Kýrillískt stafróf

Kyrillískt stafróf er stafróf notað til að rita sex slavnesk mál: rússnesku, úkraínsku, hvítrússnesku, serbnesku, makedónsku og búlgörsku ásamt ýmsum tungumálum í fyrrverandi Sovétríkjunum.

Það er einnig notað af þeim þjóðum sem höfðu ekkert ritmál fyrr en Sovétmenn færðu þær nær nútímanum og einnig af þjóðum sem notuðust við önnur leturkerfi en skiptu yfir í kyrillískt letur á Sovéttímanum. Margar þessara þjóða hafa tekið upp annað leturkerfi eftir hrun Sovétríkjanna, t.d. latneskt letur eða ritmálið sem þær notuðu áður.

Kyrillíska stafrófið byggist á því gríska og er kennt við gríska trúboðann Kyrillos.

Kyrillíska stafrófið

Hér sést kyrillíska stafrófið eins og það kemur fram í rússnesku:

Kyrillískur
bókstafur
Umritun í ensku[1]Umritun í íslensku[1]Athugasemdir
А аaa
Б бbb
В вvv
Г гgg
Д дdd
Е еe, yee, je„je“ eftir sérhljóði eða fremst í orði[1]
Ё ёe, yojo
Ж жzhzh(raddað sje-hljóð)
З зzz(raddað s-hljóð)
И иií
Й йjj
К кkk(ófráblásið)
Л лll
М мmm
Н нnn
О оoo
П пpp(ófráblásið)
Р рrr
С сss
Т тtt(ófráblásið)
У уuú
Ф фff
Х хkhkh(líkt þýsku ch; dauft ach-hljóð, eða k í lykt)
Ц цtsts
Ч чchtsj
Ш шshsh
Щ щshchstsj(langt, mjúkt tje-hljóð)
Ъ ъ(sýnir harðan framburð samhljóðans á undan)
Ы ыyy(uppmælt i-hljóð)
Ь ь(sýnir mjúkan framburð samhljóðans á undan)
Э эee(samsvarar dönsku æ)
Ю юyu, iu
Я яya, iaja

Tilvísanir

  Þessi tungumálagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.