Malagasíska

Malagasíska er annað tveggja opinberra tungumála Madagaskar, hitt verandi franska. Hún er móðurmál flestra Madagaskarbúa.

Í Malagasísku er mikilvægur munur á hversdagsmáli og viðhafnarmáli („kabaly“). Viðhafnarmál er óeiginlegt og óbeint.[1] Orðaröð í malagasísku er VOS (sagnorð - andlag - frumlag).[2]

Íbúarnir Madagaskar fluttu til Madagaskar frá Indónesíu, og tungumálið kom þaðan með þeim. Þannig er malagasíska skipuð í ætt með ástróneskum tungumálum.[3]

Malagasíska notast við Latneska stafrófið.[4]

Malagasísk safnorð hafa sérstaka „tilvísunarmynd,“ sem er aðgreind frá germynd og þolmynd.[5]

Nokkur orð og setningar úr malagasísku

[6]

MalagasískaÍslenska
Manao ahoana.Góðan dag.
Noana aho.Ég er svangur.
Mangetaheta aho.Ég er þyrstur.
Vizako aho.Ég er þreyttur.
Misaotra.Takk.
Veloma.Bless.

Tilvísanir