Palladín

Frumefni með efnatáknið Pd og sætistöluna 46

Palladín er frumefni með efnatáknið Pd og sætistöluna 46 í lotukerfinu. Þetta er sjaldgæfur, stálhvítur hliðarmálmur í platínuflokknum og er unninn úr kopar- og nikkelgrýti. Það er aðallega notað sem hvati í iðnaði og í skartgripi.

 Nikkel 
RódínPalladínSilfur
 Platína 
EfnatáknPd
Sætistala46
EfnaflokkurHliðarmálmur
Eðlismassi12023,0 kg/
Harka4,75
Atómmassi106,42(1) g/mól
Bræðslumark1828,05 K
Suðumark3236,0 K
Efnisástand
(við staðalaðstæður)
Fast form
Lotukerfið

Almenn einkenni

Palladín er mjúkur, stálhvítur málmur sem efnafræðilega líkist platínu. Það tærist ekki í snertingu við loft og hefur minnsta eðlismassa og lægsta bræðslumark allra málma í platínuflokknum. Það er mjúkt og sveigjanlegt þegar það er dregið og eykst í styrk og hörku þegar það er unnið kalt. Hægt er að vinna efnafræðilega á palladíni með brennisteinssýru og saltpéturssýru en það leysist hægt upp í saltsýru. Þessi málmur hvarfast heldur ekki við snertingu við súrefni við venjulegt hitastig.

Þessi málmur hefur þann óvenjulega eiginleika að geta drukkið í sig 900 sinnum eigið rúmmál af vetni við stofuhita. Tilgátur eru um að það myndi hugsanlega palladínhýdríð (Pd2H) en ekki er ljóst ennþá hvort það sé raunverulegt efnasamband.

Algeng oxunarstig palladíns eru +2, +3 og +4. Þess má þó geta að nýlega hafa verið búin til palladínefnasambönd þar sem palladínið hefur oxunarstigið +6.

Notkun

Fínskipt palladín er góður hvati og er notað til að hraða vetnisbindingar- og vetnissviptingarferlum, og til að kljúfa jarðolíu. Það er einnig málmblandað og notað í skartgripi. Önnur not má nefna;

  • Hvítagull er málmblanda úr gulli sem er aflitað með palladíni.
  • Líkt og gull, er hægt að hamra palladín í þynnur allt að 100 nm á þykkt.
  • Vetni smýgur auðveldlega í gegnum hitað palladín. Af þeim sökum er hægt að nota það til að hreinsa vetnisgas.
  • Skiptikerfi í fjarskiptum nota palladín.
  • Palladín er einnig notað við tannlækningar, úrsmíði, í kerti fyrir flugvélar og í framleiðslu á skurðlækningatækjum og snerturofum.