Kasakska

Kasakska (қазақ тілі/қазақша/qazaq tili) er tungumál Kasakstans. 11 milljón manns tala hana sem móðurmál. Hún er tyrkískt tungumál. Kasakska er töluð í Kasakstan og í Mið-Asíu. Önnur lönd þar sem kasakska er töluð eru Mongólía, Úsbekistan og Kirgistan, og minnihlutahópar í Þýskalandi, Bandaríkjunum og Tyrklandi. Kasakska er mjög svipuð kirgísku, úsbeksku, túrkmensku, asersku og tyrknesku. Greina má mörg sameiginleg orð og fólk sem kann kasöksku á auðvelt með að lesa þessi mál.

Kasakska
қазақша
MálsvæðiKasakstan, Mongólía, Kirgistan, Úsbekistan, Tyrkland, Tadsjikistan, Kína, Afganistan, Túrkmenistan, Þýskaland og Bandaríkin
HeimshlutiMið-Asía
Fjöldi málhafa11,5 milljónir
Sæti93
ÆttTyrkneskt

 Vesturtyrkneskt
  Aral-kaspískt
   Kasakska

Opinber staða
Opinbert
tungumál
Kasakstan
Tungumálakóðar
ISO 639-1kz
ISO 639-2kaz
SILKAZ
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode.
Wikipedia
Wikipedia
Wikipedia: Kasakska, frjálsa alfræðiritið
Wikibækur eru með efni sem tengist
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu

Stafróf

Kasakska er skrifuð með breyttri útgáfu kýrillíska stafrófsins, en var áður rituð með arabíska stafrófinu.

Аа Әә Бб Вв Гг Дд Ғғ Ее Ёё Жж Зз Ии Йй Кк Ққ Лл Мм Нн Ңң Оо Өө Пп Рр Сс Тт Уу Ұұ Үү Фф Хх Һһ Цц Чч Шш Щщ (Ъъ) Ыы (Ьь) Іі Ээ Юю Яя

Nokkrar algengar setningar

  • Сәлем (Sälem) - Halló
  • Хал қалай? (Xal qalay) - Hvað segirðu?
  • Жақсы (Jaqsı) - Allt fínt.
  • Рахмет (Raxmet) - Takk.
  • Ия (İä) - Já
  • Жоқ (Joq) - Nei
  • Сіздің атыңыз кім? (Sizdin atıñız kim) - Hvað heitirðu?
  • Менің атым... (Mening atım) - Ég heiti...
  • Сіздің ұлтыңыз кім? (Sizdin ultıngız kim?) - Hvaðan ertu?
  • Мен Исландияданмын (Men Islandiyadanmın) - Ég er Íslendingur
  • Сізді көргеніме қуаныштымын (Sizdi korgenime kwanıştımın) - Gaman að hitta þig
  • Сіз қайда тұрасыз? (Siz qayda turasız) - Hvar býrðu?
  • Мен Рейкявикте тұрамын (Men Reyqyaviqte turamın) - Ég bý í Reykjavík
  • Хош келдің (Xoş keldin) - Velkomin/n
  • Қайырлы таң (Qayırlı tañ) - Góðan morgun
  • Қайырлы күн (Qayırlı kün) - Góðan daginn
  • Қайырлы кеш (Qayırlı kéş) - Gott kvöld
  • Не істеп жатырсың? (Ne istep jatırsıñ?) - Hvað ertu að gera?
  • Ештеңе (Eşteñe) - Ekkert
  • Сау бол (Saw bol) - Bless!

Fornöfn

  • Мен (Men) - Ég
  • Сен, Сіз (Sen, Siz) - Þú
  • Ол (Ol) - Hann, hún, það
  • Біз (Biz) - Við
  • Сендер, Сіздер (Sender, sizder) - Þið
  • Олар (Olar) - Þeir, þær, þau

Tengill