6. janúar

dagsetning
DesJanúarFeb
SuÞrMiFiLa
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
2024
Allir dagar


6. janúar er 6. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 359 dagar (360 á hlaupári) eru eftir af árinu.

Atburðir

  • 1066 - Haraldur Guðinason var krýndur konungur Englands.
  • 1266 - Karl 1. af Anjou var krýndur konungur Sikileyjar og Napólí í Róm af fimm kardínálum þótt Manfreð Sikileyjarkonungur sæti enn á konungsstóli.
  • 1449 - Konstantín 9. var krýndur síðasti keisari Austrómverska keisaradæmisins.
  • 1540 - Hinrik 8. Englandskonungur gekk að eiga fjórðu eiginkonu sína, Önnu af Cleves. Hjónabandið var dæmt ógilt sex mánuðum síðar.
  • 1560 - Giovanni Angelo de’Medici varð Píus 4. páfi.
  • 1579 - Atrechtsambandið sameinaði suðurhéruð Niðurlanda undir stjórn Alessandro Farnese hertogans af Parma og lýsti yfir hollustu við Filippus 2. Spánarkonung.
  • 1612 - Axel Oxenstierna varð ríkiskanslari í Svíþjóð.
  • 1661 - Menn fimmta konungsríkisins reyndu að ná völdum í London en herdeild George Monck sigraði þá.
  • 1690 - Jósef, sonur Leópolds 1., var krýndur konungur Ungverjalands og konungur Rómverja.
  • 1709 - Mesta kuldatímabil í Evrópu í 500 ár hófst og stóð í þrjá mánuði. Tugþúsundir manna dóu úr kulda og enn fleiri úr hungri vegna uppskerubrests um sumarið og haustið.
  • 1838 - Samuel Morse kynnti ritsíma sinn í fyrsta sinn opinberlega.
  • 1902 - Í Reykjavík var haldinn grímudansleikur í fyrsta sinn og þótti góð skemmtun.
  • 1919 - Frímúrarareglan á Íslandi var stofnuð.
  • 1923 - Halldór Laxness gerðist meðlimur hinnar heilögu kaþólsku kirkju og var fermdur og skírður fullu nafni Halldór Kiljan Marie Pierre Laxness í Clervaux-klaustri í Lúxemborg.
  • 1936 - Julio María Sanguinetti varð forseti Úrúgvæ.
  • 1947 - Enski togarinn Lois strandaði á Hraunsfjörum austan Grindavíkur. Björgunarsveitin Þorbjörn, sem þá var nýstofnuð innan Slysavarnadeildarinnar Þorbjörns, bjargaði 15 skipverjum með fluglínutækjum. Einn skipverja, skipstjórinn, fórst þegar hann reyndi síðastur manna að komast í björgunarstólinn.
  • 1949 - Fæðingardeild Landspítalans og Ljósmæðraskólinn fluttu í nýtt hús við Landspítalann.
  • 1957 - Elvis Presley kom fram í þriðja og síðasta skipti í sjónvarpsþætti Eds Sullivan og var aðeins sýndur fyrir ofan mitti þar sem mjaðmahreyfingar hans þóttu ósiðlegar.
  • 1965 - Neðansjávargosi í Surtlu norðaustan við Surtsey lauk.
  • 1968 - Rannsóknastöð Hjartaverndar var tekin í notkun. Fyrsti yfirlæknir hennar var Ólafur Ólafsson, síðar landlæknir.
  • 1977 - Tónlistarframleiðandinn EMI sagði upp samningi við hljómsveitina Sex Pistols.
  • 1978 - Bandaríkin skiluðu Stefánskórónunni til Ungverjalands, en hún hafði verið í Bandaríkjunum frá lokum Síðari heimsstyrjaldar.
  • 1986 - Hafskipsmálið: Íslenska skipafélagið Hafskip var lýst gjaldþrota.
  • 1986 - Verslunarskóli Íslands flutti úr miðborg Reykjavíkur í nýtt húsnæði við Ofanleiti.
  • 1990 - Sjónvarpsþáttur spaugstofunnar 90 á stöðinni hóf göngu sína í Ríkisútvarpinu.
  • 1992 - Armenar í Nagornó-Karabak lýstu yfir stofnun Nagornó-Karabaklýðveldisins.
  • 1993 - Bombeyuppþotin hófust í Mumbai á Indlandi vegna niðurrifs Babri Masjid.
  • 1994 - Árásarmaður barði skautadrottninguna Nancy Kerrigan í fótinn að undirlagi fyrrverandi eiginmanns keppinautar hennar, Tonya Harding.
  • 1995 - Eldur braust út í íbúðabyggingu í Manila á Filippseyjum. Lögreglumenn fundu tölvu og sprengiefni með lýsingu á Bojinkaáætluninni um stórfellda hryðjuverkaárás. Höfuðpaurinn, Ramzi Yousef, var handtekinn skömmu síðar.
  • 1995 - Fyrsta vefútgáfa norsks dagblaðs kom út þegar Brønnøysunds Avis hóf útgáfu á netinu.
  • 1998 - Litla hafmeyjan í Kaupmannahöfn missti höfuðið í annað sinn.
  • 2000 - Síðasti villti pýreneaíbexinn fannst dauður.
  • 2001 - Árinu helga 2000 lauk formlega þegar Jóhannes Páll 2. páfi lokaði hurðinni helgu.
  • 2004 - 15 létust, mest ungmenni, þegar tvær sprengjur sprungu í Kandahar í Afganistan.
  • 2016 - Norður-Kórea sprengdi vetnissprengju sem olli jarðskjálfta upp á 5,1 stig.
  • 2018 - Olíuflutningaskipið Sanchi lenti í árekstri við flutningaskip með þeim afleiðingum að það kviknaði í því. Skipið rak logandi um Austur-Kínahaf í 8 daga og olli gríðarlegri mengun.
  • 2019 - Múhameð 5. af Kelantan sagði af sér sem konungur Malasíu.
  • 2021 - Stuðningsmenn Donalds Trump Bandaríkjaforseta réðust á þinghúsið í Washington til að koma í veg fyrir staðfestingu á kosningasigri Joe Biden í forsetakosningunum 2020.

Fædd

Dáin

Hátíðis- og tyllidagar