Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva

árleg söngvakeppni, haldin af meðlimum European Broadcasting Union (EBU).

Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (enska: Eurovision Song Contest; franska: Concours Eurovision de la chanson) er alþjóðleg söngvakeppni sem er haldin árlega af Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva. Hvert þátttökuland sendir inn frumsamið lag til að flytja í beinni útsendingu í keppninni og gefur lögum hinna landanna stig til að ákvarða sigurvegara.

Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
Einnig þekkt sem
  • Eurovision Song Contest
  • Eurovision
  • ESC
TegundSöngvakeppni
Búið til afSamband evrópskra sjónvarpsstöðva
Byggt áSanremo tónlistarhátíðin
FrummálEnska og franska
Fjöldi þátta
  • 67 keppnir
  • 101 beinar útsendingar
Framleiðsla
Lengd þáttar
  • ~2 klukkutímar (undanúrslit)
  • ~4 klukkutímar (úrslit)
Útsending
Sýnt24. maí 1956 (1956-05-24)í dag
Græna herbergið í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Rotterdam árið 2021.

Keppnin hefur verið haldin árlega síðan 1956 (fyrir utan 2020), sem gerir hana að langlífustu alþjóðlegu tónlistarkeppninni og eina af langlífustu sjónvarpsþáttum sem hafa verið gerðir. Keppnin er byggð á Sanremo tónlistarhátíðinni sem hefur verið haldin í Ítalíu síðan árið 1951. Sjónvarpsstöðvar sem eru virkir meðlimir í Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva og aðrar sem hafa fengið til þess boð hafa þátttökurétt í keppninni. Til og með 2023 hafa 52 lönd tekið þátt að minnsta kosti einu sinni.

Hver sjónvarpsstöð sendir eitt frumsamið lag sem er þrjár mínútur að lengd eða styttra sem er svo flutt í beinni útsendingu af söngvara eða allt að sex manna hópi 16 ára og eldri. Hvert land gefur 1-8, 10 og 12 stig til tíu uppáhalds laga sinna, byggt á skoðunum dómnefndar landsins og áhorfenda í landinu. Lagið sem fær flest stig sigrar keppnina.

Auk flutnings frá keppendum fara einnig fram opnunaratriði og ýmis skemmtiatriði. Þekktir flytjendur sem hefur komið fram sem skemmtiatriði eru Cirque du Soleil, Madonna, Justin Timberlake, Mika og Rita Ora. Keppnin hófst sem stakur kvöldviðburður, en hefur stækkað eftir því sem ný lönd hafa bæst við (þar á meðal lönd utan Evrópu, eins og Ísrael og Ástralía) sem leiddi til þess að undankeppni var bætt við árið 2004, og annarri undankeppni árið 2008.

Til og með 2023 hefur Þýskaland tekið oftast þátt, en þau hafa tekið þátt á hverju ári frá upphafi, nema árið 1996 þegar þau komst ekki upp úr forvalinu. Írland og Svíþjóð eiga metið yfir flesta sigra, með sjö sigra hvort í heildina.

Hefð er fyrir því að keppnin sé haldin í því landi sem sigraði árið á undan og gefur því landi tækifæri til að kynna landið sem ferðamannastað. Þúsundir áhorfenda mæta á hverju ári, ásamt blaðamönnum sem fjalla um alla hluta keppninnar, þar á meðal æfingar á staðnum, blaðamannafundi með keppendum, auk annarra tengdra viðburða og sýninga í borginni sem keppnin er haldin í. Samhliða almenna Eurovision lógóinu er einstakt þema venjulega skapað fyrir hvert ár.

Keppnin hefur verið sýnd í löndum í öllum heimsálfum og hefur verið aðgengileg í gegnum opinbera vefsíðu keppninnar síðan 2001. Árlega horfa hundruð milljóna áhorfenda á keppnina um allan heim. Að koma fram í keppninni hefur oft gefið flytjendum aukinn árangur í heimalandi sínu og í sumum tilfellum langvarandi árangri á heimsvísu. Nokkuð af söluhæsta tónlistarfólki heims hefur keppt í gegnum tíðina, þar á meðal ABBA, Celine Dion, Julio Iglesias, Cliff Richards og Olivia Newton-John.

