Velkomin á Wikipedíu
Alfræðiritið sem allir geta unnið að í sameininguÁ hinni íslensku Wikipedíu eru nú 58.460 greinar.
Grein mánaðarins
Oda Nobunaga var einn af valdamestu lénsherrum (daimyo) í Japan á sextándu öld. Það tímabil hefur verið nefnt sengoku-öldin eða þriggja ríkja öldin, í sögu Japans.
Sengoku-öldin einkenndist af blóðugum átökum borgarastyrjaldar. Nobunaga bar aðeins titilinn lénsherra en var þó valdameiri en bæði keisarinn og sjóguninn, sem var yfirmaður hersins. Ævi hans var undirlögð af bardögum og átökum við aðra valdamenn ríkisins. Flest öllum átökunum lauk með sigri Nobunaga en farsæld hans á bardagavellinum hjálpaði honum að leggja grunninn að sameiningu Japans undir eina stjórn. Sérviska hans og ráðsnilld hefur gert Nobunaga að einni þekktustu persónu japanskrar sögu.
Í fréttum
- 16. apríl: Eldur kviknar í Børsen (sjá mynd) í Kaupmannahöfn.
- 10. apríl: Annað ráðuneyti Bjarna Benediktssonar tekur við völdum á Íslandi í kjölfar afsagnar Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra.
- 9. apríl: Simon Harris tekur við af Leo Varadkar sem forsætisráðherra Írlands.
- 5. apríl: Katrín Jakobsdóttir biðst lausnar sem forsætisráðherra Íslands og gefur kost á sér í forsetakosningum.
Yfirstandandi: Átökin í Súdan • Borgarastyrjöldin í Jemen • Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu • Stríð Ísraels og Hamas • Sýrlenska borgarastyrjöldin • Eldgosið við Sundhnúksgíga
Atburðir 28. apríl
- 2008 - Indland setti nýtt heimsmet með því að senda 10 gervihnetti á sporbaug um jörðu í einu geimskoti.
- 2008 - Austurríkismaðurinn Josef Fritzl játaði að hafa haldið dóttur sinni fanginni í 24 ár og átt 7 börn með henni.
- 2009 - Íslenska varðskipið Þór var sjósett í Chile.
- 2011 - Sprengjutilræðið í Marrakess 2011: Sprengja sprakk á kaffihúsi í Marrakess í Marokkó með þeim afleiðingum að 17 létust.
- 2014 - Bandaríkin hófu að beita viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi vegna deilunnar um Krímskaga.
- 2019 – Þingkosningar fóru fram á Spáni. Spænski sósíalíski verkamannaflokkurinn, flokkur Pedro Sánchez forsætisráðherra, hlaut um 30 prósent atkvæða, mest allra flokka.
Vissir þú...
- … að Greta Gerwig, sem leikstýrði kvikmyndinni Barbie árið 2023, er fyrsta kona sögunnar til að leikstýra kvikmynd sem hefur þénað meira en milljarð Bandaríkjadala á heimsvísu?
- … að Risto Ryti, fimmti forseti Finnlands, var dæmdur fyrir glæpi gegn friði eftir seinni heimsstyrjöldina vegna þrýstings frá Sovétríkjunum?
- … að mælieiningarnar bogamínúta og bogasekúnda eiga sér uppruna í babýlónskri stjörnufræði?
- … að glataði málstaðurinn (Lost Cause) er nafn á mýtu um að bandaríska þrælastríðið hafi ekki í raun snúist um þrælahald?
- … að Boðunardagur Maríu er alltaf haldinn þann 25. mars í Austurkirkjunni en er breytilegur hjá Vesturkirkjunni ?
- … að flögudýr (sjá mynd) eru talin einföldustu dýr jarðar samkvæmt sameindagreiningum?
Fjarskiptatækni • Iðnaður • Internetið • Landbúnaður • Lyfjafræði • Rafeindafræði • Rafmagn • Samgöngur • Stjórnun • Upplýsingatækni • Verkfræði • Vélfræði • Þjarkafræði
Afþreying • Bókmenntir • Byggingarlist • Dulspeki • Ferðamennska • Garðyrkja • Goðafræði • Heilsa • Íþróttir • Kvikmyndir • Kynlíf • Leikir • List • Matur og drykkir • Myndlist • Tónlist • Trúarbrögð
Atvinna • Borgarsamfélög • Félagasamtök • Fjölmiðlar • Fjölskylda • Fyrirtæki • Hernaður • Lögfræði • Mannréttindi • Umhverfið • Verslun
Náttúruvísindi og stærðfræði
Dýrafræði • Eðlisfræði • Efnafræði • Grasafræði • Jarðfræði • Landafræði • Líffræði • Náttúran • Stjörnufræði • Stærðfræði • Vistfræði • Vísindaleg flokkun • Vísindi
Félagsfræði • Fornfræði • Fornleifafræði • Hagfræði • Heimspeki • Mannfræði • Málfræði • Málvísindi • Menntun • Saga • Sálfræði • Tungumál • Tónfræði • Uppeldisfræði • Viðskiptafræði • Vitsmunavísindi
Ýmislegt
Listar • Gæðagreinar • Úrvalsgreinar • Efnisflokkatré • Flýtivísir • Handahófsvalin síða • Nýjustu greinar • Nýlegar breytingar • Eftirsóttar síður