Terry Pratchett


Sir Terence David John Pratchett OBE (Order of the British Empire) (28. apríl 1948 - 12. mars 2015) var enskur ævintýrarithöfundur, líklega þekktastur fyrir Discworld bókaröðina. Af öðrum verkum hans má nefna Johnny Maxwell þríleikinn og Bromeliad þríleikinn. Hann vann einnig náið með þeim sem yfirfóru verk hans á önnur form, til dæmis. tölvuleiki og leikrit.

Terry Pratchett
Terry Pratchett
Terence David John Pratchett
Fæddur:28. apríl 1948(1948-04-28)
Beaconsfield, Buckinghamshire, England
Látinn:12. mars 2015
Broad Chalke, Wiltshire, England
Starf/staða:Skáldsagnahöfundur
Þjóðerni:Enskur
Tegundir bókmennta:Skopskáldsögur
Maki/ar:Lyn Purves
1968–2015
Börn:Rhianna Pratchett
Heimasíða:http://www.terrypratchett.co.uk

Pratchett hóf að skrifa 13 ára gamall, og 15 ára gamall hafði hann fengið sín fyrstu verk birt opinberlega. Fyrsta skáldsagan hans, The Carpet People, var gefin út 1971. Fyrsta Discworld bókin, The Colour of Magic, kom út 1983, og síðan þá hefur Pratchett skrifað u.þ.b. tvær bækur á ári.

Terry Pratchett var söluhæsti rithöfundur Bretlandseyja á tíunda áratug 20. aldar. Í febrúar 2007 höfðu bækur hans selst í u.þ.b. 50 milljónum eintaka á heimsvísu og verið þýddar á 33 tungumál. Um þessar mundir er Pratchett næstmest lesni rithöfundurinn í Bretlandi, og í sjöunda sæti yfir erlenda rithöfunda í Bandaríkjunum. Lesendahópi Pratchetts er oft lýst sem "költ" (e. cult).

Þann 13. desember 2007 var það tilkynnt að Terry Pratchett væri með Alzheimer sjúkdóminn og lést hann af honum 12 mars 2015

Íslenskar þýðingar

Mál og Menning gaf út ,,Flóttinn" (e. Truckers) árið 1997 og ,,Undir berum himni" (e. Diggers) árið 2000 í ritröðinni ,,Ævintýri Nálfanna". Báðar bækurnar eru í þýðingu Þorgerðar Jörundsdóttur (f.1969).

Tónleikur gaf út ,,Litbrigði galdranna" (e. The Colour of Magic) árið 2007 í þýðingu Jóns Daníelssonar (f.1949) og Furðuljósið árið eftir.

Íslenskar leikgerðir

Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð setti upp Örlagasystur eftir bók Terry Pratchett, Wyrd Systers, árið 2003 í Austurbæ. Leikgerðin, sem er eftir Stephen Briggs, var þýdd af Gunnari Frey Steinssyni. Leikstjórar voru Atli Rafn Sigurðsson og Brynhildur Guðjónsdóttir.

