31. ágúst

dagsetning
JúlÁgústSep
SuÞrMiFiLa
123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031
2024
Allir dagar


31. ágúst er 243. dagur ársins (244. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 122 dagar eru eftir af árinu.

Atburðir

  • 1314 - Hákon háleggur færði höfuðborg Noregs frá Björgvin til Óslóar og lét reisa Akershuskastala.
  • 1422 - Hinrik 6. varð Englandskonungur aðeins níu mánaða gamall.
  • 1522 - Adriano Florensz varð Hadríanus 6. páfi.
  • 1919 - Myndlistarsýning var opnuð almenningi í barnaskólanum í Reykjavík. Var þetta fyrsta slík sýning á Íslandi. 90 verk eftir 15 listamenn voru sýnd.
  • 1944 - Íþróttabandalag Reykjavíkur var stofnað.
  • 1955 - Langt suðvestur í hafi, um 100 mílur út af Reykjanesi, sáust borgarísjakar á reki og þóttu þeir vera á óvenjulegum stað.
  • 1958 - Bandaríski kjarnorkukafbáturinn USS Nautilus sigldi undir Norðurheimskautið.
  • 1974 - Kanasjónvarpið lagði niður gamlan sjónvarpssendi og sendi eftir það út um kapal.
  • 1978 - Líbanski trúarleiðtoginn Musa al-Sadr hvarf sporlaust í Líbýu.
  • 1980 - Á Fljótsdalshéraði fannst silfursjóður mikill, talinn frá landnámsöld. Löngu síðar spunnust miklar deilur um aldur sjóðsins.
  • 1980 - Pólska stjórnin gaf eftir og heimilaði stofnun Samstöðu, fyrstu frjálsu verkalýðssamtakanna í Sovétblokkinni.
  • 1981 - Tuttugu slösuðust þegar sprengja sprakk á Ramsteinherstöðinni í Vestur-Þýskalandi.
  • 1984 - Finnskt skip strandaði í Kverkinni í Eystrasalti. 150-200 tonn af olíu láku út og ullu miklu tjóni á lífríkinu við strendur hafsins.
  • 1985 - Bandaríski fjöldamorðinginn Richard Ramirez var handtekinn í Los Angeles.
  • 1986 - Sovéska farþegaskipið Admiral Nakimov rakst á flutningaskip í Svartahafi og sökk nær samstundis. 398 manns fórust.
  • 1986 - Flutningaskipið Khian Sea lagði úr höfn í Philadelphia með 14.000 tonn af eitruðum úrgangi. Skipið sigldi síðan um höfin í leit að stað til að kasta úrganginum sem varð á endanum við Haítí.
  • 1987 - Léttlestarkerfið Docklands Light Railway var opnað í London.
  • 1987 - Sjöunda hljómplata Michael Jackson, Bad, kom út.
  • 1991 - Kirgisistan og Úsbekistan lýstu yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum.
  • 1991 - Fjöldaslagsmál brutust út í Brumunddal í Noregi þegar leiðtogi hreyfingar gegn innflytjendum, Arne Myrdal, hélt þar ræðu.
  • 1992 - Stærsta og íburðarmesta skemmtiferðaskip, sem lagst hafði við bryggju í Reykjavík var bundið í Sundahöfn. Þetta var Crystal Harmony, 240 metra langt skip. Það kom aftur tveimur árum síðar.
  • 1994 - Lengsta skák í skáksögu Íslands var til lykta leidd með jafntefli eftir 183 leiki. Jóhann Hjartarson og Jón Garðar Viðarsson tefldu á Skákþingi Íslands í Vestmannaeyjum.
  • 1994 - Írski lýðveldisherinn tilkynnti að öllum herðnaðaraðgerðum yrði hætt.
  • 1994 - Rússneski herinn hvarf frá Eistlandi og Lettlandi.
  • 1996 - Fyrra Téténíustríðinu lauk með vopnahléi.
  • 1997 - Díana prinsessa af Wales og Dodi Al-Fayed létust í bílslysi í París.
  • 2001 - Heimsráðstefna gegn kynþáttahyggju hófst í Durban í Suður-Afríku.
  • 2004 - 16 létust í sjálfsmorðssprengjuárás á vegum Hamas í Ísrael.
  • 2004 - 10 létust í sjálfsmorðssprengjuárás í Moskvu.
  • 2005 - Fríverslunarsamningur milli Íslands og Færeyja, Hoyvíkursamningurinn, var undirritaður í Færeyjum.
  • 2005 - 953 létust í troðningi á Al-Aaimmah-brúnni í Bagdad.
  • 2006 - Málverkið Ópið eftir Edvard Munch fannst í Osló. Því hafði verið rænt 2 árum fyrr.
  • 2008 - Danska dagblaðið Nyhedsavisen lagði upp laupana.
  • 2012 - Armenía sleit stjórnmálatengsl við Ungverjaland eftir framsal og síðan náðun Ramil Safarov í Aserbaísjan sem var ákærður fyrir morð á armenskum hermanni.
  • 2016 - Brasilíuþing samþykkti vantraust á forseta landsins, Dilma Rousseff.

Fædd

Dáin