Velkomin á Wikipedíu
Alfræðiritið sem allir geta unnið að í sameininguÁ hinni íslensku Wikipedíu eru nú 58.625 greinar.
Grein mánaðarins
Annie Ernaux er franskur rithöfundur og prófessor í bókmenntafræði. Verk hennar eru flest með sjálfsævisögulegu ívafi og áhrifum af félagsfræði. Ernaux hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 2022 fyrir „hugrekki og skarpskyggni í skrifum sínum,“ sem „afhjúpa rætur, fráhvörf og fjötra persónulegra minninga.“
Frumraun Annie Ernaux í bókmenntum var bókin Les Armoires vides árið 1974, sem var sjálfsævisöguleg skáldsaga. Árið 1984 hlaut hún Renaudot-verðlaunin fyrir annað verk með sjálfsævisögulegu ívafi, La Place.
Árið 2008 gaf Ernaux út bókina Les Années, þar sem hún skrifaði um tímabilið frá eftirstríðsárunum fram til samtímans. Hún hlaut fjölda verðlauna fyrir bókina og næsta ár hlaut hún Verðlaun franskrar tungu fyrir ævistörf sín.
Í fréttum
- 1. júní: Halla Tómasdóttir (sjá mynd) er kjörin forseti Íslands.
- 29. maí: Eldgos hefst að nýju við Sundhnúksgíga.
- 26. maí: Gitanas Nausėda er endurkjörinn forseti Litáens.
- 19. maí: Ebrahim Raisi, forseti Írans, lætur lífið í þyrluslysi ásamt utanríkisráðherra landsins og fylgdarliði þeirra.
- 15. maí: Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu, særist lífshættulega eftir morðtilræði gegn honum.
Yfirstandandi: Átökin í Súdan • Borgarastyrjöldin í Jemen • Eldgosin við Sundhnúksgíga • Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Stríð Ísraels og Hamas • Sýrlenska borgarastyrjöldin
Atburðir 3. júní
- 2001 - Alejandro Toledo var kjörinn forseti Perú.
- 2006 - Svartfjallaland lýsti yfir sjálfstæði.
- 2008 - Hvítabjörn sást á Þverárfjalli í Skagafirði og var felldur.
- 2011 - Forseti Jemen, Ali Abdullah Saleh, særðist í sprengjuárás sem gerð var á mosku í forsetahöllinni.
- 2012 - 153 fórust þegar Dana Air flug 992 hrapaði á byggingu í Lagos í Nígeríu.
- 2014 - Bashar al-Assad var kjörinn forseti Sýrlands með 88% atkvæða þrátt fyrir borgarastyrjöldina í landinu.
- 2017 - Árásin á Lundúnabrú: Þrír hryðjuverkamenn óku á vegfarendur og réðust síðan á fólk með hnífum. Þeir myrtu 8 áður en lögregla skaut þá til bana.
- 2018 - Yfir hundrað létu lífið þegar eldfjallið Volcán de Fuego gaus í Gvatemala.
- 2019 - Blóðbaðið í Kartúm: Yfir 100 mótmælendur voru drepnir þegar stjórnarhermenn og Janjaweed-hópar réðust á búðir mótmælenda í Kartúm, Súdan.
- 2019 - Donald Trump Bandaríkjaforseti hóf opinbera heimsókn sína til Bretlands.
Vissir þú...
- … að Võ Nguyên Giáp, helsti hershöfðingi Víetnams í Víetnamstríðinu, lifði til ársins 2013 og varð 102 ára?
- … að Svetlana Allílújeva, dóttir Jósefs Stalín, yfirgaf Sovétríkin á sjöunda áratugnum og gerðist bandarískur ríkisborgari?
- … að titill vísindaskáldsögunnar Dune var þýddur sem Dúna á íslensku vegna þess að þýðendurnir vildu forðast að nota orð sem vísuðu í vatn eða snjó?
- … að forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 1824 voru annað og síðasta skiptið sem fulltrúadeild Bandaríkjaþings varð að kjósa forsetann þar sem enginn frambjóðandi hlaut meirihluta kjörmanna í sjálfum kosningunum?
- … að Julian Lennon, sonur Johns Lennon, var innblástur fyrir þrjú lög Bítlanna: „Lucy in the Sky with Diamonds“, „Hey Jude“, og „Good Night“?
- … að teiknimyndapersónan Bósi Ljósár (sjá mynd) var nefnd eftir geimfaranum Buzz Aldrin, öðrum manninum til að stíga fæti á tunglið?
Fjarskiptatækni • Iðnaður • Internetið • Landbúnaður • Lyfjafræði • Rafeindafræði • Rafmagn • Samgöngur • Stjórnun • Upplýsingatækni • Verkfræði • Vélfræði • Þjarkafræði
Afþreying • Bókmenntir • Byggingarlist • Dulspeki • Ferðamennska • Garðyrkja • Goðafræði • Heilsa • Íþróttir • Kvikmyndir • Kynlíf • Leikir • List • Matur og drykkir • Myndlist • Tónlist • Trúarbrögð
Atvinna • Borgarsamfélög • Félagasamtök • Fjölmiðlar • Fjölskylda • Fyrirtæki • Hernaður • Lögfræði • Mannréttindi • Umhverfið • Verslun
Náttúruvísindi og stærðfræði
Dýrafræði • Eðlisfræði • Efnafræði • Grasafræði • Jarðfræði • Landafræði • Líffræði • Náttúran • Stjörnufræði • Stærðfræði • Vistfræði • Vísindaleg flokkun • Vísindi
Félagsfræði • Fornfræði • Fornleifafræði • Hagfræði • Heimspeki • Mannfræði • Málfræði • Málvísindi • Menntun • Saga • Sálfræði • Tungumál • Tónfræði • Uppeldisfræði • Viðskiptafræði • Vitsmunavísindi
Ýmislegt
Listar • Gæðagreinar • Úrvalsgreinar • Efnisflokkatré • Flýtivísir • Handahófsvalin síða • Nýjustu greinar • Nýlegar breytingar • Eftirsóttar síður