Sumarólympíuleikarnir 1988

Sumarólympíuleikarnir 1988 voru haldnir í Seoul í Suður-Kóreu frá 17. september til 2. október.

Aðdragandi og skipulag

Ákvörðunin um staðsetningu leikanna var tekin á árinu 1981. Auk Seoul sóttist japanska borgin Nagoya eftir gestgjafahlutverkinu. Japanska framboðið var talið mun sigurstranglegra og kom því verulega á óvart þegar Seoul fékk nálega tvöfalt fleiri atkvæði í kosningunni. Í aðdraganda leikanna hélt Seoul Asíuleikana árið 1986 sem hálfgerða generalprufu.

Skipuleggjendur fengu á sig nokkra gagnrýni þegar fréttist að borgaryfirvöld í Seoul höfðu látið flytja í burtu hópa heimilisleysingja og annarra sem taldir voru skaðlegir fyrir ímynd borgarinnar og halda þeim nauðugum á vistheimilum meðan á mótinu stóð. Óttast var að hópur kommúnistaríkja myndu sniðganga leikana líkt og gerst hafði fjórum árum fyrr. Þegar til kom ákváðu flest þeirra þó að taka þátt. Norður-Kóreumenn gerðu kröfu um að fá að halda hluta leikanna en þegar ekki var orðið við þeim óskum ákvað ríkið að mæta ekki til keppni. Sama gerðu Kúbanir, Albanir og Eþíópíumenn í samstöðuskyni.

Keppnisgreinar

Keppt var í 237 greinum. Fjöldi keppna í einstökum íþróttaflokkum er gefinn upp í sviga.

Handknattleikskeppni ÓL 1988

Með góðum árangri á HM í Sviss 1986, tryggði Ísland sér þátttökurétt á leikunum í Seoul og voru miklar vonir bundnar við góðan árangur. Styrkleikalisti Alþjóðahandknattleikssambandsins setti Ísland í fjórða sæti heimslistans skömmu fyrir leikana. Tólf lið kepptu í tveimur riðlum og var riðill Íslands ógnarsterkur.

Fyrstu tvær viðureignir liðsins voru gegn lökustu andstæðingunum, Alsír og Bandaríkjunum. Unnust þeir leikir auðveldlega. Íslendingar reyndust Svíum lítil fyrirstaða í þriðja leiknum. Því næst fylgdi jafntefli gegn Júgóslövum, með jöfnunarmarki á lokasekúndunni. Sovétmenn reyndust svo of stór biti í lokaleik riðilsins.

Andstæðingar Íslands í leiknum um sjöunda sætið voru Austur-Þjóðverjar og hefði sigur tryggt sæti á HM í Tékkóslóvakíu 1990. Leikurinn varð sögulegur. Eftir tvær framlengingar var staðan 28:28, en Þjóðverjarnir höfðu betur í vítakeppni.

Sovéska landsliðið varð Ólympíumeistari með talsverðum yfirburðum, vann allar viðureignir sínar með nokkrum mun. Suður-Kórea hlaut silfurverðlaunin en Júgóslavar bronsið.

Þáttaka

Þátttaka Íslendinga á leikunum

Auk handknattleikslandsliðsins, sendu Íslendingar sautján íþróttamenn til Seoul: sjö frjálsíþróttamenn, sex sundmenn, tvo júdókappa og tvo kappsiglingarmenn.

Eðvarð Þór Eðvarðsson náði bestum árangri sundmanna, varð sautjándi í 100 metra baksundi.

Uppskeran í frjálsíþróttakeppninni olli vonbrigðum. Íslendingar áttu á að skipa góðum keppendum í kastgreinum, s.s. kringlukastaranum Vésteini Hafsteinssyni, Kúluvarparanum Pétri Guðmundssyni og spjótkösturunum Vilhjálmi Einarssyni og Sigurði Einarssyni. Þeir voru allir nokkuð frá sínu besta. Einar varð þrettándi og Pétur fjórtándi.

Verðlaunaskipting eftir löndum

NrLöndGullSilfurBronsAlls
1 Sovétríkin553146132
2 Austur-Þýskaland373530102
3 Bandaríkin36312794
4 Suður-Kórea12101133
5 Vestur-Þýskaland11141540
6 Ungverjaland116623
7 Búlgaría10121335
8 Rúmenía711624
9  Frakkland64616
10 Ítalía44414
11  Kína5111228
12  Bretland510924
13 Kenýa5229
14  Japan43714
15  Ástralía36514
16 Júgóslavía34512
17 Tékkóslóvakía3328
18 Nýja Sjáland32813
19  Kanada32510
20 Pólland25916
21  Noregur2305
22 Holland2259
23  Danmörk2114
24  Brasilía1236
25  Finnland1124
Spánn1124
27 Tyrkland1102
28 Marokkó1023
29  Austurríki1001
Portúgal1001
Súrinam1001
32  Svíþjóð04711
33  Sviss0224
34 Jamæka0202
35 Argentína0112
36 Síle0101
Kosta Ríka0101
Indónesía0101
Íran0101
Hollensku Antillaeyjar0101
Perú0101
Senegal0101
Bandarísku Jómfrúaeyjar0101
44 Belgía0022
Mexíkó0022
46 Kólumbía0011
Djíbútí0011
Grikkland0011
Mongólía0011
Pakistan0011
Filippseyjar0011
Tæland0011
Alls241234264739