Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
9. september er 252. dagur ársins (253. á hlaupári ) samkvæmt gregoríska tímatalinu . 113 dagar eru eftir af árinu.
337 - Konstantínus 2. , Konstantíus 2. og Konstans 1. tóku við keisaratign eftir lát föður síns, Konstantínusar mikla, og Rómaveldi var skipt í þrjá hluta.1000 - Svoldarorrusta átti sér stað í Eystrasalti þar sem Ólafur Tryggvason lést.1087 - Vilhjálmur rauður varð konungur Englands .1208 - Víðinesbardagi var háður í Hjaltadal , en þó gæti hann hafa verið daginn áður. Höfðingjar sóttu með mikinn her að Guðmundi góða Arasyni , biskupi á Hólum. Í þessum bardaga féll Kolbeinn Tumason .1398 - Janus varð konungur Kýpur .1513 - Orrustan á Flodden Field á Norður-Englandi . Þar sigraði Hinrik 8. Englandskonungur her Skota sem gert höfðu innrás í England . Jakob 4. Skotakonungur féll.1850 - Kalifornía varð 31. ríki Bandaríkjanna.1877 - Þingeyrakirkja , sem Ásgeir Einarsson alþingismaður lét reisa, var vígð.1905 - Sogsbrú, 38 metra löng og 2,5 metra breið hengibrú , var vígð. Um 1000 manns voru viðstödd vígsluna.1913 - Íþróttafélagið Þór var stofnað í Vestmannaeyjum .1914 - Orrustunni við Marne lauk.1926 - Snjókoma var og vöknuðu Reykvíkingar við alhvíta jörð að morgni. Talið er að aldrei hafi gert alhvítt fyrr að hausti í Reykjavík.1942 - Breskum flugmanni tókst á síðustu stundu að beina flugvél sinni frá húsi í Elliðaárdalnum er hann brotlenti þar í kartöflugarði.1947 - Haukur Clausen varð Norðurlandameistari í 200 metra hlaupi á nýju Íslandsmeti.1971 - Attica-óeirðirnar hófust í fangelsinu í Attica í New York-fylki .1975 - Geimfarinu Viking 2 var skotið á loft.1990 - Fyrsta borgarastyrjöldin í Líberíu: Uppreisnarleiðtoginn Prince Johnson náði forseta landsins Samuel Doe og tók hann af lífi.1990 - Borgarastyrjöldin á Srí Lanka : Stjórnarhermenn myrtu 184 borgara í Batticaloa.1991 - Tadsíkistan lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum .1993 - Ísrael viðurkenndi PLO sem fulltrúa palestínumanna.1996 - Tölvuleikurinn Crash Bandicoot kom fyrst út.1998 - Háhyrningurinn Keikó kom til Vestmannaeyja .1999 - Íbúðasprengjurnar í Rússlandi: Öflug sprengja sprakk í fjölbýlishúsi í Moskvu með þeim afleiðingum að 94 létust.2001 - Leiðtogi afganska Norðurbandalagsins, Ahmad Shah Massoud, var myrtur af sjálfsmorðssprengjumanni.2001 - 68 dóu úr metanóleitrun í Pärnu í Eistlandi.2002 - Leikvangurinn Gillette Stadium í Massachusetts var opnaður.2004 - 9 létust þegar bílsprengja sprakk utan við ástralska sendiráðið í Jakarta .2006 - Tilkynnt var að eldpiparafbrigðið bhut jolokia (draugapipar eða kóbrapipar) hefði mælst með yfir 1.000.000 stig á Scoville-kvarða og væri því það sterkasta í heimi.2011 - Bandaríska spennumyndin Contagion var frumsýnd.2012 - Nær 60 létust og 300 slösuðust í röð sprengjuárása í Írak .2013 - Borgaralegu flokkarnir í Noregi, undir forystu Ernu Solberg , fengu mesta meirihluta sem nokkurt kosningabandalag hafði fengið frá stríðslokum.2015 - Elísabet 2. Bretlandsdrottning náði þeim áfanga að verða sá þjóðhöfðingi Bretlands sem lengst hefur setið.2016 - Norður-Kórea stóð fyrir sinni fimmtu og stærstu tilraunasprengingu með kjarnorkusprengju.