Sigurvegarar

ÁrLandLagFlytjandi
1956Sviss„Refrain“Lys Assia
1957Holland„Net Als Toen“Corry Brokken
1958Frakkland„Dors mon amour“André Claveau
1959Holland„Een beetje“Teddy Scholten
1960Frakkland„Tom Pilibi“Jacqueline Boyer
1961Lúxemborg„Nous les amoureux“Jean-Claude Pascal
1962Frakkland„Un premier amour“Isabelle Aubret
1963Danmörk„Dansevise“Grethe & Jørgen Ingmann
1964Ítalía„Non ho l'età (per amarti)“Gigliola Cinquetti
1965Lúxemborg„Poupée de cire, poupée de son“France Gall
1966Austurríki„Merci Chérie“Udo Jürgens
1967Bretland„Puppet On a String“Sandie Shaw
1968Spánn„La, la, la ...“Massiel
1969[a]Spánn„Vivo cantando“Salomé
Frakkland„Un jour, un enfant“Frida Boccara
Holland„De troubadour“Lennie Kuhr
Bretland„Boom Bang a Bang“Lulu
1970Írland„All Kinds of Everything“Dana
1971Mónakó„Un banc, un arbre, une rue“Sévèrine
1972Lúxemborg„Après toi“Vicky Leandros
1973Lúxemborg„Tu te reconnaîtras“Anne-Marie David
1974Svíþjóð„Waterloo“ABBA
1975Holland„Ding-a-dong“Teach-In
1976Bretland„Save Your Kisses for Me“Brotherhood of Man
1977Frakkland„L'oiseau et l'enfant“Marie Myriam
1978Ísrael„A-ba'ni-bi“Izhar Cohen & Alphabeta
1979Ísrael„Hallelujah“Gali Atari & Milk and Honey
1980Írland„What's Another Year“Johnny Logan
1981Bretland„Making Your Mind Up“Bucks Fizz
1982Þýskaland„Ein bisschen Frieden“Nicole
1983Lúxemborg„Si la vie est cadeau“Corinne Hermes
1984Svíþjóð„Diggi-loo-diggi-ley“Herreys
1985Noregur„La det swinge“Bobbysocks
1986Belgía„J'aime la vie“Sandra Kim
1987Írland„Hold Me Now“Johnny Logan
1988Sviss„Ne partez pas sans moi“Céline Dion
1989Júgóslavía„Rock Me“Riva
1990Ítalía„Insieme: 1992“Toto Cutugno
1991Svíþjóð„Fångad av en stormvind“Carola
1992Írland„Why Me“Linda Martin
1993Írland„In Your Eyes“Niamh Kavanagh
1994Írland„Rock'n Roll Kids“Paul Harrington & Charlie McGettigan
1995Noregur„Nocturne“Secret Garden
1996Írland„The Voice“Eimear Quinn
1997Bretland„Love Shine a Light“Katrina & The Waves
1998Ísrael„Diva“Dana International
1999Svíþjóð„Take Me to Your Heaven“Charlotte Nilsson
2000Danmörk„Fly on the Wings of Love“Olsen bræðurnir
2001Eistland„Everybody“Tanel Padar, Dave Benton & 2XL
2002Lettland„I Wanna“Marie N
2003Tyrkland„Everyway That I Can“Sertab Erener
2004Úkraína„Wild Dances“Ruslana Lyzhichko
2005Grikkland„My Number One“Helena Paparizou
2006Finnland„Hard Rock Halleluja“Lordi
2007Serbía„Molitva“Marija Šerifović
2008Rússland„Believe“Dima Bilan
2009Noregur„Fairytale“Alexander Rybak
2010Þýskaland„Satellite“Lena Meyer-Landrut
2011Aserbaísjan„Running Scared“Ell & Nikki
2012Svíþjóð„Euphoria“Loreen
2013Danmörk„Only Teardrops“Emmelie de Forest
2014Austurríki„Rise Like a Phoenix“Conchita Wurst
2015Svíþjóð„Heroes“Måns Zelmerlöw
2016Úkraína„1944“Jamala
2017Portúgal„Amar Pelos Dois“Salvador Sobral
2018Ísrael„Toy“Netta
2019Holland„Arcade“Duncan Laurence
2020Keppninni var aflýst vegna COVID-19 faraldursins.
2021Ítalía„Zitti e buoni“Måneskin
2022Úkraína„Stefania“ (Стефанія)Kalush Orchestra
2023SvíþjóðTattooLoreen

Framlag Íslands til keppninnar

Ísland tók fyrst þátt árið 1986 og taflan hér að neðan sýnir nafn lags og flytjanda og það sæti sem framlagið hlaut í lokakeppninni.

