Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1990

Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1990 var í 14. sinn sem mótið var haldið. Þetta árið var það í Ítalíu frá 8. til 29. Júní. 116 landslið tóku þátt, útsláttarkeppnin byrjaði í April 1988. 22 lið komust áfram í riðlinum, einnig komst Ítalía áfram þar sem að þeir voru að halda keppnina og einnig komst verjandi bikarsins Argentína. Vestur þýskaland vann HM 1990, þriðja skiptið sem þeir unnu HM. Þeir unnu Argentínu 1-0 í úrslitaleik. Italía endaði í 3 sæti, og England í fjórða, bæði liðin töpuðu í vítaspyrnukeppni.HM 1990 er talið vera eitt slakasta HM fyrr og síðar. Það var aðeins skorað 2.21 mörk í leik að meðaltali – stendur þetta met ennþá – og einnig voru gefin 16 rauð spjöld sem er einnig met.Topp Markaskorari og besti leikmaðurinn á HM var Salvatore schillaci sem er frá Ítalíu.Efnilegasti leikmaðurinn var Robert Prosinečki frá júgóslavíu.

Val á gestgjöfum

Átta Evrópuþjóðir: Austurríki, England, Frakkland, Grikkland, Ítalía, Júgóslavía, Sovétríkin og Vestur-Þýskaland, auk Íran frá Asíu lýstu áhuga sínum á að halda HM 1990. Þegar kom að ákvörðun á FIFA-þinginu 1984 höfðu þau öll nema Ítalía og Sovétríkin dregið umsókn sína til baka. Ítalir höfðu betur í kosningu með 11 atkvæðum gegn 5. Ítalir urðu þar með önnur þjóðin á eftir Mexíkó til að fá úthlutað HM öðru sinni.

Undankeppni

114 lið skráðu sig til keppni auk gestgjafanna og ríkjandi heimsmeistara sem fengu sjálfkrafa sæti í úrslitum. Tveimur sterkum knattspyrnuþjóðum var vikið úr keppni. Mexíkó var meinuð þátttaka fyrir að hafa teflt fram of gömlum leikmönnum í unglingalandsliði. Mexíkóar töldu margir refsinguna óhóflega og hafa þann helsta tilgang að tryggja Bandaríkjamönnum sæti í úrslitakeppninni til að undirbúa þá undir gestgjafahlutverkið fjórum árum síðar. Hitt liðið sem sæta mátti keppnisbanni var Síle, en markvörður landsliðs þeirra varð uppvís að því í undankeppnisleik gegn Brasilíu að sviðsetja alvarleg meiðsli sín eftir að flugeldi var kastað nærri honum.

Frökkum mistókst að komast í úrslitakeppnina og sama gilti um Pólverja í fyrsta sinn síðan á HM 1970. Kólumbía varð síðasta liðið til að tryggja sér sæti í úrslitunum eftir sigur í umspili gegn Ísraelum, sem raunar höfðu tekið þátt í Eyjaálfuforkeppninni.

Þátttökulið

24 þjóðir mættu til leiks frá fimm heimsálfum.

Leikvangar

MílanóRómTórínóNapólí
San SiroStadio OlimpicoStadio delle AlpiStadio San Paolo
Áhorfendur: 74,559Áhorfendur: 73,603Áhorfendur: 62,628Áhorfendur: 59,978
BariFlórensVerónaÚdíne
Stadio San NicolaStadio ComunaleStadio Marc'Antonio BentegodiStadio Friuli
Áhorfendur: 51,426Áhorfendur: 38,971Áhorfendur: 35,950Áhorfendur: 35,713
CagliariBolognaPalermóGenóa
Stadio Sant'EliaStadio Renato Dall'AraStadio La FavoritaStadio Luigi Ferraris
Áhorfendur: 35,238Áhorfendur: 34,520Áhorfendur: 33,288Áhorfendur: 31,823

Keppnin

Riðlakeppnin

Keppt var í sex riðlum, hverjum með fjórum keppnisliðum. Tvö efstu liðin fóru í 16-liða úrslit, auk þeirra fjögurra liða í þriðja sæti sem bestum árangri náðu.

Riðill 1

Ítalir unnu riðilinn á fullu húsi stiga. Varamaðurinn Salvatore Schillaci skoraði sigurmark þeirra í fyrsta leiknum, sem jafnframt var aðeins hans annar landsleikur. Schillaci reyndist ein af stjörnum keppninnar. Tékkóslóvakía byrjaði með látum og fylgdi Ítölum upp úr riðlinum.

