West Bromwich Albion F.C.

West Bromwich Albion Football Club eða WBA er enskt knattspyrnufélag frá West Bromwich í Vestur-Miðhéruðum á mið-Englandi. Liðið var stofnað árið 1878 sem West Bromwich Strollers. Heimavöllur liðsins, The Hawthorns, hefur verið í notkun frá 1900. Liðið vann efstu deild tímabilið 1919–20 og hefur endað tvisvar í 2. sæti. FA-bikarinn hefur liðið unnið 5 sinnum, síðast árið 1968. Árið 2000 var Lárus Sigurðsson valinn leikmaður ársins hjá félaginu. Liðið spilaði síðast í ensku úrvalsdeildinni 2020-2021.

West Bromwich Albion Football Club
Fullt nafnWest Bromwich Albion Football Club
Gælunafn/nöfnThe Baggies, The Throstles, The Albion
Stytt nafnWBA, West Brom, Albion
Stofnað1878
LeikvöllurThe Hawthorns
Stærð26.688
StjórnarformaðurLi Piyue
KnattspyrnustjóriSteve Bruce
DeildEnska meistaradeildin
2021-202210. sæti
Heimabúningur
Útibúningur
Gengi liðsins.

Nágrannaliðin Aston Villa og Birmingham City eru helstu erkifjendur WBA.

Titlar

Heimild

Fyrirmynd greinarinnar var „West Bromwich Albion F.C.“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 16. apríl. 2019.