Tyrkneska

Tyrkneska (Türkçe, borið fram [tyɾktʃe]) er tyrkískt tungumál og þar af leiðandi eitt af hinum umdeildu altísku tungumálum. Hún er mest töluð í Tyrklandi en einnig af minni hópum á Kýpur, í Grikklandi og Austur-Evrópu, auk þess að vera töluð af nokkrum milljónum innflytjenda í Vestur-Evrópu. Tyrkneska er útbreiddasta tyrkíska málið og 65 – 73 milljón manns hafa málið að móðurmáli. 85 af hundraði íbúa Tyrklands hafa tyrknesku að fyrsta máli en 12 kúrdísku. Eftirliggjandi 3 prósent deilast á um 30 mál sem sum af hverjum eru miljónamál töluð í nágrannalöndunum svo sem armenska eða arabíska en mörg eru smámál á hverfanda hveli og í hættu á að leggjast af. Rætur tungumálsins má rekja til Mið-Asíu, þar sem fyrstu skrifin ná aftur um tæp 1.200 ár. Í vesturátt eru áhrifin aðalega af Ottóman tyrknesku — sem er afsprengi tyrknesku tungunnar og var notuð í Ottóman-stórveldinu og breiddist út samhliða því. Tyrkneska hefur verið rituð með latínuletri frá 1928 en var áður rituð með arabísku letri. Nafnorð í tyrknesku hafa sex föll. Enginn tiltekin greinir er í málinu en tiltekni er oft mynduð með notkun þolfalls. Lýsingarorð taka engum beygjingum. Persónufornafn þriðju persónu greinir ekki kyn. Í ritmálinu táknar ufsilon venjulega joð, venjulegt sje (c) 'dj', setillu sje (ç) 'tj', setillu ess 'sj'. U táknar ú og tvípunkts -u (ü) u (líkt og í þýsku). Gje með niðurbendandi ör fyrir ofan (ğ) greinist vart.

Tyrkneska
Türkçe
MálsvæðiTyrklandi, Búlgaríu, Kýpur, Grikklandi, Makedóníu, Kósovó, Rúmeníu, Aserbaídsjan og í innflytjendasamfélögum í Þýskalandi, Frakklandi, Hollandi, Austurríki, Úsbekistan, Bandaríkjunum, Belgíu og Sviss
HeimshlutiTyrkland, Kýpur, Balkanskagi og Kákasusfjöll
Fjöldi málhafa75-83 milljónir
Sæti15-16
ÆttAltaískt (umdeilt)

 Tyrkískt
  Suðvesturtyrkískt
  Vestur Oghuz
   tyrkneska

Opinber staða
Opinbert
tungumál
Tyrkland
Stýrt afTyrknesku tungumálasamtökunum
Tungumálakóðar
ISO 639-1tr
ISO 639-2tur
SILTUR
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode.

Nokkrar setningar og orð

TürkçeÍslenska
Selam, merhabaHalló
İyi günlerGóðan daginn
İyi akşamlarGott kvöld
Tanıştığıma memnun oldumGaman að hitta þig
Türkçe konuşuyorumÉg tala tyrknesku
Türkçe/İzlandaca konuşamıyorumÉg tala ekki tyrknesku/íslensku
Evet
HayırNei
Nasılsınız? (formlegt)Hvað segirðu gott?
Nasılsın? (óformlegt)Hvað segirðu gott?
İyiyimÉg segi allt gott
(Çok) Teşekkür ederimTakk (fyrir)
Adınız nedir? (formlegt)Hvað heitirðu?
Adın ne(-dir)? (óformlegt)Hvað heitirðu?
(Benim) adım ...Ég heiti ...
HoşçakalBless

Persónufornöfn í tryknesku

eintalafleirtala
123123
nefnifallbensenobizsizonlar
þolfallbenisenionubizisizionları
þágufallbanasanaonabizesizeonlara
staðarfallbendesendeondabizdesizdeonlarda
sviptifallbendensendenondanbizdensizdenonlardan
eignarfallbenimseninonunbizimsizinonların
  Þessi tungumálagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.