384 - Honorius , Rómarkeisari (d. 423 ).1349 - Albert 3., hertogi Austurríkis (d. 1395 ).1585 - Richelieu kardináli , franskur stjórnmálamaður (d. 1642 ).1708 - Poul Egede , danskur trúboði (d. 1789 ).1754 - Hans Christoph Diederich Victor von Levetzow , stiftamtmaður á Íslandi (d. 1829 ).1822 - Napoléon Joseph Charles Paul Bonaparte , franskur stjórnmálamaður (d. 1891 ).1828 - Lev Tolstoj , rússneskur rithöfundur (d. 1910 ).1866 - Guðmundur Hannesson , íslenskur læknir (d. 1946 ).1867 - Christian Thams , norskur arkitekt (d. 1948 ).1896 - Jochum M. Eggertsson , íslenskt skáld og þýðandi (d. 1966 ).1907 - Blagoje Marjanović , júgóslavneskur knattspyrnumaður (d. 1984 ).1910 - Dósóþeus Tímóteusson , íslenskt skáld (d. 2003 ).1925 - Valdimar Indriðason , íslenskur stjórnmálamaður (d. 1995 ).1939 - Reuven Rivlin , ísraelskur stjórnmálamaður.1941 - Dennis Ritchie , bandarískur tölvunarfræðingur (d. 2011 ).1949 - Susilo Bambang Yudhoyono, forseti Indónesíu.1951 - Tom Wopat , bandarískur leikari.1960 - Hugh Grant , breskur leikari.1960 - Robert Tchenguiz , íranskur athafnamaður.1966 - Adam Sandler , bandarískur leikari.1968 - Julia Sawalha, bresk leikkona.1975 - Michael Bublé , kanadískur söngvari.1984 - Andrej Silnov , rússneskur hástökkvari.1985 - Luka Modrić , króatískur knattspyrnumaður.1000 - Ólafur Tryggvason , Noregskonungur (f. 963 ).1087 - Vilhjálmur bastarður , Englandskonungur.1208 - Kolbeinn Tumason , íslenskur goðorðsmaður (f. um 1171 ).1488 - Frans 2., hertogi af Bretagne (féll af hestbaki) (f. 1433 ).1513 - Jakob 4. Skotakonungur (f. 1473 ).1514 - Anna af Bretagne , drottning Frakklands (f. 1477 ).1569 - Pieter Brueghel eldri , flæmskur listmálari (f. um 1525 ).1607 - Pomponne de Bellièvre, franskur embættismaður (f. 1529 ).1750 - Henrik Ochsen , danskur embættismaður (f. 1660 ).1810 - Halldór Jakobsson , sýslumaður (f. 1734 ).1901 - Henri de Toulouse-Lautrec, franskur listmálari (f. 1864 ).1927 - Jón S. Bergmann , íslenskt skáld (f. 1874 ).1952 - Jónas Stefánsson frá Kaldbak , vesturíslenskt skáld (f. 1882 ).1972 - Gunnlaugur Scheving , íslenskur myndlistarmaður (f. 1904 ).1976 - Mao Tsetung , leiðtogi Kína (f. 1893 ).1983 - Luis Monti , argentínsk/ítalskur knattspyrnumaður (f. 1901 ).2007 - Ásgeir Elíasson , íslenskur íþróttamaður og knattspyrnuþjálfari (f. 1949 ).2010 - Bent Larsen, danskur skákmeistari (f. 1935 ).
Mánuðir og dagar ársins
Janúar Febrúar Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október Nóvember Desember Tengt efni