Belís

Belís er land á austurströnd Mið-Ameríku við Karíbahaf, með landamæriMexíkó í norðvestri og Gvatemala í vestri og suðri. Það nær yfir 22.970 ferkílómetra og íbúar eru rúmlega 400.000. Meginlandshluti landsins er um 290 km langur og 110 km breiður. Belís er fámennasta og dreifbýlasta land Mið-Ameríku, en fólksfjölgun (áætluð 1,87% á ári 2018) er þar önnur mest í heimshlutanum og með því mesta á Vesturlöndum.

Belize
Fáni BelísSkjaldarmerki Belís
Fáni Skjaldarmerki
Kjörorð:
Sub Umbra Floreo
(latína: Ég blómstra í skugganum)
Þjóðsöngur:
Land of the Free
Staðsetning Belís
HöfuðborgBelmópan
Opinbert tungumálenska
StjórnarfarÞingbundin konungsstjórn

KonungurKarl 3.
LandstjóriFroyla Tzalam
ForsætisráðherraJohnny Briceño
Sjálfstæðifrá Bretlandi
 • Heimastjórn1964 
 • Sjálfstæði21. desember 1981 
Flatarmál
 • Samtals
 • Vatn (%)
147. sæti
22.966 km²
0,8
Mannfjöldi
 • Samtals (2019)
 • Þéttleiki byggðar
169. sæti
408.487
17,2/km²
VLF (KMJ)áætl. 2019
 • Samtals3,484 millj. dala (166. sæti)
 • Á mann8.576 dalir (118. sæti)
VÞL (2018) 0.720 (103. sæti)
Gjaldmiðillbelísdalur (BZD)
TímabeltiUTC-6
Þjóðarlén.bz
Landsnúmer+501

Menning Maja náði til Belís milli 1500 f.Kr. og 300 e.Kr. og blómstraði til um 1200. Fyrstu Evrópumennirnir komu árið 1502 þegar Kristófer Kólumbus sigldi inn í Hondúrasflóa. Landkönnun og landnám Evrópumanna hófust árið 1638. Á þeim tíma gerðu bæði Spánn og Bretland tilkall til landsins þar til Bretar sigruðu Spánverja í orrustunni um St. George's Caye undan ströndum landsins 1798. Nýlendan Breska Hondúras var stofnuð 1840 og varð krúnunýlenda árið 1862. Landið fékk sjálfstæði 1981.

Nafn landsins, og fyrri höfuðborgarinnar Belísborgar, er dregið af Belísá. Í Belís þrífst fjölbreytt menning og mörg tungumál. Enska er opinbert tungumál landsins en belískreólska er þjóðtunga þriðjungs íbúa. Spænska er annað mest talaða mál landsins. Innan Mið-Ameríku hefur Belís mikla sérstöðu og er skyldara ríkjum Karíbahafsins sem einnig eru fyrrum nýlendur Breta. Höfuðborg Belís er Belmópan en Belís er þéttbýlasta borgin og helsta hafnarborg landsins.

Vegna mikils tegundafjölda á landi og í sjó og fjölbreyttra vistkerfa leikur Belís lykilhlutverk í Mið-Ameríkurflökkureininni. Landið telst bæði til Mið-Ameríku og Karíbahafsins með sterk tengsl við bæði menningarsvæðin. Það er eina landið sem á fulla aðild að CARICOM, Samtökum ríkja í Rómönsku Ameríku og Karíbahafi og Samstarfskerfi Mið-Ameríku. Belís er samveldisland og Karl 3. er konungur og þjóðhöfðingi landsins.

Heiti

Elsta ritaða heimildin sem getur um orðið „Belís“ er dagbók dóminíkanamunksins José Delgado frá 1677.[1] Delgado skráði nöfn ánna sem hann fór yfir á ferð sinni norður eftir strönd Karíbahafsins sem Rio Soyte, Rio Xibum og Rio Balis. Nöfn ánna, sem samsvara Sittee-á, Sibun-á og Belísá, fékk hann frá túlki sínum.[1] Stungið hefur verið upp á því að „Balis“ sé Majaorðið belix (eða beliz) sem merkir drullugt vatn.[1] Nýlega hefur verið stungið upp á því að það gæti komið frá setningunni bel Itza eða „vegurinn til Itza“.[2]

Á 3. áratug 19. aldar komst sú alþýðuskýring á nafninu í umferð meðal yfirstétta Belís að heitið væri spænsk útgáfa nafns breska sjóræningjans Peter Wallace, sem hafi stofnað nýlendu við ósa Belísár 1638.[3] Engar heimildir eru til um stofnun sjóræningjanýlendu á því svæði og jafnvel Wallace sjálfur er talinn vera skáldsagnapersóna.[1][2] Sagnfræðingar og rithöfundar hafa komið með ýmsar aðrar skýringar á uppruna heitisins í gegnum tíðina, meðal annars að það sé úr afrískum málum eða frönsku.[1]

Stjórnmál

Stjórnsýslueiningar

Districts of Belize

Belís er skipt í sex umdæmi:

UmdæmiHöfuðstaðurLandsvæði[4]Íbúar
(2015)[5]
Íbúar
(2010)[4]
BreytingÞéttleiki
(2015)
BelizeBelísborg4.310 km²110.64495.292+16,1%25.7/km²
CayoSan Ignacio5.200 km²87.87675.046+17,1%16.9/km²
CorozalCorozal Town1.860 km²45.53041.061+10,9%24.5/km²
Orange WalkOrange Walk Town4.600 km²49.46645.946+7,7%10,7/km²
Stann CreekDangriga2.550 km²39.86534.324+16,1%15,6/km²
ToledoPunta Gorda4.410 km²34.92830.785+13,5%7,9/km²

Umdæmin skiptast aftur í 31 kjördæmi. Staðbundin stjórnvöld í Belís eru á fjórum stjórnsýslustigum: borgarráð, bæjarráð, þorpsráð og byggðaráð. Tvö borgarráð (Belísborg og Belmópan) og sjö bæjarráð ná yfir þéttbýlisstaði landsins, meðan þorps- og byggðaráð eru yfir dreifbýli[6]

Íþróttir

Vinsælustu íþróttagreinarnar í Belís eru knattspyrna, körfuknattleikur, blak og hjólreiðar. Árviss víðavangskeppni í hjólreiðum, sem fram fer um páskahelgina, er kunnasti íþróttaviðburður landsins og laðar að sér fjölda útlendra keppenda.

Þótt knattspyrna sé sú íþrótt sem flestir landsmenn fylgjast með hefur Belís ekki unnið nein stórafrek á fótboltasviðinu. Landsliðið komst í úrslitakeppni Norður- og Miðameríkukeppninnar árið 2013 í fyrsta og eina sinn, en tapaði öllum sínum leikjum. Sama ár hafnaði liðið í fjórða sæti á Mið-Ameríkuleikunum sem er langbesti árangur landsins í keppninni.

Hondúras sendi fyrst íþróttafólk til keppni á Ólympíuleikunum á leikunum í Mexíkóborg 1968 og hefur tekið þátt í öllum leikum frá því í Los Angeles 1984. Enginn íþróttamaður frá Belís hefur enn komist á verðlaunapall á leikunum.

Tilvísanir

  Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.