Pelé

Brasilískur knattspyrnumaður (1940-2022)

Edson Arantes do Nascimento eða Pelé (f. 23. október 1940, d. 29. desember 2022) var brasilískur knattspyrnumaður. Hann spilaði sem framherji og er talinn einn bestu leikmanna allra tíma.Hann skoraði 1.281 mörk í 1.366 leikjum en sumir leikjanna voru óopinberir. Guinness heimsmetabókin viðurkennir metið en FIFA ekki. Samt sem áður er hann meðal markahæstjt manna allra tíma.

Pelé
Upplýsingar
Fullt nafnEdson Arantes do Nascimento
Fæðingardagur23. október 1940(1940-10-23)
Fæðingarstaður   Três Corações, Minas Gerais, Brasilía
Dánardagur   29. desember 2022 (82 ára)
Dánarstaður   São Paulo, Brasilíu
Hæð1,73m
LeikstaðaFramherji
Yngriflokkaferill
1953-1956Bauru
Meistaraflokksferill1
ÁrLiðLeikir (mörk)
1956-1974Santos FC638 (619)
1975-1977New York Cosmos56 (31)
Landsliðsferill
1957-1971Brasilía92 (77)

1 Leikir með meistaraflokkum og mörk
talið í aðaldeild liðsins.

Pelé hóf að spila með brasilíska liðinu Santos FC aðeins 15 ára gamall og brasilíska landsliðinu 16 ára gamall. Með Santos vann hann 6 brasilíska deildartitla, ásamt fleiri titlum í fylkinu Sao Paulo (Campeonato Paulista keppnin) og bikartitla.

Hann vann 3 heimsmeistaratitla með landsliðinu: 1958, 1962 og 1970. Eftir að hann lagði skóna á hilluna starfaði hann í þágu knattspyrnu á ýmsan máta.

Pelé lést árið 2022 en hann hafði glímt við veikindi síðustu árin.[1]

Árið 1991 heimsótti hann Ísland og fór víða um landið og kynnti sér knattspyrnu. [2]

Tenglar

Tilvísanir

  Þessi knattspyrnugrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.