2. maí

dagsetning
AprMaíJún
SuÞrMiFiLa
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293031
2024
Allir dagar


2. maí er 122. dagur ársins (123. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 243 dagar eru eftir af árinu.

Atburðir

  • 1368 - Þorsteinn Eyjólfsson hirðstjóri var hertekinn af lýbskum kaupmönnum á heimleið frá Noregi og fluttur til Lübeck, þar sem hann sat í fangelsi til 29. júlí.
  • 1536 - Anne Boleyn, Englandsdrottning, var handtekin og ásökuð um sifjaspell, framhjáhald og drottinsvik.
  • 1615 - Þrettán skip fórust og áttatíu menn drukknuðu í aftakaveðri á Breiðafirði.
  • 1641 - Vilhjálmur af Óraníu gekk að eiga Henríettu Maríu Stúart, níu ára dóttur Karls 1. Englandskonungs.
  • 1668 - Fyrsti friðarsamningurinn í Aix-en-Chapelle batt enda á Valddreifingarstríðið. Frakkar héldu Lille og svæðum á Flandri en létu Franche-Comté eftir.
  • 1670 - Hudsonflóafélagið (The Governor and Company of Adventurers of England trading into Hudson's Bay) var stofnað með konungsleyfi.
  • 1803 - Bandaríkjamenn keyptu Louisiana af Frökkum.
  • 1808 - Sjálfstæðisstríð Spánar gegn hernámsliði Frakka hófst.
  • 1816 - Leópold af Saxe-Coburg, síðar fyrsti konungur Belgíu, giftist Karlottu Ágústu prinsessu af Wales.
  • 1822 - Skipbrotsmenn af tveimur erlendum skipum komust til lands, á Vopnafirði, sextán manns, og við Glettinganes, sex manns. Bæði skipin höfðu farist í hafís.
  • 1829 - Bretar stofnuðu fanganýlenduna við Svansá sem var upphafið að því sem varð nýlendan og síðar fylkið Vestur-Ástralía.
  • 1897 - St. Paul, franskt spítalaskip, strandaði við Klöpp í Reykjavík. Skipið náðist út.
  • 1919 - Tuttugu ljósmæður stofnuðu Ljósmæðrafélag Íslands, fyrsta stéttarfélag faglærðra kvenna á Íslandi.
  • 1942 - Listamannadeilan: Jónas frá Hriflu lét taka niður háðungarsýningu á verkum íslenskra listamanna og setja í hennar stað upp sýningu á verkum sem væru til eftirbreytni.
  • 1945 - Seinni heimsstyrjöldin: Sovétmenn lýstu því yfir að Berlín væri fallin í hendur þeirra.
  • 1957 - Tvær nýjar millilandaflugvélar, Hrímfaxi og Gullfaxi, komu til landsins.
  • 1968 - Maíuppþotin í París hófust með því að stjórn Parísarháskóla í Nanterre ákvað að loka skólanum vegna árekstra við stúdenta.
  • 1970 - Búrfellsvirkjun var vígð og formlega tekin í notkun.
  • 1972 - 90 létust í eldsvoða í silfurnámu í Idaho í Bandaríkjunum.
  • 1982 - Falklandseyjastríðið: Breski kjarnorkuknúni kafbáturinn HMS Conqueror sökkti argentíska varðskipinu ARA General Belgrano. Alls létu 323 lífið en 770 var bjargað.
  • 1984 - Garðyrkjuhátíðin International Garden Festival hófst í Liverpool á Englandi.
  • 1986 - Heimssýningin Expo 1986 var opnuð í Vancouver í Kanada.
  • 1989 - Ungverjar hófu að taka Járntjaldið niður þegar 240 km af gaddavír voru fjarlægðir.
  • 1992 - Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, undirritaði samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Samningurinn er um tuttugu þúsund blaðsíður.
  • 1993 - Fyrsti þátturinn í íslensku sjónvarpsþáttaröðinni Þjóð í hlekkjum hugarfarsins var sýndur á RÚV.
  • 1997 - Tony Blair tók við embætti forsætisráðherra Bretlands eftir 18 ára stjórnartíð Breska íhaldsflokksins.
  • 1998 - Ákveðið var að evran skyldi tekin upp 1. janúar 1999. Danmörk, Svíþjóð, Bretland og Grikkland ákváðu af ólíkum ástæðum að taka hana ekki upp.
  • 2000 - GPS-kerfið var opnað að fullu fyrir almenna notendur.
  • 2010 - Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn samþykktu 110 milljarða evru lán til Grikklands og settu skilyrði um mikinn niðurskurð og aðhald í ríkisfjármálum.
  • 2011 - Osama bin Laden, leiðtogi hryðjuverkasamtakanna Al-Kaída, var ráðinn af dögum í árás Bandaríkjahers á felustað hans í Abbottobad í Pakistan.
  • 2012 - Pastelútgáfa málverksins Ópið eftir Edvard Munch seldist fyrir 120 milljón dali á uppboði í New York-borg.
  • 2014 - Bruninn í verkalýðsbyggingunni í Odessa 2014: 42 andstæðingar stjórnarinnar í Kíev létust í bruna í byggingu í Odessa eftir fjölmenn mótmæli.
  • 2014 - Yfir 2000 manns fórust í skriðuföllum í norðurhluta Afganistan.

Fædd

Dáin