Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1998

Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 1998 var í 16. sinn sem mótið var haldið. Keppni fór fram í Frakklandi 10. júní til 12. júlí, en áður höfðu Frakkar haldið mótið árið 1938. Þátttökuliðum var fjölgað úr 24 í 32 í fyrsta sinn. Alls voru leiknir 64 leikir á mótinu sem fram fóru í tíu borgum.

Heimamenn Frakka urðu heimsmeistarar eftir 3:0 sigur á Brasilíu í úrslitum. Þetta var í sjötta sinn sem keppnin vannst á heimavelli.

Val á gestgjöfum

HM 1998 var úthlutað á fundi FIFA árið 1992. Svisslendingar hugðust sækjast eftir keppninni, en þurftu að draga sig til baka þar sem boð þeirra uppfyllti ekki kröfur alþjóðaknattspyrnusambandsins. Valið stóð því á milli Frakklands og Marokkó. Frakkar hlutu tólf atkvæði á móti sjö atkvæðum Norður-Afríkubúanna. Síðar komu fram ásakanir um að Marokkóstjórn hefði reynt að beita mútum til að hafa áhrif á valið.

Undankeppni

174 þjóðir skráðu sig til leiks, 24 fleiri en fjórum árum fyrr. Þær börðust um 30 sæti til viðbótar við heimamenn og ríkjandi heimsmeistara. Evrópuliðin kepptu í níu riðlum, sem hver um sig gaf eitt öruggt sæti í úrslitakeppninni. Skotar voru eina annars sætis liðið sem komst beint áfram en hin átta léku umspilsleiki um laus sæti. Athygli vakti að bronslið Svía frá fyrra móti komst ekki í úrslitin.

Áströlum mistókst að komast í úrslitakeppnina eftir að missa 2:0 forystu á heimavelli í umspilsleik gegn Íran niður í jafntefli. Suður-Afríka tryggði sér þátttökuréttinn á sínu fyrsta heimsmeistaramóti

Þátttökulið

24 þjóðir mættu til leiks frá fimm heimsálfum. Króatía, Japan, Jamaíka og Suður-Afríka kepptu í fyrsta sinn til úrslita.

Leikvangar

Saint-DenisMarseilleParisLyonLens
Stade de FranceStade VélodromeParc des PrincesStade de GerlandStade Félix-Bollaert
Áhorfendur: 80,000Áhorfendur: 60,000Áhorfendur: 48,875Áhorfendur: 44,000Áhorfendur: 41,300
NantesToulouseSaint-ÉtienneBordeauxMontpellier
Stade de la BeaujoireStadium de ToulouseStade Geoffroy-GuichardParc LescureStade de la Mosson
Áhorfendur: 39,500Áhorfendur: 37,000Áhorfendur: 36,000Áhorfendur: 35,200Áhorfendur: 34,000

Keppnin

Riðlakeppnin

Keppt var í átta riðlum, hverjum með fjórum keppnisliðum. Tvö efstu liðin fóru í 16-liða úrslit.

Riðill 1

Heimsmeistarar Brasilíumanna lentu í nokkru basli í riðlakeppninni. Þeir unnu nauman sigur á Skotum í opnunarleik mótsins, 2:1 og tryggðu sér sæti í næstu umferð með stórsigri á Marókkó. Afríska liðið vann 3:0 sigur á Skotum í lokaleiknum og virtist öruggt um að komast áfram, en tvö mörk Norðmanna gegn Brasilíu undir lokin tryggðu þeim sigur, 2:1. Norðmenn hafa aldrei tapað fyrir Brasilíu í landsleik karla í knattspyrnu.

