Rúbidín

Frumefni með efnatáknið Rb og sætistöluna 37

Rúbidín (úr latínu rubidus, „dökkrauður“) er frumefni með efnatáknið Rb og sætistöluna 37 í lotukerfinu. Þetta er mjúkt, silfurhvítt málmkennt frumefni í flokki alkalímálma. Náttúruleg samsæta rúbidíns, 87Rb, er lítillega geislavirk. Rúbidín er gríðarlega hvarfgjarnt með svipaða eiginleika og önnur frumefni í flokki 1, til dæmis brennur það fyrirvaralaust ef það kemst í snertingu við loft. Nafnið er dregið af því að það brennur með rauðfjólubláum loga. Það var fyrst uppgötvað með litrófsgreiningu árið 1861.

 Kalín 
RúbidínStrontín
 Sesín 
EfnatáknRb
Sætistala37
EfnaflokkurAlkalímálmur
Eðlismassi1532,0 kg/
Harka0,3
Atómmassi85,4678 g/mól
Bræðslumark312,46 K
Suðumark961,0 K
Efnisástand
(við staðalaðstæður)
Fast efni
Lotukerfið

Rúbidín nýtist engum lífverum svo vitað sé en lifandi frumur taka það upp á sama hátt og kalín. Það er í 23. sæti yfir algengustu frumefni jarðskorpunnar. Það er því álíka algengt og sink og algengara en kopar.

Einkenni

Rúbidín bráðnar við 39,3 °C. Líkt og aðrir alkalímálmar hvarfast það hratt við vatn. Efnahvarfið er venjulega svo útvermið að það kveikir í vetnisgasinu sem verður til. Rúbidín hefur líka sést brenna fyrirvaralaust í snertingu við loft.

Líkt og hinir alkalímálmarnir myndar það kvikasilfursmelmi með kvikasilfri og getur myndað málmblöndu með gulli, sesíni, kalíni og natríni.

Notkun

Rúbidín er lítið notað í iðnaði en eiginleikar efnisins eru nýttir við rannsóknir og þróun á sviði efnafræði og rafeindatækni. Það er stundum notað sem ódýr valkostur við sesín í mælitækjum.

Það er stundum notað í flugelda til að gefa fjólubláan loga.

  Þessi efnafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.