Merkingar
1Fyrsta sæti
2Annað sæti
3Þriðja sæti
Síðasta sæti
XFramlag valið en ekki keppt
ÁrFlytjandiLag
Lag (L) og texti (T)
TungumálÚrslitU.úrslit
SætiStigSætiStig
1986ICYGleðibankinn
L/T: Magnús Eiríksson
íslenska16 / 2019Engin undankeppni
1987Halla MargrétHægt og hljótt
L: Valgeir Guðjónsson
íslenska16 / 2228
1988BeathovenÞú og þeir (Sókrates)
L/T: Sverrir Stormsker
íslenska16 / 2120
1989Daníel ÁgústÞað sem enginn sér
L/T: Valgeir Guðjónsson
íslenska22 / 220
1990StjórninEitt lag enn
L: Hörður G. Ólafsson; T: Aðalsteinn Ásberg Ásgeirsson
íslenska4 / 22124
1991Stefán & EyfiDraumur um Nínu
L/T: Eyjólfur Kristjánsson
íslenska15 / 2226
1992Heart 2 HeartNei eða já
L: Friðrik Karlsson, Grétar Örvarsson; T: Stefán Hilmarsson
íslenska7 / 2380
1993IngaÞá veistu svarið
L: Jon Kjell Seljeseth; T: Friðrik Sturluson
íslenska13 / 2542Kvalifikacija za Millstreet
1994SiggaNætur
L: Friðrik Karlsson; T: Stefán Hilmarsson
íslenska12 / 2549Engin undankeppni
1995Björgvin HalldórssonNúna
L: Björgvin Halldórsson, Ed Welch; T: Jón Örn Marinóson
íslenska15 / 2331
1996Anna MjöllSjúbídú
L/T: Anna Mjöll Ólafsdóttir, Ólafur Gaukur Þórhallsson
íslenska13 / 235110 / 2949
1997Páll ÓskarMinn hinsti dans
L: Páll Óskar, Trausti Haraldsson; T: Páll Óskar
íslenska20 / 2551Engin undankeppni
1998Tók ekki þátt
1999Selma BjörnsdóttirAll Out of Luck
L: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Sveinbjörn I. Baldvinsson; T: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
enska2 / 23146Engin undankeppni
2000Einar Ágúst & TelmaTell Me! („Hvað sem er“)
L: Örlygur Smári; T: Örlygur Smári, Sigurður Örn Jónsson
enska12 / 243
2001Two TrickyAngel („Birta“)
L: Einar Bárðarson, Magnús Þór Sigmundsson; T: Einar Bárðarson
enska4 / 233
2002Tók ekki þátt
2003Birgitta HaukdalOpen Your Heart („Segðu mér allt“)
L: Birgitta Haukdal; T: Hallgrímur Óskarsson
enska8 / 2681Engin undankeppni
2004JónsiHeaven („Himinn“)
L: Sveinn Rúnar Sigurðsson; T: Magnús Þór Sigurðsson
enska19 / 2416
2005Selma BjörnsdóttirIf I Had Your Love
L:Þ. Þorvaldsson, Vignir Vigfússon; T: Selma Björnsdóttir, Linda Thompson
enskaKomst ekki áfram16 / 2452
2006Silvía NóttCongratulations („Til hamingju Ísland“)
L: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
enska13 / 2462
2007Eiríkur HaukssonValentine Lost („Ég les í lófa þínum“)
L: Sveinn Rúnar Sigurðsson; T: Peter Fenner
enska13 / 2877
2008EurobandiðThis Is My Life („Fullkomið líf“)
L: Örlygur Smári; T: Páll Óskar, Peter Fenner
enska14 / 25648 / 1968
2009Jóhanna GuðrúnIs It True?
L/T: Óskar Páll Sveinsson, Chris Neil, Tinatin
enska2 / 252181 / 18174
2010Hera BjörkJe ne sais quoi
L/T: Örlygur Smári, Hera Björk
enska, franska19 / 25413 / 17123
2011Vinir SjonnaComing Home („Aftur heim“)
L: Sigurjón Brink; T: Þórunn Erna Clausen
enska20 / 25614 / 19100
2012Greta Salóme & JónsiNever Forget („Mundu eftir mér“)
L/T: Greta Salóme
enska20 / 26468 / 1875
2013Eyþór IngiÉg á líf
L/T: Örlygur Smári, Pétur Örn Guðmundsson
íslenska17 / 26476 / 1772
2014PollapönkNo Prejudice („Enga fordóma“)
L: Heiðar Örn Kristjánsson; T: Heiðar Örn Kristjánsson, Haraldur Freyr Gíslason, John Grant
enska15 / 26588 / 1661
2015María ÓlafsdóttirUnbroken („Lítil skref“)
L: Ásgeir Orri Ásgeirsson, Pálmi Ragnar Ásgeirsson, Sæþór Kristjánsson; T: Ásgeir Orri Ásgeirsson, Pálmi Ragnar Ásgeirsson, Sæþór Kristjánsson, María Ólafsdóttir
enskaKomst ekki áfram15 / 1714
2016Greta SalómeHear Them Calling („Raddirnar“)
L/T: Greta Salóme
enska14 / 1851
2017SvalaPaper („Ég veit það“)
L: Svala Björgvinsdóttir, Einar Egilsson, Lester Mendez, Lily Elise; T: Svala Björgvinsdóttir, Lily Elise
enska15 / 1860
2018Ari ÓlafssonOur Choice („Heim“)
L/T: Þórunn Erna Clausen
enska19 / 1915
2019HatariHatrið mun sigra
L/T: Hatari
íslenska10 / 262323 / 17221
2020Daði og GagnamagniðThink About Things („Gagnamagnið“)
L/T: Daði Freyr
enskaKeppni aflýst[b]
2021Daði og Gagnamagnið10 Years
L/T: Daði Freyr
enska4 / 263782 / 17288
2022SysturMeð hækkandi sól
L/T: Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir
íslenska23 / 252010 / 17103
2023DiljáPower („Lifandi inní mér“)
L/T: Diljá, Pálmi Ragnar Ásgeirsson
enskaKomst ekki áfram11 / 1644
2024Hera BjörkScared of Heights („Við förum hærra“)
L/T: Ásdís María Viðarsdóttir, Michael Burek, Jaro Omar, Ferras Alqaisi
Væntanlegt