SætiLiðLUJTSkFeM.munurStig
1 Brasilía320163+36
2 Noregur312054+15
3 Marokkó31115504
4 Skotland301226-41
10. júní 1998
Brasilía2-1 SkotlandStade de France, Saint-Denis
Áhorfendur: 80.000
Dómari: José María García-Aranda
César Sampaio 5, Boyd 74 (sjálfsm.)Collins 38
20. júní 1998
Marokkó2-2 NoregurStade de la Mosson, Montpellier
Áhorfendur: 29.800
Dómari: Pirom Un-prasert
Hadji 37, Hadda 60Chippo 45+1 (sjálfsm.), Eggen 61
16. júní 1998
Skotland1-1 NoregurParc Lescure, Bordeaux
Áhorfendur: 31.800
Dómari: László Vágner
Burley 66H. Flo 46
16. júní 1998
Brasilía3-9 MarokkóStade de la Beaujoire, Nantes
Áhorfendur: 35.500
Dómari: Nikolai Levnikov
Ronaldo 9, Rivaldo 45+2, Bebeto 50
23. júní 1998
Skotland0-3 MarokkóStade Geoffroy-Guichard, Saint-Étienne
Áhorfendur: 30.600
Dómari: Ali Bujsaim
Bassir 23, 85, Hadda 46
23. júní 1998
Brasilía1-2 NoregurStade Vélodrome, Marseille
Áhorfendur: 55.000
Dómari: Esfandiar Baharmast
Bebeto 78T.A. Flo 83, Rekdal 89

Riðill 2

Austurríkismenn skoruðu tvívegis í uppbótartíma, í jafnteflisleikjum gegn Kamerún og Síle. Það dugði liðinu þó ekki til að komast upp úr riðlinum. Ítalir tóku efsta sætið en Síle fylgdi þar á eftir.

SætiLiðLUJTSkFeM.munurStig
1 Ítalía321073+47
2 Síle30304403
3 Austurríki302134-12
4 Kamerún302125-32
12. júní 1998
Ítalía2-2 SíleParc Lescure, Bordeaux
Áhorfendur: 31.800
Dómari: Lucien Bouchardeau
Vieri 10, R. Baggio 84Salas 45+3, 50
11. júní 1998
Kamerún1-1 AusturríkiStade de Toulouse, Toulouse
Áhorfendur: 33.500
Dómari: Epifanio González
Njanka 77Polster 90+1
17. júní 1998
Síle1-1 AusturríkiStade Geoffroy-Guichard, Saint-Étienne
Áhorfendur: 30.600
Dómari: Gamal Al-Ghandour
Salas 70Vastić 90+2
17. júní 1998
Ítalía3-0 KamerúnStade de la Mosson, Montpellier
Áhorfendur: 29.800
Dómari: Eddie Lennie
Di Biagio 7, Vieri 75, 89
23. júní 1998
Ítalía2-1 AusturríkiStade de France, Saint-Denis
Áhorfendur: 80.800
Dómari: Paul Durkin
Vieri 48, R. Baggio 90Herzog 90+2
23. júní 1998
Síle1-1 KamerúnStade de la Beaujoire, Nantes
Áhorfendur: 35.500
Dómari: László Vágner
Sierra 20M'Boma 56

Riðill 3

Heimamenn Frakka unnu alla þrjá leiki sína. Suður-Afríkumenn áttu kost á að komast áfram með stórsigri á Sádi-Arabíu í lokaleiknum en náðu aðeins jafntefli og Danir fóru í 16-liða úrslitin.

SætiLiðLUJTSkFeM.munurStig
1 Frakkland330091+89
2 Danmörk31113304
3 Suður-Afríka302136-32
4 Sádi-Arabía301227-51
12. júní 1998
Sádi-Arabía0-1 DanmörkStade Félix-Bollaert, Lens
Áhorfendur: 38.100
Dómari: Javier Castrilli
Rieper 69
12. júní 1998
Frakkland3-0 Suður-AfríkaStade Vélodrome, Marseille
Áhorfendur: 55.000
Dómari: Márcio Rezende de Freitas
Dugarry 36, Issa 77 (sjálfsm.), Henry 90+2
18. júní 1998
Suður-Afríka1-1 DanmörkStade de Toulouse, Toulouse
Áhorfendur: 33.500
Dómari: John Toro Rendón
McCarthy 51Nielsen 12
18. júní 1998
Frakkland3-0 Sádi-ArabíaStade de France, Saint-Denis
Áhorfendur: 80.000
Dómari: Arturo Brizio Carter
Henry 37, 78, Trezeguet 68, Lizarazu 85
24. júní 1998
Frakkland2-1 DanmörkStade Gerland, Lyon
Áhorfendur: 39.100
Dómari: Pierluigi Collina
Djorkaeff 12, Petit 56M. Laudrup 42
24. júní 1998
Suður-Afríka2-2 Sádi-ArabíaParc Lescure, Bordeaux
Áhorfendur: 31.800
Dómari: Mario Sánchez
Bartlett 18, 90+3Al-Jaber 45+2, Al-Thunayan 74