SætiLiðLUJTSkFeM.munurStig
1 Ítalía330040+46
2 Tékkóslóvakía320163+34
3 Austurríki310223-12
4 Bandaríkin300328-60
9. júní 1990
Ítalía1-0 AusturríkiÓlympíuleikvangurinn, Róm
Áhorfendur: 73.303
Dómari: José Roberto Wright
Schillaci 78
10. júní 1990
Bandaríkin1-5 TékkóslóvakíaStadio Comunale, Flórens
Áhorfendur: 33.266
Dómari: Kurt Röthlisberger
Caligiuri 60Skuhravý 26, 78, Bílek 40, Hašek 50, Luhový 90+3
14. júní 1990
Ítalía1-0 BandaríkinÓlympíuleikvangurinn, Róm
Áhorfendur: 73.423
Dómari: Edgardo Codesal
Giannini 11
15. júní 1990
Austurríki0-1 TékkóslóvakíaStadio Comunale, Flórens
Áhorfendur: 38.962
Dómari: George Smith
Bílek 31
19. júní 1990
Ítalía2-0 TékkóslóvakíaÓlympíuleikvangurinn, Róm
Áhorfendur: 73.303
Dómari: Joël Quiniou
Schillaci 9, Baggio 78
19. júní 1990
Austurríki2-1 BandaríkinStadio Comunale, Flórens
Áhorfendur: 34.857
Dómari: Jamal Al Sharif
Ogris 49, Rodax 63Murray 83

Riðill 2

Einhver óvæntustu úrslit í sögu HM litu dagsins ljós í opnunarleiknum þar sem Kamerún vann sigur á heimsmeisturum Argentínumanna. Afríkuliðið hélt sínu striki og endaði á toppi riðilsins þrátt fyrir stórtap í lokaleiknum. Heimsmeistararnir máttu sætta sig við að skríða í 16-liða úrslitin út á þriðja sætið.

SætiLiðLUJTSkFeM.munurStig
1 Kamerún320135-24
2 Rúmenía311143+13
3 Argentína311132+13
4 Sovétríkin31024402
8. júní 1990
Argentína1-0 KamerúnSan SiroMílanó
Áhorfendur: 73.780
Dómari: Michel Vautrot
Omam-Biyik 67
9. júní 1990
Sovétríkin0-2 RúmeníaStadio San Nicola, Bari
Áhorfendur: 42.907
Dómari: Juan Daniel Cardellino
Lăcătuș 41, 55
13. júní 1990
Argentína2-0 SovétríkinStadio San Paolo, Napólí
Áhorfendur: 55.759
Dómari: Erik Fredriksson
Troglio 27, Burruchaga 79
14. júní 1990
Kamerún2-1 RúmeníaStadio San Nicola, Bari
Áhorfendur: 38.687
Dómari: Hernán Silva
Milla 76, 86Balint 88
18. júní 1990
Argentína1-1 RúmeníaStadio San Paolo, Napólí
Áhorfendur: 52.733
Dómari: Carlos Silva Valente
Monzón 62Balint 68
18. júní 1990
Kamerún0-4 SovétríkinStadio San Nicola, Bari
Áhorfendur: 37.307
Dómari: José Roberto Wright
Protasov 20, Zygmantovich 29, Zavarov 52, Dobrovolski 63

Riðill 3

Svíar og Skotar ollu stuðningsmönnum sínum vonbrigðum og sátu eftir. Óþekkt lið Kosta Ríka kom mjög á óvart og náði öðru sætinu á eftir Brasilíumönnum.

SætiLiðLUJTSkFeM.munurStig
1 Brasilía330041+36
2 Kosta Ríka320132+14
3 Skotland310223-12
4 Svíþjóð300336-30
10. júní 1990
Brasilía2-1 SvíþjóðStadio Delle Alpi, Tórínó
Áhorfendur: 62.628
Dómari: Tullio Lanese
Careca 67Brolin 79
11. júní 1990
Kosta Ríka1-0 SkotlandStadio Luigi Ferraris, Genúa
Áhorfendur: 30.867
Dómari: Juan Carlos Loustau
Cayasso 49
16. júní 1990
Brasilía1-0 Kosta RíkaStadio Delle Alpi, Tórínó
Áhorfendur: 58.007
Dómari: Neji Jouini
Müller 33
16. júní 1990
Svíþjóð1-2 SkotlandStadio Luigi Ferraris, Genúa
Áhorfendur: 31.823
Dómari: Carlos Maciel
Strömberg 86McCall 11, Johnston 81
20. júní 1990
Brasilía1-0 SkotlandStadio Delle Alpi, Tórínó
Áhorfendur: 62.508
Dómari: Helmut Kohl
Müller 81
20. júní 1990
Svíþjóð1-2 Kosta RíkaStadio Luigi Ferraris, Genúa
Áhorfendur: 30.223
Dómari: Zoran Petrović
Ekström 32Flores 75, Medford 87