Útgefin rit

Diskheimur

Nr.TitillÚtgefiðUndirflokkunÍslensk þýðingAthugasemdir
1The Colour of Magic1983RincewindLitbrigði galdranna
2The Light Fantastic1986FurðuljósiðFramhald af The Colour of Magic
3Equal Rites1987Witches
4MortDeath
5Sourcery1988Rincewind
6Wyrd SistersWitches
7Pyramids1989DjelibeybiVinningshafi í British Science Fiction Award, 1989[1]
8Guards! Guards!City Watch
9Eric1990RincewindEinnig gefin út í stærra broti og myndskreytt af Josh Kirby
10Moving PicturesIðnaðarbylting
11Reaper Man1991Death
12Witches AbroadWitches
13Small Gods1992Omnia
14Lords and LadiesWitches
15Men at Arms1993City Watch148da í Big Read
16Soul Music1994Death
17Interesting TimesRincewind
18Maskerade1995Witches
19Feet of Clay1996City Watch
20HogfatherDeath137da í Big Read; tilnefnd til British Fantasy Award, 1997[2]
21Jingo1997City Watch
22The Last Continent1998Rincewind
23Carpe JugulumWitches
24The Fifth Elephant1999City Watch153ja í Big Read; Locus Fantasy Award nominee, 2000[3]
25The Truth2000Iðnbylting193ja í Big Read
26Thief of Time2001Death152ur í Big Read; tilnefnd til Locus Award, 2002[4]
27The Last HeroRincewindEinnig gefin út í stærra broti og myndskreytt af Paul Kidby
28The Amazing Maurice and his Educated RodentsÜberwaldEr "YA" (young adult- unglinga eða barna) Discworld bók; vinningshafi 2001 Carnegie Medal
29Night Watch2002City WatchFékk Prometheus Award 2003; var 73ja í Big Read; tilnefnd til Locus Award, 2003[5]
30The Wee Free Men2003Tiffany AchingÖnnur "YA" Discworld bókin; einnig útgefin í stærra broti og myndskreytt af Stephen Player
31Monstrous RegimentIðnbyltingTitillinn er tilvísun í The First Blast of the Trumpet Against the Monstruous Regiment of Women;[6] 2004 nominee for Locus Award for Best Fantasy Novel.[7]
32A Hat Full of Sky2004Tiffany AchingÞriðja "YA" Discworld bókin
33Going PostalMoist von LipwigTilnefnd til Locus og Nebula Awards, 2005[8]
34Thud!2005City WatchTilnefnd til Locus Award, 2006[9]
35Wintersmith2006Tiffany AchingFjórða YA bókin.
36Making Money2007Moist von LipwigVann Locus Award, tilnefnd til Nebula, 2008[10]
37Unseen Academicals2009RincewindLocus Award Nominee, 2010
38I Shall Wear Midnight2010Tiffany AchingFimmta YA bókin, Andre Norton vinningshafi, 2010[11]
39Snuff2011City WatchÞriðja söluhæsta bók fyrstu viku útgáfu[12]
40Raising Steam2013Moist von Lipwig
41The Shepherd's Crown2015Tiffany AchingLokið við um mitt ár-2014 og gefin út eftir andlát 2015[13]

Pratchett skrifaði og vann einnig með öðrum höfundum fjölda annarra Discworld bóka sem eru ekki eiginlegar skáldsögur.

Smásögur

Það er einnig nokkuð af smásögum eftir Pratchett byggðar á Discworld, svo sem sagan af sagan af uppruna skáldaða leiknum Thud. Allar eru í safninu ("anthology") A Blink of the Screen (2012) eins og í eftirfarandi ritum:

  • "Troll Bridge" – í After The King: Stories in honour of J. R. R. Tolkien (1992); endurútgefið í The Mammoth Book of Comic Fantasy ritstýrt af Mike Ashley (1998); available online[14]
  • "Theatre of Cruelty" (1993); fáanleg á netinu:[15]
  • "The Sea and Little Fishes" – í Legends (1998), safni ("anthology") af smásögum ritstýrt Robert Silverberg
  • "Death and What Comes Next" (2002); fáanleg á netinu[16]
  • "A Collegiate Casting-Out of Devilish Devices" (2005); fáanleg á netinu[17]

Sjö smásögur voru einnig í safni af styttri verkum (meirihluta) Pratchetts, sem heitir Once More* With Footnotes (2004).

Að auki, er ein smásaga "Turntables of the Night" (1989) látin gerast í Englandi en með Death sem persónu; fánaleg á netinu og í báðum söfnunum.

"Mapps"

Þó að Terry Pratchett hafi sagt, "There are no maps. You can't map a sense of humour,"[18] þá eru fjögur "Mapps" (korrt): The Streets of Ankh-Morpork (1993), The Discworld Mapp (1995), A Tourist Guide to Lancre (1998), og Death's Domain (1999).Fyrstu tvö voru teiknuð af Stephen Player, byggð á plans by Pratchett og Stephen Briggs, þriðja er samvinna Briggs and Kidby, og það síðasta er eftir Paul Kidby. Öll innihalda bæklinga skrifaða af Pratchett og Briggs.