Riðill 4

Spánverjar komust í tvígang yfir gegn Nígeríu en töpuðu að lokum 2:3. Það reyndist þeim dýrkeypt því markalaust jafntefli við Paragvæ kostaði liðið sæti í 16-liða úrslitum þrátt fyrir 6:1 stórsigur á lánlausum Búlögurm í lokaumferðinni. Nígeríumenn höfðu tryggt sér toppsætið fyrir síðasta leikinn og máttu því við tapi gegn Paragvæ sem einnig komst áfram.

SætiLiðLUJTSkFeM.munurStig
1 Nígería32015506
2 Paragvæ312041+25
3 Spánn311184+44
4 Búlgaría301217-61
12. júní 1998
Paragvæ0-0 BúlgaríaStade de la Mosson, Montpellier
Áhorfendur: 29.800
Dómari: Abdul Rahman Al-Zeid
13. júní 1998
Spánn2-3 NígeríaStade de la Beaujoire, Nantes
Áhorfendur: 35.500
Dómari: Esfandiar Baharmast
Hierro 21, Raúl 47Adepoju 24, Zubizarreta 73 (sjálfsm.), Oliseh 78
19. júní 1998
Nígería1-0 BúlgaríaParc des Princes, Paris
Áhorfendur: 45.500
Dómari: Mario Sánchez Yantén
Ikpeba 28
19. júní 1998
Spánn0-0 ParagvæStade Geoffroy-Guichard, Saint-Étienne
Áhorfendur: 30.600
Dómari: Ian McLeod
24. júní 1998
Nígería1-3 ParagvæStade de Toulouse, Toulouse
Áhorfendur: 33.500
Dómari: Pirom Un-prasert
Oruma 11Ayala 1, Benítez 58, Cardozo 86
24. júní 1998
Spánn6-1 BúlgaríaStade Félix-Bollaert, Lens
Áhorfendur: 38.100
Dómari: Mario van der Ende
Hierro 6, Luis Enrique 18, Morientes 55, 81, Bachev 88 (sjálfsm.), Kiko 90+4Kostadinov 58

Riðill 5

Belgar féllu taplausir úr keppni eftir þrjú jafntefli í 5. riðli. Holland og Mexíkó skiptu með sér toppsætunum með fimm stig hvort lið en Suður-Kórea rak lestina.

SætiLiðLUJTSkFeM.munurStig
1 Holland312072+55
2 Mexíkó312076+25
3 Belgía30303303
4 Suður-Kórea301229-71
13. júní 1998
Suður-Kórea1-3 MexíkóStade de Gerland, Lyon
Áhorfendur: 39.100
Dómari: Günter Benkö
Ha Seok-ju 27Peláez 50, Hernández 75, 84
13. júní 1998
Holland0-0 BelgíaStade de France, Saint-Denis
Áhorfendur: 77.000
Dómari: Pierluigi Collina
20. júní 1998
Belgía2-2 MexíkóParc Lescure, Bordeaux
Áhorfendur: 31.800
Dómari: Hugh Dallas
Wilmots 42, 47García Aspe 55, Blanco 62
20. júní 1998
Holland5-0 Suður-KóreaStade Vélodrome, Marseille
Áhorfendur: 55.000
Dómari: Ryszard Wójcik
Cocu 37, Overmars 41, Bergkamp 71, Van Hooijdonk 80, R. de Boer 83
25. júní 1998
Holland2-2 MexíkóStade Geoffroy-Guichard, Saint-Étienne
Áhorfendur: 30.600
Dómari: Abdul Rahman Al-Zeid
Cocu 4, R. de Boer 18Peláez 75, Hernández 90+4
25. júní 1998
Belgía1-1 Suður-KóreaParc des Princes, París
Áhorfendur: 45.500
Dómari: Márcio Rezende de Freitas
Nilis 7Yoo Sang-chul 72

Riðill 6

Sameinað lið Serba og Svertfellinga missti niður tveggja marka forystu og gerði jafntefli við Þjóðverja sem að lokum kostaði liðið toppsætið í 6. riðli. Íranir náðu þriðja sætinu eftir tilfinningaríkan sigur á Bandaríkjunum.

