23. febrúar

dagsetning
JanFebrúarMar
SuÞrMiFiLa
123
45678910
11121314151617
18192021222324
2526272829
2024
Allir dagar


23. febrúar er 54. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 311 dagar (312 á hlaupári) eru eftir af árinu.

Atburðir

  • 532 - Justinianus 1. keisari fyrirskipaði byggingu kirkjunnar Ægisif.
  • 1455 - Johann Gutenberg prentaði sína fyrstu Biblíu.
  • 1574 - Fimmta trúarbragðastríðið gegn húgenottum hófst í Frakklandi.
  • 1660 - Karl 11. varð konungur Svíþjóðar.
  • 1732 - Óperan Orlando eftir Händel var frumflutt í London.
  • 1836 - Orrustan um Alamo hófst í Texas.
  • 1889 - Hið íslenska kennarafélag var stofnað.
  • 1904 - Bandaríkjamenn keyptu landræmu undir Panamaskurðinn fyrir tíu milljónir dollara.
  • 1912 - Þilskipið Geir frá Hafnarfirði fórst í ofsaveðri á Selvogsbanka og með því 27 manna áhöfn. Í sama veðri tók út fimm menn af skútunni Langanes og einn af Haffara.
  • 1919 - Benito Mussolini myndaði fasistaflokkinn á Ítalíu.
  • 1934 - Leópold 3. varð konungur Belgíu eftir lát föður síns, Alberts 1.
  • 1941 - Plútóníum var í fyrsta sinn einangrað og framleitt af Dr. Glenn T. Seaborg.
  • 1947 - Alþjóðlega staðlastofnunin var stofnuð.
  • 1968 - Hjartasjúkdómafélagið var stofnað á Íslandi.
  • 1970 - Gvæjana gerðist lýðveldi, en var áfram hluti af Breska samveldinu.
  • 1976 - Árekstur varð milli varðskipsins Óðins og freigátunnar HMS Scylla.
  • 1979 - Nýfasistarnir Franco Freda, Giovanni Ventura og Guido Giannettini voru dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir blóðbaðið á Piazza Fontana tíu árum áður. Á síðari dómstigum var þeim sleppt vegna skorts á sönnunargögnum.
  • 1980 - Æðstiklerkurinn Ruhollah Khomeini sagði að þingheimur Írans myndi ákveða örlög bandarískra fanga.
  • 1981 - Antonio Tejero ásamt meðlimum úr spænsku herlögreglunni reyndi að fremja valdarán á Spáni en mistókst.
  • 1982 - Með þjóðaratkvæðagreiðslu á Grænlandi var ákveðið að landið stæði utan Evrópusambandsins.
  • 1985 - Torfi Ólafsson setti heimsmet í réttstöðulyftu í flokki unglinga, lyfti 322,5 kg.
  • 1987 - Konur voru fulltrúar á búnaðarþingi í fyrsta sinn. Þær voru Ágústa Þorkelsdóttir og Annabella Harðardóttir.
  • 1987 - Sprengistjarna sást í Stóra Magellanskýinu.
  • 1988 - Málverki Edvards Munch, Vampyr, var stolið frá Nasjonalgalleriet í Osló.
  • 1990 - Ný lög um stjórnarráð Íslands voru samþykkt og umhverfisráðuneyti Íslands komið á fót. Fyrsti umhverfisráðherrann var Júlíus Sólnes.
  • 1992 - Skuttogarinn Krossnes frá Grundarfirði sökk á Halamiðum. Þrír fórust en níu var bjargað. Þetta var fyrsti íslenski skuttogarinn sem sökk.
  • 1995 - Dow Jones-vísitalan náði í fyrsta sinn yfir 4000 stig við lokun.
  • 1997 - Eldur gaus upp í rússnesku geimstöðinni Mír.
  • 1999 - John William King var dæmdur sekur fyrir morðið á James Byrd Jr.
  • 1999 - 31 lést þegar snjóflóð rann yfir þorpið Galtür í Austurríki.
  • 2006 - 56 létust þegar þak yfir grænmetismarkaði í Moskvu hrundi undan snjóþunga.
  • 2009 - Borgarahreyfingin tilkynnti framboð sitt til Alþingis.
  • 2010 - Óþekktir aðilar helltu milljónum lítra af olíu í ána Lambro á Ítalíu sem olli umhverfishörmungum í Langbarðalandi og Emilíu-Romagna.
  • 2019 - Nicolás Maduro sleit stjórnmálasamband Venesúela við Kólumbíu vegna sendinga þeirra á mannúðaraðstoð yfir landamærin.
  • 2020 – Versti Kalimavindur síðustu 40 ára gekk yfir Kanaríeyjar. Öllum flugvöllum eyjanna var lokað í þrjá daga.

Fædd

Dáin