Óskarsverðlaunin

bandarísk kvikmyndaverðlaun

Óskarsverðlaunin (enska: Academy Awards eða óformlega the Oscars) eru bandarísk kvikmyndaverðlaun veitt kvikmyndagerðarmönnum og öðrum sem starfa við kvikmyndir. Verðlaunahátíðin er yfirleitt sú best kynnta og mest áberandi á Vesturlöndum, og verðlaunin af flestum talin þau eftirsóknarverðustu. Óskarsverðlaunin eru veitt af Bandarísku kvikmyndaakademíunni (Academy of Motion Picture Arts and Sciences), samtökum fólks sem starfar við kvikmyndagerð í Bandaríkjunum, og er aðild að þeim einungis veitt í heiðursskyni.

Óskarsverðlaunin
Veitt fyrirFramúrskarandi árangur í kvikmyndagerð
LandBandaríkin
UmsjónBandaríska kvikmyndaakademían
Fyrst veitt16. maí 1929
Vefsíðaoscars.org/oscars
Verðlaunahátíðin 2008

Árið 2003 voru 5.816 meðlimir í akademíunni með kosningarétt við val á Óskarsverðlaunahöfum. Óskarsverðlaunin hafa verið veitt árlega frá 1929.

Fyrsta framlag Íslands til tilnefningar á Óskarsverðlaunahátið var myndin Land og synir eftir Ágúst Guðmundsson frá árinu 1980 en það var í 53. sinn sem hátíðin var haldin.

Verðlaunaflokkar

Núverandi flokkar

UpphafsárVerðlaunaflokkur
1927/28Besta kvikmynd
1927/28Besti leikstjóri
1927/28Besti leikari í aðalhlutverki
1927/28Besta leikkona í aðalhlutverki
1927/28Besta kvikmyndataka
1927/28Besta heildarútlit/listræn stjórnun
1927/28Besta handrit byggt á öðru verki
1929/30Besta hljóð
1930Besta stutta teiknimyndin
1931/32Besta leikna stuttmyndin
1934Besta klipping
1934Besta frumsamda kvikmyndatónlistin
1934Besta frumsamda lag
1936Besti leikari í aukahlutverki
1936Besta leikkona í aukahlutverki
1939Bestu tæknibrellur
1940Besta frumsamda handritið
1941Besta stutta heimildarmyndin
1943Besta heimildarmynd
1947Besta alþjóðlega kvikmyndin
1948Besta búningahönnun
1981Besta förðun og hárgreiðsla
2001Besta teiknimynd

Íslenskar tilnefningar til Óskarsverðlauna

Eftirtaldir íslenskir aðilar eða myndir hafa fengið tilnefningu Bandarísku kvikmyndaakademíunnar til Óskarsverðlauna.

Íslenskir Óskarsverðlaunahafar

  • Árið 2020 vann Hildur Guðnadóttir Óskar fyrir bestu frumsömdu tónlistina fyrir myndina Joker og varð fyrst Íslendinga til að vinna slík verðlaun.

Tilvísanir

Tengill