Riðill 4

Flest mörkin voru skoruð í 4. riðli og átti slakur varnarleikur Sameinuðu arabísku furstadæmanna þar stóran hlut að máli. Vestur-Þjóðverjar unnu stórsigur á Júgóslövum í fyrsta leiknum, 4:1 og enduðu á toppnum. Kólumbíumenn fylgdu Evrópuþjóðunum í 16-liða úrslit.

SætiLiðLUJTSkFeM.munurStig
1 Vestur-Þýskaland3210103+75
2 Júgóslavía320165+14
3 Kólumbía311132+13
4 Sameinuðu arabísku furstadæmin3003211-90
9. júní 1990
Sameinuðu arabísku furstadæmin0-2 KólumbíaStadio Renato Dall'Ara, Bologna
Áhorfendur: 30.791
Dómari: George Courtney
Redín 50, Valderrama 85
10. júní 1990
Vestur-Þýskaland4-1 JúgóslavíaSan SiroMílanó
Áhorfendur: 74.765
Dómari: Peter Mikkelsen
Matthäus 28, 64, Klinsmann 39, Völler 70Jozić 55
14. júní 1990
Júgóslavía1-0 KólumbíaStadio Renato Dall'Ara, Bologna
Áhorfendur: 32.257
Dómari: Luigi Agnolin
Jozić 75
15. júní 1990
Vestur-Þýskaland5-1 Sameinuðu arabísku furstadæminSan SiroMílanó
Áhorfendur: 71.169
Dómari: Alexey Spirin
Völler 35, 75, Klinsmann 37, Matthäus 47, Bein 58Ismail 46
19. júní 1990
Vestur-Þýskaland1-1 KólumbíaSan SiroMílanó
Áhorfendur: 72.510
Dómari: Alan Snoddy
Littbarski 88Rincón 90+3
19. júní 1990
Júgóslavía4-1 Sameinuðu arabísku furstadæminStadio Renato Dall'Ara, Bologna
Áhorfendur: 27.833
Dómari: Shizuo Takada
Sušić 5, Pančev 9, 46, Prosinečki 90+3Thani 22

Riðill 5

Spánn og Belgía tylltu sér á topp 5. riðils. Úrúgvæ fylgdi þeim í 16-liða úrslit eftir að skora mark á lokamínútunni gegn Suður-Kóreu sem rak lestina.

SætiLiðLUJTSkFeM.munurStig
1 Spánn321052+35
2 Belgía320163+34
3 Úrúgvæ311123-13
4 Suður-Kórea300316-50
12. júní 1990
Belgía2-0 Suður KóreaStadio Marc'Antonio Bentegodi, Veróna
Áhorfendur: 32.790
Dómari: Vincent Mauro
Degryse 53, De Wolf 64
13. júní 1990
Úrúgvæ0-0 SpánnStadio Friuli, Údíne
Áhorfendur: 35.713
Dómari: Helmut Kohl
17. júní 1990
Belgía3-1 ÚrúgvæStadio Marc'Antonio Bentegodi, Veróna
Áhorfendur: 33.759
Dómari: Siegfried Kirschen
Clijsters 15, Scifo 24, Ceulemans 47Bengoechea 73
17. júní 1990
Suður Kórea1-3 ÚrúgvæStadio Friuli, Údíne
Áhorfendur: 32.733
Dómari: Elías Jácome
Hwangbo Kwan 43Míchel 23, 61, 81
21. júní 1990
Belgía1-2 SpánnStadio Marc'Antonio Bentegodi, Veróna
Áhorfendur: 35.950
Dómari: Juan Carlos Loustau
Vervoort 29Míchel 26, Górriz 38
21. júní 1990
Suður Kórea0-1 ÚrúgvæStadio Friuli, Údíne
Áhorfendur: 29.039
Dómari: Tullio Lanese
Fonseca 90+1

Riðill 6

Markaþurrð einkenndi 6. riðilinn. England, Írland og Holland höfðu öll verið saman í riðli á EM 1992 og mættust á ný í riðlakeppninni. Þar sem Holland og Írland luku keppni með sama stigafjölda og markatölu þurfti að varpa hlutkesti um hvort liðið hlyti annað sætið og hvort það þriðja.

