Robert Lewandowski

Robert Lewandowski (fæddur 21. ágúst, 1988) er pólskur knattspyrnumaður sem spilar með FC Barcelona og pólska karlalandsliðinu í knattspyrnu. Hann hefur skorað yfir 320 mörk í Bundesliga og er sá næstmarkahæsti í deildinni frá upphafi. Í öllum keppnum er Lewandowski með nær 650 mörk. Hann er í 8. eða 15. sæti yfir markahæstu menn allra tíma eftir því hvaða viðmið eru notuð.

Robert Lewandowski
Lewandowski
Upplýsingar
Fullt nafnRobert Lewandowski
Fæðingardagur21. ágúst 1988 (1988-08-21) (35 ára)
Fæðingarstaður   Varsjá, Pólland
Hæð1,85 m
LeikstaðaFramherji
Núverandi lið
Núverandi liðFC Barcelona
Númer9
Yngriflokkaferill
1997-2006Varsovia Warszawa
Delta Warszawa
Legia II Warszawa
Meistaraflokksferill1
ÁrLiðLeikir (mörk)
2005Delta Warsaw17 (4)
2005-2006Legia Warsaw II12 (2)
2006–2008Znicz Pruszków59 (36)
2006-2007Znicz Pruszków II2 (2)
2008-2010Lech Poznań58 (32)
2010-2014Borussia Dortmund131 (74)
2014-2022Bayern München253 (238)
2022-FC Barcelona32 (23)
Landsliðsferill2
2007
2008
2008-
Pólland U-19
Pólland U-21
Pólland
1 (0)
3 (0)
140 (78)

1 Leikir með meistaraflokkum og mörk
talið í aðaldeild liðsins og
síðast uppfært 4. júní 2023.
2 Landsliðsleikir og mörk uppfærð
apríl 2023.

Lewandowski árið 2009 með Lech Poznań.

Lewandowski hóf atvinnuferil sinn árið 2006 með Znicz Pruszków þar sem hann var markahæstur í 2. og 3. deildunum. Árið 2008 fór hann til efstudeildarliðsins Lech Poznań og vann með þeim deildina (Ekstraklasa) tímabilið 2009–10.

Borussia Dortmund

Árið 2010 hélt hann til Þýskalands og spilaði með Borussia Dortmund frá 2010-2014. Hann vann tvo Bundesliga-titla með félaginu og varð markahæstur eitt tímabil.

Bayern

Frá 2014 hefur hann verið með Bayern München. Þar hefur hann blómstrað og unnið 6 deildartitla, marga bikartitla og Meistaradeild Evrópu. Haustið 2015 skoraði Lewandowski 5 mörk á 9 mínútum í leik gegn VfL Wolfsburg þar sem hann kom inn á sem varamaður. Á tímabilinu 2016-2017 skoraði hann 30 mörk; var markahæstur í deildinni og var valinn leikmaður tímabilsins í Bundesliga. Tímabilið 2019-2020 varð hann markahæstur í Bundesliga og var það í fjórða skipti sem hann hlaut þann heiður. Lewandowski hlaut UEFA verðlaun sem leikmaður tímabilsins 2019-2020. Þá skoraði hann 55 mörk í 47 leikjum. Hann þótti líklegur til að hneppa Ballon d'Or en þeim var aflýst vegna COVID-19. [1]Hann hlaut einnig verðlaun FIFA sem leikmaður ársins 2020. [2]Í lokaleik tímabilsins 2020-2021 skoraði hann á síðustu mínútunni í 5-2 sigri á Augsburg. Hann sló þar með tæpt 50 ára met Gerd Müllers og náði 41 marki skoruðu á einu tímabili í Bundesliga. Í byrjun næsta tímabils náði hann 300. marki sínu fyrir Bayern og það 300. í Bundesliga. Hann sló svo aftur met Mullers þegar hann skoraði 43 mörk í deildinni á einu ári. [3]

Í maí 2022 tilkynnti Lewandowski að tími sinn hjá Bayern væri búinn. Hann var orðaður við Barcelona, PSG og Chelsea.

FC Barcelona

Í júlí 2022 gerði Lewandowski 4 ára samning við FC Barcelona fyrir 50 milljón evrur.[4]

Hann skoraði þrennu í fyrsta meistaradeildarleik sínum fyrir félagið. Lewandowski vann La Liga á sínu fyrsta tímabili fyrir félagið og varð markahæstur í deildinni.

Landslið

Lewandowski hefur spilað með landsliði Póllands frá 2008. Hann hefur verið valinn pólskur leikmaður ársins níu sinnum.

Tenglar

Heimild

Tilvísanir

  Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.