Lantan

Frumefni með efnatáknið La og sætistöluna 57

Lantan eða lantanum (úr grísku: λανθανω, „að vera falið“) er frumefni með efnatáknið La og er númer 57 í lotukerfinu. Lantan er silfurhvítt lantaníð sem kemur fyrir í nokkrum sjaldgæfum steindum oftast í sambandi við serín og önnur sjaldgæf frumefni. Lantan er mjúkur málmur sem oxast hratt í snertingu við loft.

 Yttrín 
BarínLantanSerín
 Aktín 
EfnatáknLa
Sætistala57
EfnaflokkurLantaníð
Eðlismassi6146 kg/
Harka2,5
Atómmassi138,90547 g/mól
Bræðslumark920 K
Suðumark3464 K
Efnisástand
(við staðalaðstæður)
Fast form
Lotukerfið

Lantan er unnið úr steindum á borð við mónasít og bastnäsít með flókinni þrepaskiptri aðferð. Lantansambönd eru notuð mjög víða, meðal annars sem hvatar, íblöndunarefni í gler, í lampa, kveikjara og blys, glóskaut, sem sindurefni og fleira.

Einkenni

Lantan er silfurhvítur, mjúkur málmur með sexstrenda kristalbyggingu við stofuhita. Lantan oxast auðveldlega og er því aðeins notað hreint í rannsóknum.

Notkun

  • Lantan er notað í forskaut NiMH-rafhlaðna
  • Lantan er notað í lýsingu, einkum í kvikmyndaverum
  • Lítið magn lantans eykur mýkt, álagsþol og sveigjanleika stáls
  • Lantan er notað í sundlaugar til að fjarlægja fosföt sem þörungar nærast á
  • Lantankarbónat er líka notað sem lyf til að fjarlægja fosfat hjá sjúklingum með biluð nýru vegna blóðfosfatsóhófs
  Þessi efnafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.