Korn

Þessi grein er um frækorn, sjá einnig morgunkorn og hljómsveitina Korn.

Korn er safnheiti yfir fræ nytjaplantna af grasaætt. Helstu kornplöntur eru hrís, hveiti, maís, bygg, dúrra, hafrar, hirsi og rúgur.

Ýmsar korntegundir og afurðir þeirra

Verkun

Korn er slegið með þreskivél sem skilur í sundur hálm (stöngul) og kornið sjálft. Það skilur hálminn eftir í garða og sumar þreskivélar saxa hann áður en honum er skilað aftur á akurinn.

Tækni við verkun kornsins fer eftir notkunarsviði kornisins eins og taflan fyrir neðan sýnir:

AðferðFóðurkornSáðkornMatarkorn
VotverkunHentarHentar ekkiHentar ekki
SúgþurrkunHentarHentarHentar
FæriþurrkunHentarHentarHentar
HraðþurrkunHentarHentar ekkiHentar ekki