The MovieHex
2008Forgetting Sarah MarshallSarah Marshall
FanboysZoe
2009Serious MoonlightSara
When in RomeBeth
SheepishMarybelle
2010Get Him To The GreekSarah MarshallSmáhlutverk
You AgainMarni Olivia Olsen
2011Scream 4ChloeSmáhlutverk (eitt atriði)