SætiLiðLUJTSkFeM.munurStig
1 England312021+14
2 Írland30302203
3 Holland30302203
4 Egyptaland302112-12
11. júní 1990
England1-1 ÍrlandStadio Sant'Elia, Cagliari
Áhorfendur: 35.238
Dómari: Aron Schmidhuber
Lineker 9Sheedy 73
12. júní 1990
Holland1-1 EgyptalandStadio La Favorita, Palermo
Áhorfendur: 33.288
Dómari: Emilio Soriano Aladrén
Kieft 59Abdelghani 83
16. júní 1990
England0-0 HollandStadio Sant'Elia, Cagliari
Áhorfendur: 35.267
Dómari: Zoran Petrović
17. júní 1990
Írland0-0 EgyptalandStadio La Favorita, Palermo
Áhorfendur: 33.288
Dómari: Marcel van Langenhove
21. júní 1990
England1-0 EgyptalandStadio Sant'Elia, Cagliari
Áhorfendur: 34.959
Dómari: Kurt Röthlisberger
Wright 58
21. júní 1990
Írland1-1 HollandStadio La Favorita, Palermo
Áhorfendur: 33.288
Dómari: Michel Vautrot
Quinn 71Gullit 11

Útsláttarkeppnin

Tvö til þrjú efstu liðin úr hverjum forriðli fóru áfram í 16-liða úrslit sem leikin voru með útsláttarfyrirkomulagi.

16-liða úrslit

Mark Claudio Canniggia tíu mínútum fyrir leikslok, eftir sendingu Diego Maradona skildi að Argentínumenn og Brasilíu. Brasilíumenn sökuðu leikmenn Argentínu eftir leikinn um að hafa gefið varnarmanni þeirra sljóvgandi lyf. Leikmennirnir Rudi Völler og Frank Rijkaard voru báðir reknir af velli í sigrði Vestur-Þjóðverja á Hollendingum í miklum hitaleik. Ljót mistök kólumbíska markvarðarins René Higuita komu Kamerún í fjórðungsúrslit, fyrstu Afríkuliða. Írar sem ekki unnu leik í riðlakeppninni héldu sínu striki og komust áfram eftir sigur á Rúmenum í vítaspyrnukeppni. Engu mátti muna að grípa þyrfti til enn einnar vítakeppninnar í leik Englendinga og Belga, en David Platt skoraði sigurmark á lokamínútunni.

23. júní 1990
Kamerún2-1 (e.framl.) KólumbíaStadio San Paolo, Napólí
Áhorfendur: 50.026
Dómari: Tullio Lanese, Ítalíu
Milla 106, 108Redín 115
23. júní 1990
Tékkóslóvakía4-1 Kosta RíkaStadio San Nicola, Bari
Áhorfendur: 47.673
Dómari: Siegfried Kirschen, Austur-Þýskalandi
Skuhravý 12, 63, 82, Kubík 76González 55
24. júní 1990
Brasilía0-1 ArgentínaStadio Delle Alpi, Tórínó
Áhorfendur: 61.381
Dómari: Joël Quiniou, Frakklandi
Caniggia 81
24. júní 1990
Vestur-Þýskaland2-1 HollandSan SiroMílanó
Áhorfendur: 74.559
Dómari: Juan Carlos Loustau, Argentínu
Klinsmann 51, Brehme 85R. Koeman 89 (vítasp.)
25. júní 1990
Írland0-0 (5-4 e.vítake.) RúmeníaStadio Luigi Ferraris, Genúa
Áhorfendur: 31.818
Dómari: José Roberto Wright, Brasilíu
25. júní 1990
Ítalía2-0 ÚrúgvæÓlympíuleikvangurinn, Róm
Áhorfendur: 73.303
Dómari: George Courtney, Englandi
Schillaci 65, Serena 83
26. júní 1990
Spánn1-2 (e.framl.) JúgóslavíaStadio Marc'Antonio Bentegodi, Veróna
Áhorfendur: 35.500
Dómari: Aron Schmidhuber, Vestur-Þýskalandi
Julio Salinas 84Stojković 78, 93
26. júní 1990
England1-0 (e.framl.) BelgíaStadio Renato Dall'Ara, Bologna
Áhorfendur: 34.520
Dómari: Peter Mikkelsen, Danmörku
Platt 119