SætiLiðLUJTSkFeM.munurStig
1 Þýskaland321062+47
2 Serbía & Svartfjallaland321042+27
3 Íran310224-23
4 Bandaríkin301217-60
14. júní 1998
Serbía & Svartfjallaland1-0 ÍranStade Geoffroy-Guichard, Saint-Étienne
Áhorfendur: 30.600
Dómari: Alberto Tejada
Mihajlović 73
15. júní 1998
Þýskaland1-0 BandarískaParc des Princes, París
Áhorfendur: 45.500
Dómari: Said Belqola
Möller 9, Klinsmann 65
21. júní 1998
Þýskaland2-2 Serbía & SvartfjallalandStade Félix-Bollaert, Lens
Áhorfendur: 38.100
Dómari: Kim Milton Nielsen
Mihajlović 72 (sjálfsm.), Bierhoff 78Mijatović 13, Stojković 52
21. júní 1998
Bandaríska1-2 ÍranStade de Gerland, Lyon
Áhorfendur: 39.100
Dómari: Urs Meier
McBride 87Estili 45, Mahdavikia 84
25. júní 1998
Þýskaland2-0 Serbía & SvartfjallalandStade de la Mosson, Montpellier
Áhorfendur: 29.800
Dómari: Epifanio González
Bierhoff 50, Klinsmann 57
25. júní 1998
Bandaríska0-1 Serbía & SvartfjallalandStade de la Beaujoire, Nantes
Áhorfendur: 35.500
Dómari: Gamal Al-Ghandour
Komljenović 4

Riðill 7

Búist var við því að Englendingar og Kólumbíumenn bitust um toppsætið í 7. riðli en Rúmenar lögðu báðar þessar þjóðir í fyrstu tveimur umferðunum og tryggðu sér toppsætið auðveldlega. England tók annað sætið eftir hreinan úrslitaleik gegn Kólumbíu, en Túnis rak lestina. Upphafsleikur riðilsins, milli Englands og Túnis, var tíðindalítill. Það var ekki fyrr en síðar að frönsk og belgísk lögregluyfirvöld upplýstu að nokkrum mánuðum fyrr hafi þau flett ofan af samsæri tengdu Osama bin Laden þar sem áformað var að fremja hryðjuverk á leiknum og drepa leikmenn enska liðsins með efnavopnum.

SætiLiðLUJTSkFeM.munurStig
1 Rúmenía321042+27
2 England320152+36
3 Jamaíka310213-23
4 Túnis301214-31
15. júní 1998
England2-0 TúnisStade Vélodrome, Marseille
Áhorfendur: 54.587
Dómari: Masayoshi Okada
Shearer 42, Scholes 89
15. júní 1998
Rúmenía1-0 KólumbíaStade de Gerland, Lyon
Áhorfendur: 39.100
Dómari: Lim Kee Chong
Ilie 45+1
22. júní 1998
Kólumbía1-0 TúnisStade de la Mosson, Montpellier
Áhorfendur: 29.800
Dómari: Bernd Heynemann
Preciado 82
22. júní 1998
Rúmenía2-1 EnglandStade de Toulouse, Toulouse
Áhorfendur: 33.500
Dómari: Marc Batta
Moldovan 46, Petrescu 90Owen 81
26. júní 1998
Kólumbía0-2 EnglandStade Félix-Bollaert, Lens
Áhorfendur: 38.100
Dómari: Arturo Brizio Carter
Anderton 20, Beckham 29
26. júní 1998
Rúmenía1-1 TúnisStade de France, Saint-Denis
Áhorfendur: 77.000
Dómari: Eddie Lennie
Moldovan 71Souayah 12

Riðill 8

Áttundi riðill hafði að geyma þrjá af fjórum nýliðum heimsmeistaramótsins. Argentínumenn unnu alla sína leiki og Króatar fylgdu þeim áfram í 16-liða úrslitin.

