Velkomin á Wikipedíu

Alfræðiritið sem allir geta unnið að í sameiningu

Á hinni íslensku Wikipedíu eru nú 58.626 greinar.

Grein mánaðarins

Annie Ernaux er franskur rithöfundur og prófessor í bókmenntafræði. Verk hennar eru flest með sjálfsævisögulegu ívafi og áhrifum af félagsfræði. Ernaux hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 2022 fyrir „hugrekki og skarpskyggni í skrifum sínum,“ sem „afhjúpa rætur, fráhvörf og fjötra persónulegra minninga.“

Frumraun Annie Ernaux í bókmenntum var bókin Les Armoires vides árið 1974, sem var sjálfsævisöguleg skáldsaga. Árið 1984 hlaut hún Renaudot-verðlaunin fyrir annað verk með sjálfsævisögulegu ívafi, La Place.

Árið 2008 gaf Ernaux út bókina Les Années, þar sem hún skrifaði um tímabilið frá eftirstríðsárunum fram til samtímans. Hún hlaut fjölda verðlauna fyrir bókina og næsta ár hlaut hún Verðlaun franskrar tungu fyrir ævistörf sín.

Í fréttum

Halla Tómasdóttir

Yfirstandandi: Átökin í Súdan  • Borgarastyrjöldin í Jemen  • Eldgosin við Sundhnúksgíga  • Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu  • Stríð Ísraels og Hamas  • Sýrlenska borgarastyrjöldin

Nýleg andlát: Brigitte Bierlein (3. júní)  • Ebrahim Raisi (19. maí)  • Alice Munro (13. maí)


Atburðir 4. júní

  • 1996 - Geimflaugin Ariane 5 sprakk eftir flugtak frá Frönsku Gvæjana. Verkefnið hafði kostað Evrópuríki 7,5 milljarða dala og tekið 11 ár.
  • 1998 - Mammì-lögin um takmörkun á eignarhaldi fjölmiðla á Ítalíu voru samþykkt.
  • 2000 - Yfir 100 fórust þegar jarðskjálfti reið yfir Súmötru.
  • 2002 - Chad Trujillo og Mike Brown uppgötvuðu reikistirnið 50000 Quaoar.
  • 2011 - Eldfjallið Puyehue-Cordón Caulle í Chile gaus og olli truflunum á flugumferð við Nýja-Sjáland.
  • 2013 - Flóðin í Evrópu 2013: 4 létust þegar árnar Saxelfur og Saale flæddu yfir bakka sína.
  • 2020 - Þjóðarsáttarstjórn Líbíu lýsti því yfir að hún hefði náð tökum á höfuðborginni Trípólí eftir að sveitir Frelsishers Líbíu hörfuðu þaðan.
  • 2020 - Þing Hong Kong samþykkti hina umdeildu Reglugerð um þjóðsöng Kína.
  • 2022 - Bajram Begaj var kjörinn forseti Albaníu af albanska þinginu.

Vissir þú...

Bósi Ljósár
Bósi Ljósár
  • … að titill vísindaskáldsögunnar Dune var þýddur sem Dúna á íslensku vegna þess að þýðendurnir vildu forðast að nota orð sem vísuðu í vatn eða snjó?
  • … að teiknimyndapersónan Bósi Ljósár (sjá mynd) var nefnd eftir geimfaranum Buzz Aldrin, öðrum manninum til að stíga fæti á tunglið?
Efnisyfirlit