Styrja (ættkvísl)

Styrja (fræðiheiti: Acipenser) er ættkvísl vatnafiska í styrjuætt.

Styrja (ættkvísl)
Acipenser sturio Linnaeus
Acipenser sturio Linnaeus
Vísindaleg flokkun
Ríki:Dýraríki (Animalia)
Fylking:Seildýr (Chordata)
Flokkur:Geisluggar (Actinopterygii)
Undirflokkur:Brjóskgljáfiskar (Chondrostei)
Ættbálkur:Styrjur (Acispenseriformes)
Ætt:Styrjuætt (Acipenseridae)
Ættkvísl:Styrja (Acipenser)

Lýsing

Snjáldrið er sívalt. Örmjótt innstreymisop er hvorum megin á höfðinu, kippkorn fyrir aftan augun. Tálknalokin eru svo lítil, að þau hylja ekki tálknin fyllilega. Bak- og raufaruggi eru mjög aftarlega; uggageislarnir eru hrufóttir og tentir á hliðum. Beinplöturnar á bol og stirtlu eru allar typtar á miðju og milli þeirra er roðið sett smáum beinörðum[1].

Styrjur eru ýmist eingöngu vatnafiskar, einnig leita þær til sjávar (þær eru hálfgöngu- og göngufiskar)[2][3].

Ein tegund af þessari ættkvísl hefur fundist fjórum sinnum við Ísland[2].

Tegundir

Það eru 17 tegundir teljast til styrjuættkvíslarinnar[4]:

Tenglar