Fjórðungsúrslit

Viðureign Argentínu og Júgóslavíu lauk með vítakeppni þar sem Argentínumenn unnu þrátt fyrir að Maradona hefði misnotað sína spyrnu. HM-ævintýri írska landsliðsins lauk með 1:0 tapi gegn heimamönnum Ítala. Þjóðverjar og Englendingar voru tvö síðustu liðin í undanúrslitin, þeir síðarnefndu eftir nauman sigur á Kamerún í framlengingu.

30. júní 1990
Argentína0-0 (3-2 e.vítake.) JúgóslavíaStadio Comunale, Flórens
Áhorfendur: 38.971
Dómari: Kurt Röthlisberger, Sviss
30. júní 1990
Írland0-1 ÍtalíaÓlympíuleikvangurinn, Róm
Áhorfendur: 73.303
Dómari: Carlos Silva Valente, Portúgal
Schillaci 38
1. júlí 1990
Tékkóslóvakíska0-1 Vestur-ÞýskalandSan SiroMílanó
Áhorfendur: 73.347
Dómari: Helmut Kohl, Austurríki
Matthäus 25 (vítasp.)
1. júlí 1990
Kamerún2-3 (e.framl.) EnglandStadio San Paolo, Napólí
Áhorfendur: 55.205
Dómari: Edgardo Codesal, Mexíkó
Kundé 61 (víasp.), Ekéké 65Platt 25, Lineker 83 (vítasp.), 105 (vítasp.)

Undanúrslit

Báðar undanúrslitaviðureignirnar enduðu með vítakeppni eftir 1:1 jafntefli. Heimamenn og Englendingar máttu bíta í það súra epli að missa af úrslitaleiknum.

3. júlí 1990
Argentína1-1 (4-3 e.vítake.) ÍtalíaStadio San Paolo, Napólí
Áhorfendur: 59.978
Dómari: Michel Vautrot, Frakklandi
Caniggia 67Schillaci 17
4. júlí 1990
Vestur-Þýskaland1-1 (4-3 e.vítake.) EnglandStadio delle Alpi, Tórínó
Áhorfendur: 62.628
Dómari: José Roberto Wright, Brasilíu
Brehme 60Lineker 88

Bronsleikur

Ítalir náðu 3. sætinu eftir sigur á Englendingum. Toto Schillaci tryggði sér markakóngstitilinn með sínu sjötta marki úr vítaspyrnu undir lok leiksins.

7. júlí 1990
Ítalía2-1 EnglandStadio San Nicola, Bari
Áhorfendur: 51.426
Dómari: Joël Quiniou, Mexíkó
Baggio 71, Schillaci 86Platt 81

Úrslitaleikur

Úrslitaleikur HM 1990 er almennt talinn einn sá lakasti í sögu HM. Þegar um hálftími var eftir af leiknum varð Argentínumaðurinn Pedro Monzon fyrstur allra til að láta reka sig af velli í úrslitum. Argentínumenn sem neyddust til að tefla fram talsvert veiktu liði vegna meiðsla og leikbanna reyndu lítið að sækja en vörðust af mikilli hörku. Þegar fimm mínútur voru eftir var dæmd vítaspyrna fyrir brot á Rudi Völler sem Andreas Brehme nýtti vel. Með sigrinum varð Franz Beckenbauer fyrstur allra til að sigra á HM bæði sem leikmaður og þjálfari.

8. júlí 1990
Argentína0-1 Vestur-ÞýskalandÓlympíuleikvangurinn, Rómaborg
Áhorfendur: 73.603
Dómari: Edgardo Codesal, Frakklandi
Brehme 85

Markahæstu leikmenn

Salvatore Schillaci hreppti gullskó FIFA með sex mörk skoruð. Alls skiptu 75 leikmenn á milli sín 115 mörkum, ekkert þeirra var sjálfsmark.

6 mörk
5 mörk
  • Tomáš Skuhravý
4 mörk
3 mörk