Sýrustig

Wikibækur eru með efni sem tengist

Sýrustig (hugtakið pH-gildi[1] er notað þegar tala er tilgreind)[1] er í efnafræði mælikvarði fyrir hversu súr vökvi er. Sýrustig er skilgreint sem logrinn af umhverfu styrks vetnisjóna í lausninni.

Gildi frá 0 til 7 tákna súra lausn, þ.e. sýru (því súrari sem gildið er lægra), gildið 7 táknar hlutlausa lausn, og gildi frá 7 og upp í 14 táknar basíska lausn (því basískari sem gildið er hærra).

Mælingar sýrustigs

Túlkun á sýrustigi
EfnipH-gildi
Saltsýra, 10M-1.0
Blýgeymir0.5
Magasýra1.5 – 2.0
Sítrónusafi2.4
Kók2.5
Edik2.9
Appelsínusafi3.5
Tómatsafi4.0
Bjór4.5
Súrt regn<5.0
Kaffi5.0
Te eða venjuleg húð5.0
Þvag6.0
Mjólk6.5
Hreint vatn7.0
Munnvatn heilbrigðrar manneskju6.5 – 7.4
Blóð7.34 – 7.45
Saltvatn7.7 – 8.3
Handsápa9.0 – 10.0
Venjulegt ammoníak11.5
Bleikiefni12.5
Natríumhýdroxíð13.5

Mæla má sýrustigið með því að:

  • bæta sýrustigsvísinum við upplausnina á meðan fylgst er með. Litur vísisins getur til kynna sýrustigið.
  • nota sýrumæli
  • nota sýrustigspappír sem breytir um lit eftir því hve súr upplausnin er

Þar sem sýrustigsskalinn er á lograskala byrjar hann ekki á núlli.

Heimildir

  • Sören Sörenson (2003). Ensk-íslensk orðabók með alfræðilegu ívafi. Mál og menning.

Tenglar

  Þessi efnafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.