Tölfræði atkvæðagreiðslu

Tölfræði atkvæðagreiðslu í Eurovision frá 1986 til 2021.

Lönd sem Ísland hefur gefið flest stig:

SætiLandStig
1 Svíþjóð230
2 Danmörk198
3 Noregur152
4 Frakkland116
5 Finnland98

Lönd sem hafa gefið Íslandi flest stig:

SætiLandStig
1 Svíþjóð137
2 Noregur130
3 Danmörk128
4 Bretland100
5 Finnland84

Þulir RÚV

ÁrÞulir
1986Þorgeir Ástvaldsson
1987Kolbrún Halldórsdóttir
1988Hermann Gunnarsson
1989-1991Arthúr Björgvin Bollason
1992Árni Snævarr
1993-1997Jakob Frímann Magnússon
1998Páll Óskar Hjálmtýsson
1999-2001Gísli Marteinn Baldursson
2002Logi Bergmann Eiðsson
2003-2005Gísli Marteinn Baldursson
2006-2010Sigmar Guðmundsson
2011-2012Hrafnhildur Halldórsdóttir
2013-2015Felix Bergsson
2016-Gísli Marteinn Baldursson

Stigakynnar RÚV

ÁrStigakynnar
1986-1988Guðrún Skúladóttir
1989Erla Björk Skúladóttir
1990Árni Snævarr
1991Sigríður Pétursdóttir
1992-1993Guðrún Skúladóttir
1994Sigríður Arnardóttir
1995Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir
1996-1997Svanhildur Konráðsdóttir
1998Ísland tók ekki þátt
1999Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir
2000Ragnheiður Elín Clausen
2001Eva María Jónsdóttir
2002Ísland tók ekki þátt
2003Eva María Jónsdóttir
2004Sigrún Ósk Kristjánsdóttir
2005-2007Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
2008Brynja Þorgeirsdóttir
2009Þóra Tómasdóttir
2010Jóhanna Guðrún Jónsdóttir
2011Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
2012Matthías Matthíasson
2013María Sigrún Hilmarsdóttir
2014Benedikt Valsson
2015Sigríður Halldórsdóttir
2016Unnsteinn Manuel Stefánsson
2017Björgvin Halldórsson
2018Edda Sif Pálsdóttir
2019Jóhannes Haukur Jóhannesson
2021Hannes Óli Ágústsson
2022Árný Fjóla Ásmundsdóttir
2023Einar Stefánsson

