20. ágúst

dagsetning
JúlÁgústSep
SuÞrMiFiLa
123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031
2024
Allir dagar


20. ágúst er 232. dagur ársins (233. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 133 dagar eru eftir af árinu.

Atburðir

  • 1205 - Hinrik af Flæmingjalandi var krýndur konungur Latverska keisaradæmisins eftir að fregnir bárust af láti Baldvins bróður hans.
  • 1456 - Vlad Drakúla felldi Vladislav 2. fursta af Vallakíu í bardaga og gerðist sjálfur fursti.
  • 1609 - Íbúar Silesíu fengu trúfrelsi.
  • 1612 - Nornafárið í Pendle: Átta konur og tveir karlmenn voru hengd fyrir galdur í Lancaster-kastala.
  • 1672 - Hollenski stjórnmálamaðurinn Johan de Witt var myrtur ásamt bróður sínum af æstum múg í Haag.
  • 1882 - 1812-forleikurinn eftir Tsjaíkovskí var frumfluttur í Moskvu.
  • 1888 - Þingvallafundur var haldinn um stjórnarskrármálið.
  • 1898 - Á Þingvöllum var vígt veitinga- og gistihúsið Valhöll og dró það nafn af búð Snorra Sturlusonar. Húsið var reist þar sem búðin stóð forðum, en var síðar flutt á annan stað þar sem það stóð þar til það eyðilagðist í eldi árið 2009.
  • 1906 - Grettisbeltið var veitt á Akureyri í fyrsta sinn fyrir sigur í glímu.
  • 1914 - Fyrri heimsstyrjöldin: Þjóðverjar náðu Brussel á sitt vald.
  • 1933 - Fyrsta ferð á bíl var farin yfir Sprengisand og komu ferðalangar að Mýri í Bárðardal eftir fimm daga leiðangur úr Landsveit.
  • 1938 - Bifreið ók út í Tungufljót. Guðrún Lárusdóttir alþingismaður og tvær dætur hennar drukknuðu en eiginmaður hennar og bílstjórinn björguðust.
  • 1944 - Reykjavíkurborg tók við rekstri Strætisvagna Reykjavíkur í fyrra sinn.
  • 1960 - Senegal klauf sig út úr Malísambandinu.
  • 1968 - Vorið í Prag var brotið á bak aftur af 200.000 hermönnum og 5.000 skriðdrekum frá Varsjárbandalaginu.
  • 1975 - Fjallið Mont Blanc (Hvítafjall) var klifið af íslenskri konu í fyrsta sinn og var það Ólafía Aðalsteinsdóttir.
  • 1975 - NASA sendi könnunargeimfarið Viking 1 í átt til Mars.
  • 1977 - Voyager-áætlunin: Geimfarinu Voyager 2 var skotið á loft.
  • 1982 - Átján manna hópur kleif Eldey í fyrsta sinn síðan 1971. Í hópnum var ein kona, Halldóra Filippusdóttir, og var hún fyrst kvenna til að klífa eyjuna. Eldey var fyrst klifin árið 1894.
  • 1982 - Marsvínavaða, yfir tvö hundruð dýr, stefndi á land við Rif á Snæfellsnesi, en það tókst að snúa þeim frá landi og reka á haf út. Ekki hefur fyrr tekist að bjarga svo stórum hópi.
  • 1982 - Borgarastyrjöldin í Líbanon: Fjölþjóðlegt herlið hóf eftirlit með brottflutningi meðlima PLO frá Beirút.
  • 1985 - Íran-Kontra-hneykslið: Fyrstu flugskeytin af BGM-71 TOW-gerð voru send til Íran í skiptum fyrir gísla í Líbanon.
  • 1986 - Póststarfsmaðurinn Patrick Sherrill skaut 14 samstarfsmenn sína og framdi síðan sjálfsmorð í Edmond, Oklahóma.
  • 1989 - Marchioness-slysið: 51 drukknaði þegar dýpkunarprammi sigldi á skemmtibátinn Marchioness á Thames í London.
  • 1991 - Eistland lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum.
  • 1992 - Krifast-vegtengingin milli Kristansund og meginlandsins í Noregi var opnuð.
  • 1993 - Oslóarsamkomulagið var undirritað milli PLO og Ísraels.
  • 1994 - Afríkufíllinn Tyke kramdi þjálfara sinn, Allen Campbell, til bana fyrir framan hundruð áhorfenda á sirkussýningu í Honolúlú.
  • 1997 - Yfir 60 voru myrtir og 15 rænt í Souhane-fjöldamorðunum í Alsír.
  • 2008 - 154 manns létust í flugslysi í Madrid.
  • 2009 - Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ tók til starfa.
  • 2011 - Borgarastyrjöldin í Líbíu: Uppreisnarher réðist inn í Trípólí og hrakti ríkisstjórn Muammar Gaddafis frá völdum.
  • 2015 - Alexis Tsipras forsætisráðherra Grikklands sagði af sér og boðaði kosningar í september.
  • 2016 - Yfir 50 létust í árás á brúðkaupsveislu í Tyrklandi.
  • 2023 - England og Spánn spiluðu í úrslitum Heimsmeistaramót knattspyrnu kvenna í Sydney, Ástralíu. Spánn vann leikinn 1-0 og varð heimsmeistari í fyrsta sinn.


Fædd

Dáin