20. september

dagsetning
ÁgúSeptemberOkt
SuÞrMiFiLa
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930
2024
Allir dagar


20. september er 263. dagur ársins (264. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 102 dagar eru eftir af árinu.

Atburðir

  • 1066 - Haraldur harðráði og Tósti Guðinason unnu sigur á ensku jörlunum Mörukára og Valþjófi í orrustu við Úsu nálægt Jórvík.
  • 1187 - Umsátrið um Jerúsalem: Saladín hertók borgina.
  • 1159 - Rolando Bandinelli varð Alexander 3. páfi.
  • 1276 - Pietro Luliani varð Jóhannes 21. páfi.
  • 1519 - Floti Magellans sigldi frá Spánarströndum í upphafi hnattferðar hans.
  • 1604 - Spánverjar, undir stjórn Ambrosio Spinola, lögðu Oostende undir sig eftir þriggja ára umsátur.
  • 1643 - Enska borgarastyrjöldin: Her konungssinna hörfaði frá fyrstu orrustunni við Newbury.
  • 1654 - Tveir menn voru brenndir á báli fyrir galdur í Trékyllisvík á Ströndum.
  • 1697 - Ryswick-samningurinn batt enda á Níu ára stríðið milli Frakklands og Bandalagsins mikla. Samningurinn leysti ekki nein deilumál og fimm árum síðar hófst því Spænska erfðastríðið milli sömu aðila.
  • 1870 - Ítalska konungsríkið hertók Róm eftir stutt átök við hersveitir Páfaríkisins. Borgin var gerð að höfuðborg Ítalíu árið eftir.
  • 1900 - Kirkjurokið: Yfir þrjátíu manns fórust í ofsaveðri, sem olli jafnframt slysum og tjóni á húsum. Kirkjurnar á Urðum og Upsum í Svarfaðardal brotnuðu í spón. Átján menn úr Ketildölum fórust í sjó, þar af 15 úr Selárdal.
  • 1940 - Petsamoförin hófst á því að skipið Esja lagði úr höfn í Reykjavík.
  • 1963 - Í borgarstjórn Reykjavíkur var samþykkt að leyfa kvöldsölu um lúgur til klukkan 22 og borgarráði var heimilað að framlengja söluleyfi til klukkan 23.30 á kvöldin. Rúmur aldarfjórðungur leið þar til sölutími var gefinn frjáls.
  • 1970 - Allt fólk var flutt frá Svalbarða þegar eldgos hófst í eynni.
  • 1976 - Fyrsta „alþjóðlega pönkhátíðin“ var haldin í 100 Club í London.
  • 1976 - Fjarskiptafyrirtækið Intersputnik var stofnað í Moskvu.
  • 1977 - Petrosavodskfyrirbærið sást frá Sovétríkjunum og fleiri löndum í Norður-Evrópu.
  • 1978 - Sænska lögreglan réðist inn í Mullvaden-hverfið í Stokkhólmi sem ungmenni höfðu haldið í eitt ár til að mótmæla niðurrifi húsa.
  • 1979 - Til Íslands komu 34 flóttamenn frá Víetnam sem var stærsti hópur flóttamanna sem komið hafði til Íslands.
  • 1979 - Barrakúdaaðgerðin: Franski herinn steypti Jean-Bedél Bokassa af stóli í Mið-Afríkulýðveldinu.
  • 1981 - 300 létust þegar brasilíska fljótaskipinu Sobral Santos hvolfdi á Amasónfljóti.
  • 1984 - 24 létust þegar bílasprengja á vegum Hezbollah sprakk við bandaríska sendiráðið í Beirút.
  • 1991 - Yfir 3000 manns sneru baki í Arne Myrdal þegar hann hugðist aftur halda ræðu í Brumunddal í Noregi.
  • 1992 - Frakkar samþykktu Maastricht-sáttmálann með 50,5% atkvæða.
  • 1996 - Tígrishellisleirbrennslan uppgötvaðist í Hangzhou í Kína.
  • 1996 - Pakistanski stjórnarandstöðuleiðtoginn Murtaza Bhutto lést í skotbardaga við lögreglu.
  • 2001 - George W. Bush lýsti yfir „stríði gegn hryðjuverkum“ í ávarpi til Bandaríkjaþings.
  • 2003 - Lettar samþykktu inngöngu í Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslu.
  • 2004 - Wikipedia náði milljón greinum á 100 tungumálum og var þá orðin stærsta alfræðirit veraldar.
  • 2004 - Verkfall grunnskólakennara 2004 hófst en það stóð í 39 daga og er eitt það lengsta í sögu íslenskra skóla.
  • 2004 - Bandaríkin afnámu viðskiptabann gegn Líbýu.
  • 2007 - Aðgerð Pólstjarnan: lögregla og tollayfirvöld gerðu tugi kílóa af amfetamíni upptæk á Fáskrúðsfirði sem reynt var að smygla með seglskútu.
  • 2008 - 60 létust í sjálfsmorðssprengjuárás á Hotel Marriott í Islamabad í Pakistan.
  • 2014 - Tyrkland opnaði landamæri sín fyrir 70.000 Kúrdum á flótta undan Íslamska ríkinu í Sýrlandi.
  • 2015 - Flokkurinn SYRIZA hélt meirihluta sínum eftir þingkosningar í Grikklandi.
  • 2017 - Anúbisaðgerðin: Spænska lögreglan hóf aðgerðir til að koma í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Katalóníu.
  • 2018 - Farþegaferjunni Nyerere hvolfdi á Viktoríuvatni með þeim afleiðingum að 228 fórust.
  • 2019 - Alþjóðlegt loftslagsverkfall fór fram um allan heim.

Fædd

Dáin