SætiLiðLUJTSkFeM.munurStig
1 Argentína330070+79
2 Króatía320142+26
3 Jamaíka310239-63
4 Japan300316-30
14. júní 1998
Argentína1-0 JapanStade de Toulouse, Toulouse
Áhorfendur: 33.500
Dómari: Mario van der Ende
Batistuta 28
14. júní 1998
Jamaíka1-3 KróatíaStade Félix-Bollaert, Lens
Áhorfendur: 38.100
Dómari: Vítor Melo Pereira
Earle 45Stanić 27, Prosinečki 53, Šuker 69
20. júní 1998
Jamaíka0-1 KróatíaStade de la Beaujoire, Nantes
Áhorfendur: 35.500
Dómari: Ramesh Ramdhan
Šuker 77
21. júní 1998
Argentína1-0 JapanParc des Princes, París
Áhorfendur: 45.500
Dómari: Rune Pedersen
Ortega 32, 55, Batistuta 73, 78, 83
26. júní 1998
Argentína1-0 KróatíaParc Lescure, Bordeaux
Áhorfendur: 31.000
Dómari: Said Belqola
Pineda 36
26. júní 1998
Japan1-2 JamaíkaStade Félix-Bollaert, Lens
Áhorfendur: 39.100
Dómari: Günter Benkö
Nakayama 74Whitmore 39, 54

Útsláttarkeppnin

Tvö efstu liðin úr hverjum forriðli fóru áfram í 16-liða úrslit sem leikin voru með útsláttarfyrirkomulagi.

16-liða úrslit

Frakkar þurftu framlengingu til að leggja Paragvæ að velli í 16-liða úrslitunum. Þjóðverjar komust í hann krappann á móti Mexíkó en tryggðu sér sigurinn með tveimur mörkum á síðasta stundarfjórðungnum. Edgar Davids tryggði Hollendingum sæti í næstu umferð með marki í uppbótartíma gegn Júgóslavíu. Mesta dramatíkin var þó í viðureign Englendinga og Argentínumanna þar sem David Beckham var rekinn af velli fyrir að slæma fæti til Diego Simeone áður en grípa þurfti til framlengingar og vítaspyrnukeppni.

27. júní 1998
Ítalía1-0 NoregurStade Vélodrome, Marseille
Áhorfendur: 55.000
Dómari: Bernd Heynemann, Þýskalandi
Vieri 18
27. júní 1998
Brasilía4-1 SíleParc des Princes, París
Áhorfendur: 45.500
Dómari: Marc Batta, Frakklandi
Sampaio 11, 26, Ronaldo 45+3Salas 70
28. júní 1998
Frakkland1-0 (e.framl.) ParagvæStade Félix-Bollaert, Lens
Áhorfendur: 31.800
Dómari: Ali Bujsaim, Sameinuðu arabísku furstadæmunum
Blanc 114 (gullmark)
28. júní 1998
Nígería1-4 DanmörkStade de FranceParís
Áhorfendur: 77.800
Dómari: Urs Meier, Sviss
Babangida 77Møller 3, B. Laudrup 114, Sand 58, Helveg 76
29. júní 1998
Þýskaland2-1 MexíkóStade de la Mosson, Montpellier
Áhorfendur: 29.800
Dómari: Vítor Melo Pereira, Portúgal
Klinsmann 74, Bierhoff 86Hernández 47
29. júní 1998
Holland2-1 JúgóslavíaStade de Toulouse, Toulouse
Áhorfendur: 33.500
Dómari: José María García-Aranda, Spáni
Bergkamp 38, Davids 890+2Komljenović 48
30. júní 1998
Rúmenía0-1 KróatíaParc Lescure, Bordeaux
Áhorfendur: 31.000
Dómari: Javier Castrilli, Argentínu
Šuker 45+2
30. júní 1998
Argentína2-2 (6-5 e.vítake.) EnglandStade Geoffroy-Guichard, Saint-Étienne
Áhorfendur: 30.600
Dómari: Kim Milton Nielsen, Danmörku
Batistuta 5 (vítasp.), Zanetti 45+1Shearer 9 (vítasp.), Owen 16

Fjórðungsúrslit

Líkt og á HM fjórum árum fyrr féllu Ítalir úr keppni eftir vítaspyrnukeppni. Brasilíumenn lentu í miklum vandræðum með spræka Dani og Króatar komu mjög á óvart með stórsigri á Þjóðverjum. Hollendingar komust í undanúrslitin með sigurmarki á lokamínútunni.

