Omar al-Bashir

Omar Hassan Ahmad al-Bashir (fæddur 1. janúar 1944) var 7. forseti Súdans. Hann komst til valda í valdaráni hersins árið 1989 en hann var liðsforingi þar. Áður hafði hann verið í egypska hernum og tók þátt í stríðinu árið 1973 gegn Ísrael. Al-Bashir var kosinn þrisvar til embættis forseta en grunsemdir hafa verið um kosningasvindl.

Omar al-Bashir
عمر البشير
Omar al-Bashir árið 2009.
Forseti Súdans
Í embætti
30. júní 1989 – 11. apríl 2019
ForsætisráðherraBakri Hassan Saleh
Motazz Moussa
Mohamed Tahir Ayala
Varaforseti
Sjá lista
  • Fyrstu varaforsetar
  • Zubair Mohamed Salih
  • Ali Osman Taha
  • John Garang
  • Salva Kiir Mayardit
  • Ali Osman Taha
  • Bakri Hassan Saleh
  • Ahmed Awad Ibn Auf
  • Aðrir varaforsetar
  • George Kongor Arop
  • Moses Kacoul Machar
  • Ali Osman Taha
  • Al-Haj Adam Youssef
  • Hassabu Mohamed Abdalrahman
  • Osman Mohamed Yousif Kibir
ForveriAhmed al-Mirghani
EftirmaðurAhmed Awad Ibn Auf
(sem formaður bráðabirgðaherstjórnar)
Persónulegar upplýsingar
Fæddur1. janúar 1944 (1944-01-01) (80 ára)
Hosh Bannaga, Súdan
ÞjóðerniSúdanskur
StjórnmálaflokkurSúdanski þjóðarráðsflokkurinn
MakiFatima Khalid
Widad Babiker Omer
HáskóliEgypski hernaðarháskólinn

Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hefur sakað al-Bashir um stríðsglæpi og glæpi gegn mannúð, þar á meðal í Darfúr. [1]

Í febrúar árið 2019 lýsti al-Bashir yfir neyðarástandi en mótmæli gegn honum stigmögnuðust. Í byrjun apríl tók herinn við völdum og setti al-Bashir í stofufangelsi. [2] Þann 14. desember sama ár var al-Bashir dæmdur í tveggja ára stofufangelsi í betrunarmiðstöð.[3]

Tilvísanir


Fyrirrennari:
Ahmed al-Mirghani
Forseti Súdans
(30. júní 198911. apríl 2019)
Eftirmaður:
Ahmed Awad Ibn Auf
(sem formaður bráðabirgðaherstjórnar)