Forsöngur, höfundur/ar og bakraddir

ÁrLagLagahöfundurTextahöfundurForsöngurBakraddir
1986GleðibankinnMagnús EiríkssonMagnús EiríkssonICY (Eiríkur Hauksson, Helga Möller og Pálmi Gunnarsson)
1987Hægt og hljóttValgeir GuðjónssonValgeir GuðjónssonHalla Margrét Árnadóttir
1988Þú og þeir (Sókrates)Sverrir StormskerSverrir StormskerBeathoven (Stefán Hilmarsson)Edda Borg Ólafsdóttir og Sverrir Stormsker
1989Það sem enginn sérValgeir GuðjónssonValgeir GuðjónssonDaníel Ágúst HaraldssonEva Ásrún Albertsdóttir og Eva Leila Banine
1990Eitt lag ennHörður G. ÓlafssonAðalsteinn Ásberg SigurðssonStjórnin (Grétar Örvarsson og Sigríður Beinteinsdóttir)Stjórnin
1991Draumur um NínuEyjólfur KristjánssonEyjólfur KristjánssonEyjólfur Kristjánsson og Stefán HilmarssonErna Þórarinsdóttir og Eva Ásrún Albertsdóttir
1992Nei eða jáFriðrik Karlsson og Grétar ÖrvarssonStefán HilmarssonHeart 2 Heart (Sigríður Beinteinsdóttir og Sigrún Eva Ármannsdóttir)Friðrik Karlsson, Grétar Örvarsson, Halldór Hauksson og Jóhann Ásmundsson
1993Þá veistu svariðJon Kjell SeljesethFriðrik KarlssonIngibjörg StefánsdóttirErna Þórarinsdóttir, Eva Ásrún Albertsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir
1994NæturFriðrik KarlssonStefán HilmarssonSigríður BeinteinsdóttirEdda Borg Ólafsdóttir, Erna Þórarinsdóttir, Eva Ásrún Albertsdóttir, Eyjólfur Kristjánsson og Ingi Gunnar Jóhannsson
1995NúnaBjörgvin Halldórsson og Ed WelchJón Örn MarínóssonBjörgvin HalldórssonBerglind Björk Jónasdóttir, Erna Þórarinsdóttir, Eyjólfur Kristjánsson, Guðrún Gunnarsdóttir og Stefán Hilmarsson
1996SjúbídúAnna Mjöll og Ólafur GaukurAnna Mjöll og Ólafur GaukurAnna Mjöll Ólafsdóttir
1997Minn hinsti dansPáll Óskar Hjálmtýsson og Trausti HaraldssonPáll Óskar HjálmtýssonPáll Óskar Hjálmtýsson
1998Ísland tók ekki þátt
1999All Out of LuckSelma Björnsdóttir, Sveinbjörn I. Baldvinsson og Þorvaldur Bjarni ÞorvaldssonÞorvaldur Bjarni ÞorvaldssonSelma BjörnsdóttirJóhanna Vigdís Arnardóttir, Rúna G. Stefánsdóttir og Stefán Hilmarsson
2000Tell Me!Örlygur SmáriÖrlygur Smári og Sigurður Örn JónssonEinar Ágúst Víðisson og Telma ÁgústsdóttirEyjólfur Kristjánsson, Guðbjörg Magnúsdóttir, Hulda Gestsdóttir og Pétur Örn Guðmundsson
2001AngelEinar Bárðarson og Magnús Þór SigmundssonEinar BárðarsonTwo Tricky (Gunnar Ólafson og Kristján Gíslason)Margrét Eir Hjartardóttir og Regína Ósk Óskarsdóttir
2002Ísland tók ekki þátt
2003Open Your HeartHallgrímur Óskarsson og Birgitta HaukdalHallgrímur ÓskarssonBirgitta HaukdalMargrét Eir Hjartardóttir og Regína Ósk Óskarsdóttir
2004HeavenSveinn Rúnar SigurðssonMagnús Þór SigmundssonJón Jósep Snæbjörnsson
2005If I Had Your LoveVignir Snær Vigfússon og Þorvaldur Bjarni ÞorvaldssonSelma Björnsdóttir og Linda ThompsonSelma BjörnsdóttirRegína Ósk Óskarsdóttir
2006CongratulationÞorvaldur Bjarni ÞorvaldssonSilvía NóttSilvía NóttGísli Magna Sigríðarson, Pétur Örn Guðmundsson og Sigríður Beinteinsdóttir
2007Valentine LostSveinn Rúnar SigurðssonPeter FennerEiríkur Hauksson
