Ródín

Frumefni með efnatáknið Rh og sætistöluna 45

Ródín er frumefni með efnatáknið Rh og sætistöluna 45 í lotukerfinu. Þetta er sjaldgæfur silfurhvítur, harður hliðarmálmur í platínuflokknum, finnst í platínugrýti og er notaður málmblendi með platínu og sem hvati.

 Kóbolt 
RúþenRódínPalladín
 Iridín 
EfnatáknRh
Sætistala45
EfnaflokkurHliðarmálmur
Eðlismassi12410,0 kg/
Harka6,0
Atómmassi102,90550(2) g/mól
Bræðslumark2237,0 K
Suðumark3968,0 K
Efnisástand
(við staðalaðstæður)
Fast form
Lotukerfið

Almenn einkenni

Ródín er harður, silfurhvítur og endingargóður málmur með háan endurvarpsstuðul. Ef það er smám saman kælt niður úr glóandi heitu ástandi, breytist það í snertingu við súrefni í seskíoxíð, sem breytist svo við hækkandi hitastig aftur yfir í málminn. Ródín hefur bæði hærra bræðslumark og lægri eðlismassa en platína. Það er ónæmt gagnvart öllum sýrum nema kóngavatni, sem leysir það upp.

Notkun

Aðalnot þessa frumefnis er sem málmblendisefni til að herða platínu og palladín. Þessar málmblöndur eru notaðar í bræðsluofnavöf, fóðringar í glertrefjaframleiðslu, snertispennunema, rafskaut fyrir kerti í flugvélar og í deiglur fyrir rannsóknastofur. Önnur not;

  • Það er notað sem snertuefni í rafmagnstækjum sökum lítils viðnáms og mikils tæringarþols.
  • Rafhúðað ródín er gríðarlega hart og notað í ljóstæki.
  • Það er notað í skartgripi og skreytingar.
  • Það er einnig nytsamlegt sem hvati í mörgum iðnaðarferlum. Það er til dæmis notað í hvarfakúta í bíla og í hvetjandi karbónýlun tréspírituss við framleiðslu á edikssýru með Monsanto-ferlinu.