Vísindabækur

Pratchett vann einnig með Ian Stewart og Jack Cohen við fjórar bækur, og notuðu Diskheim til að lýsa almennum viðfangsefnum vísinda. Í hverri bók skiftast á kaflar af Discworld sögu og útskýringum á vísindinum sem tengjast henni. Bækurnar eru:

  • The Science of Discworld (1999)
  • The Science of Discworld II: The Globe (2002)
  • The Science of Discworld III: Darwin's Watch (2005)
  • The Science of Discworld IV: Judgement Day (2013)

Þrautabækur

David Langford hefur sett saman tvær Discworld ("quiz") þrauta bækur:

  • The Unseen University Challenge (1996), skopstæling af "TV quiz show" University Challenge
  • The Wyrdest Link (2002), skopstæling af "TV quiz show" The Weakest Link


Aðrar bækur

Aðrar Discworld útgáfur eru:

  • The Discworld Almanak – The Year of The Prawn
  • The Josh Kirby Discworld Portfolio (1993) A collection of Josh Kirby's artwork, published by Paper Tiger.
  • The Discworld Companion (1994) An encyclopaedia of Discworld information, compiled by Pratchett and Briggs. An updated version was released in 2003, titled The New Discworld Companion. A further updated version was released in 2012, titled Turtle Recall: The Discworld Companion . . . So Far.[19]
  • The Discworld Portfolio (1996) A collection of Paul Kidby's artwork, with notes by Pratchett.
  • Nanny Ogg's Cookbook (2002) A collection of Discworld recipes, combined with etiquette, language of flowers etc., written by Pratchett with Stephen Briggs and Tina Hannan.
  • The Art of Discworld (2004) Another collection of Paul Kidby's art.
  • The Discworld Almanak (2004) An almanac for the Discworld year, in the style of the Diaries and the Cookbook, written by Pratchett with Bernard Pearson.
  • Where's My Cow? (2005) A Discworld picture book referenced in Thud! and Wintersmith, written by Pratchett with illustrations by Melvyn Grant
  • The Unseen University Cut Out Book (2006) Build your own Unseen University, written by Pratchett with Alan Batley and Bernard Pearson, published 1 October 2006.
  • The Wit and Wisdom of Discworld (2007) A collection of quotations from the series.
  • The Folklore of Discworld (2008) A collaboration with British folklorist Jacqueline Simpson, discussing the myths and folklore used in Discworld.
  • The World of Poo (2012) Another in-universe children's book (similar to Where's My Cow), referenced in Snuff.
  • The Compleat Ankh-Morpork: City Guide[20] (2012) The complete guide to the city of Ankh-Morpork
  • Mrs Bradshaw's Handbook (2014)[21]
  • The Discworld Atlas (2015)[22]


Ævintýri nálfanna

Á ensku heitir serían The Nome Trilogy eða The Bromeliad Trilogy

NrTitillÚtgefiðÍslensk þýðingAthugasemdir
1Truckers1989Flóttinn (1997)
2Diggers1990Undir berum himni (2000)
3Wings1990

Johnny Maxwell

NrTitillÚtgefiðAthugasemdir
1Only You Can Save Mankind1992
2Johnny and the Dead1993
3Johnny and the Bomb1996

The Long Earth

Sería sem var sameiginlegt verk Terry Pratchetts og Stephen Baxters

NrTitillÚtgefiðAthugasemdir
1The Long Earth2012
2The Long War2013
3The Long Mars2014
4The Long Utopia2015
5The Long Cosmos2016

Aðrar bækur

TitillÚtgefiðMeðhöfundurÍslensk þýðingAthugasemdir
The Carpet People1971
Dark Side of the Sun1976
Strata1981
The Unadulterated Cat1989
Good Omens1990Neil Gaiman
Nation2008
Dodger2012
Jack Dodger's Guide to London2013

Heimildir