2008This Is My LifeÖrlygur SmáriPáll Óskar Hjálmtýsson og Peter FennerEurobandið (Friðrik Ómar Hjörleifsson og Regína Ósk Óskarsdóttir)Grétar Örvarsson, Guðrún Gunnarsdóttir, Hera Björk Þórhallsdóttir og Pétur Örn Guðmundsson
2009Is It True?Óskar Páll Sveinsson, Chris Neil og TinatinÓskar Páll Sveinsson, Chris Neil og TinatinJóhanna Guðrún JónsdóttirErna Hrönn Ólafsdóttir, Friðrik Ómar Hjörleifsson og Hera Björk Þórhallsdóttir
2010Je ne sais quoiÖrlygur Smári og Hera Björk ÞórhallsdóttirÖrlygur Smári og Hera Björk ÞórhallsdóttirHera Björk ÞórhallsdóttirErna Hrönn Ólafsdóttir, Heiða Ólafsdóttir, Kristján Gíslason, Kristjana Stefánsdóttir og Pétur Örn Guðmundsson
2011Coming HomeSigurjón BrinkÞórunn Erna ClausenSjonni's Friends (Benedikt Brynleifsson, Gunnar Ólafsson, Hreimur Örn Heimisson, Matthías Matthíasson, Pálmi Sigurhjartarson og Vignir Snær Vigfússon)
2012Never ForgetGreta Salóme StefánsdóttirGreta Salóme StefánsdóttirGreta Salóme Stefánsdóttir og Jón Jósep SnæbjörnssonAlma Rut Kristjánsdóttir, Guðrún Árný Karlsdóttir, Gísli Magna Sigríðarson og Pétur Örn Guðmundsson
2013Ég á lífÖrlygur Smári og Pétur Örn GuðmundssonÖrlygur Smári og Pétur Örn GuðmundssonEyþór Ingi GunnlaugssonBergþór Smári Jakobsson, Einar Þór Jóhannsson, Hannes Heimir Friðbjarnarson og Kristján Gíslason
2014No PrejudiceHeiðar Örn KristjánssonHaraldur F. GíslasonPollapönkÓttarr Proppé og Snæbjörn Ragnarsson
2015UnbrokenStopWaitGoStopWaitGoMaría ÓlafsdóttirAlma Rut Kristjánsdóttir, Ásgeir Orri Ásgeirsson, Friðrik Dór Jónsson, Hera Björk Þórhallsdóttir og Íris Hólm
2016Hear Them CallingGreta Salóme StefánsdóttirGreta Salóme StefánsdóttirGreta Salóme StefánsdóttirGísli Magna Sigríðarson, Hafsteinn Þórólfsson, Kristján Gíslason, Lilja Björk Runólfsdóttir og Pétur Örn Guðmundsson
2017PaperEinar Egilsson, Lester Mendez, Lily Elise og Svala BjörgvinsdóttirEinar Egilsson, Lester Mendez, Lily Elise og Svala BjörgvinsdóttirSvala BjörgvinsdóttirAnna Sigríður Snorradóttir, Fanny Kristín Tryggvadóttir, Hrönn Svansdóttir, Íris Lind Verudóttir og Óskar Einarsson
2018Our ChoiceÞórunn Erna ClausenÞórunn Erna ClausenAri ÓlafssonArna Rún Ómarsdóttir, Erla Stefánsdóttir, Gunnar Leó Pálsson, Þórunn Erna Clausen og Vignir Snær Vigfússon
2019Hatrið mun sigraHatariHatariHatari (Matthías Tryggvi Haraldsson, Klemens Hannigan og Einar Stefánsson)
2020Think About ThingsDaði Freyr PéturssonDaði Freyr PéturssonDaði og Gagnamagnið (Daði Freyr Pétursson o.fl.)Sigrún Birna Pétursdóttir og Hulda Kristín Kolbrúnardóttir
202110 YearsDaði Freyr PéturssonDaði Freyr PéturssonDaði og Gagnamagnið (Daði Freyr Pétursson o.fl.)Sigrún Birna Pétursdóttir og Hulda Kristín Kolbrúnardóttir
2022Með hækkandi sólLovísa Elísabet SigrúnardóttirLovísa Elísabet SigrúnardóttirSystur (Elín Eyþórsdóttir, Elísabet Eyþórsdóttir og Sigríður Eyþórsdóttir)
2023PowerDiljá Pétursdóttir og Pálmi Ragnar ÁsgeirssonDiljá Pétursdóttir og Pálmi Ragnar ÁsgeirssonDiljáKatla Þórudóttir Njálsdóttir og Kolbrún María Másdóttir