3. júlí 1998
Ítalía0-0 (3-4 e.vítake.) FrakklandStade de FranceParís
Áhorfendur: 77.000
Dómari: Hugh Dallas, Skotlandi
3. júlí 1998
Brasilía3-2 DanmörkStade de la Beaujoire, Nantes
Áhorfendur: 35.500
Dómari: Gamal Al-Ghandour, Egyptalandi
Bebeto 10, Rivaldo 25, 59M. Jørgensen 2, B. Laudrup 50
4. júlí 1998
Holland2-1 ArgentínaStade Vélodrome, Marseille
Áhorfendur: 55.000
Dómari: Arturo Brizio Carter, Mexíkó
Kluivert 12, Bergkamp 90López 17
4. júlí 1998
Þýskaland0-3 KróatíaStade de Gerland, Lyon
Áhorfendur: 39.100
Dómari: Rune Pedersen, Noregi
Jarni 45+3, Vlaović 80, Šuker 85

Undanúrslit

Patrick Kluivert jafnaði metin fyrir Hollendinga í blálokin á móti Brasilíu, en það kom fyrir lítið þar sem Suður-Ameríkumennirnir unnu í vítakeppni. Í hinni undanúrslitaviðureigninni virtist ævintýri Króata ætla að halda áfram þegar Davor Šuker kom þeim yfir en tvö mörk frá Lilian Thuram komu Frökkum í sinn fyrsta úrslitaleik í sögunni.

7. júlí 1998
Brasilía1-1 (5-3 e.framl.) HollandStade Vélodrome, Marseille
Áhorfendur: 54.000
Dómari: Ali Bujsaim, Sameinuðu arabísku furstadæmunum
Ronaldo 46Kluivert 87
8. júlí 1998
Frakkland2-1 KróatíaStade de FranceParís
Áhorfendur: 76.000
Dómari: José María García-Aranda, Spáni
Thuram 47, 70Šuker 46

Bronsleikur

Króatar mættu einbeittari til leiks í viðureigninni um þriðja sætið, staðráðnir í að vinna til verðlauna á sínu fyrsta heimsmeistaramóti. Þeir lögðu ekki minni áherslu á að koma Šuker á markalistann til að tryggja honum gullskóinn. Hvort tveggja tókst.

11. júlí 1998
Holland1-2 KróatíaParc des Princes, París
Áhorfendur: 45.500
Dómari: Epifanio González
Zenden 22Prosinečki 14, Šuker 36

Úrslitaleikur

Í aðdraganda úrslitaleiksins hverfðust umræður manna um það hvort Ronaldo yrði með Brasilíumönnum. Í upphaflegri liðsuppstillingu var ekki gert ráð fyrir honum í byrjunarliði en því var þó breytt á síðustu stundu. Ronaldo virtist ekki sjálfum sér líkur í leiknum og kom lítið við sögu. Í kjölfarið fóru af stað háværar umræður um að hann hefði ekki verið leikfær en engu að síður látinn spila að kröfu styrktaraðilans Nike. Hvað sem því líður virtust Brasilíumenn illa tilbúnir í verkefnið og Zidane skoraði tvívegis í fyrri hálfleik. Emmanuel Petit gulltryggði sigurinn undi lokin, 3:0 og Frakkar fögnuðu sínum fyrsta heimsmeistaratitli í sögunni. Nokkrum dögum eftir sigurinn tilkynnti þjálfarinn Aimé Jacquet að hann hefði látið af störfum.

12. júlí 1998
Frakkland3:0 BrasilíaStade de France, París
Áhorfendur: 75.000
Dómari: Said Belqola
Zidane 27, 45+1, Petit 90+3

Markahæstu leikmenn

Davor Šuker hreppti gullskó FIFA með sex mörk skoruð. Alls skiptu 112 leikmenn á milli sín 171 marki.

6 mörk
  • Davor Šuker
5 mörk
  • Gabriel Batistuta
  • Christian Vieri
4 mörk