Athugasemdir

Tenglar

Neðanmálsgreinar

  • Keppnin er einnig stundum kölluð Eurovision, ESC eða Evróvision en sá titill er tvíræður. Einnig hefur keppnin verið nefnd Evrópusöngvakeppnin.[1]
  • RÚV og Íslensk málstöð hefur mælt með að menn segi Evrósjón (eða - en síður - Evróvisjón). Meginrökin eru þau að Evrópa heitir ekki Júrópa á íslensku, heldur Evrópa með vaffi.
  • Árið 1969 voru fjögur lönd sigurvegarar keppninnar, því að þá voru engar reglur til um hvað gera skyldi ef jafntefli kæmi upp.
  • Írland og Svíþjóð hafa unnið keppnina oftast eða 7 sinnum.
  • Árið 1993 var haldin undankeppni þar sem að nokkur lönd kepptu sem voru úr Júgóslavíu og eitt land úr Sovétríkjunum og nokkur önnur lönd sem voru sjálfstæð á tíma hinna landana.Löndin sem unnu og komust til Millstreet voru Króatía, Slóvenía og Bosnía og Hersegóvína. Keppnin var haldin í Slóveníu 3. apríl 1993. Þetta er fyrsta undankeppni Eurovision í sögunni þegar að lönd keppa saman.
  • Árið 1973 sendi Noregur lag sem var sungið á 12 tungumálum; ensku, frönsku, spænsku, ítölsku, hollensku, írsku, þýsku, hebresku, bosnísku (Júgóslavía), finnsku, sænsku og norsku. Lagið var með ensku nafni, „It's Just a Game“. Noregur var nr. 5 í röðinni en Ísrael var nr. 17. Ísrael var að gera frumþáttöku, þannig að Noregur var hálfgerðlega fyrsta landið til að syngja á hebresku í Eurovision.
  • Árið 1977 var Túnis í sæti nr. 4 í röðinni til að syngja í London en sjónvarpsstöðin dró þátttökuna til baka. Sagt er að þau vildu ekki keppa við Ísrael. Sé það rétt þá gerðist það árið 2005 að Líbanon ætlaði að taka þátt en hætti við af sömu ástæðum og það er staðfest.
  • COVID-19 faraldurinn gerði það að verkum að keppninni var aflýst árið 2020.

Athugasemdir

Tilvísanir

Tenglar