Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
30. maí er 150. dagur ársins (151. á hlaupári ) samkvæmt gregoríska tímatalinu . 215 dagar eru eftir af árinu.
1431 - Jóhanna af Örk var brennd á báli í Rúðuborg í Frakklandi.1434 - Bæheimsku styrjaldirnar : Orrustan við Lipan átti sér stað.1536 - Hinrik 8. Englandskonungur gekk að eiga Jane Seymour, 11 dögum eftir aftöku Anne Boleyn .1539 - Hernando de Soto lenti í Tampa Bay í Flórída með 600 manna lið.1574 - Hinrik af Anjou, nýlega kjörinn konungur Póllands , varð Hinrik 3. Frakkakonungur þegar Karl 9. bróðir hans lést. Móðir þeirra, Katrín af Medici , stýrði ríkinu þar til Hinrik sneri aftur frá Póllandi.1581 - Mikill jarðskjálfti reið yfir á Suðurlandi . Bæir á Rangárvöllum og í Hvolhreppi hrundu og mannskaði varð.1635 - Ferdinand 2. keisari og þýsku mótmælendafurstarnir gerðu með sér friðarsamkomulag í Prag sem fól í sér að Endurheimtartilskipunin frá 1629 var afturkölluð.1646 - Áttatíu ára stríðið : Spánn og Holland gerðu með sér tímabundið vopnahlé.1662 - Karl 2. Englandskonungur giftist Katrínu af Braganza.1768 - Eggert Ólafsson skáld og varalögmaður fórst á Breiðafirði ásamt konu sinni og sex öðrum mönnum. Voru þau að koma frá vetursetu í Sauðlauksdal.1814 - Fyrri Parísarfriðurinn var undirritaður í París.1829 - Jónas Hallgrímsson flutti prófræðu sína í Bessastaðakirkju.1836 - Paul Gaimard kom með leiðangur sinn til Reykjavíkur.1851 - Jón Sigurðsson var kosinn forseti Kaupmannahafnardeildar Hins íslenska bókmenntafélags og gegndi þeirri stöðu til dauðadags.1889 - Hallgrímur Sveinsson var vígður biskup .1894 - Eldey var klifin í fyrsta skipti. Var þar að verki Eldeyjar-Hjalti (Hjalti Jónsson) og tveir aðrir Vestmannaeyingar. Var þetta talin hættuför hin mesta.1917 - Bandalag kvenna í Reykjavík var stofnað.1919 - Fyrsti íslenski ríkisráðsfundurinn var haldinn í Fredensborgarhöll í Danmörku. Fyrsti slíkur fundur hérlendis var haldinn tveimur árum síðar.1940 - Róstur urðu eftir knattspyrnuleik milli Fram og Víkings í Reykjavík. Þrjátíu manns voru handteknir.1962 - HM í knattspyrnu hófst í Síle.1967 - Suðausturhluti Nígeríu lýsti yfir sjálfstæði undir nafninu Biafra . Í ágúst gerðu nígerískar hersveitir innrás í Biafra og þar með hófst Biafrastyrjöldin, sem stóð til 1970.1971 - Marineráætlunin: Bandaríkin sendu könnunarfarið Mariner 9 á loft.1977 - Kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Blóðrautt sólarlag , var frumsýnd og urðu um hana deilur.1979 - Brúðubíllinn hóf starfsemi sína í Reykjavík.1981 - Forseti Bangladess, Ziaur Rahman, var myrtur í Chittagong.1982 - Spánn varð sextánda aðildarland NATO og fyrsta ríkið til að gerast meðlimur frá því Vestur-Þýskaland gekk í bandalagið árið 1955.1982 - Hussain Muhammad Ershad rændi völdum í Bangladess.1984 - Alþingismönnum var fjölgað úr 60 í 63 og kosningaaldur lækkaður úr 20 árum í 18 ár.1992 - Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti efnahagsþvinganir gegn Júgóslavíu vegna Bosníustríðsins.1996 - Hoover-stofnunin lét frá sér bjartsýna skýrslu þar sem ályktað var að hnattræn hlýnun myndi draga úr dánartíðni í Norður-Ameríku.1998 - Allt að 5.000 manns fórust þegar jarðskjálfti reið yfir Afganistan .1998 - Pakistan framkvæmdi Chagai-II-kjarnorkutilraunina.2005 - Knattspyrnuleikvangurinn Allianz Arena í München var opnaður.2008 - Fulltrúar 111 landa undirrituðu alþjóðasamning um bann við klasasprengjum.2016 - Fyrrum forseti Tjad, Hissène Habré, var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir glæpi gegn mannkyni.2020 – Fyrsta mannaða flug geimfarsins SpaceX Dragon 2 fór fram á Canaveral-höfða.1201 - Teóbeld 4., greifi af Champagne (d. 1253 ).1220 - Alexander Nevskíj , rússnesk þjóðhetja og dýrlingur (d. 1263 ).1664 - Giulio Alberoni, ítalskur kardináli og stjórnmálamaður (d. 1754 ).1672 - Pétur mikli , keisari Rússlands (d. 1725 ).1757 - Henry Addington , enskur stjórnmálamaður (d. 1844 ).1814 - Mikhail Bakunin , rússneskur byltingarsinni (d. 1876 ).1860 - Ari Johnsen , íslenskur óperusöngvari (d. 1927 ).1909 - Benny Goodman, bandarískur hljómsveitarstjóri (d. 1986 ).1926 - Christine Jorgensen , bandarísk trans kona (d. 1989 ).1944 - Sigurður Sigurðarson , vígslubiskup í Skálholti (d. 2010 ).1944 - Katsuyoshi Kuwahara , japanskur knattspyrnumaður.1947 - David Sedley , breskur fornfræðingur.1955 - Richard Janko , bandarískur fornfræðingur.1955 - David Devaney , íslensk-bandarískur körfuknattleiksmaður.1956 - Katerína Sakellaropúlú , forseti Grikklands.1963 - Nasrin Sotoudeh , íranskur lögfræðingur.1964 - Tom Morello , bandarískur gítarleikari.1964 - Mark Sheppard , enskur leikari.1975 - Stefán Álfsson, íslenskur athafnamaður.1979 - Pavel E. Smid , íslenskt tónskáld.1980 - Steven Gerrard , breskur knattspyrnumaður.1984 - Málfríður Erna Sigurðardóttir , íslensk knattspyrnukona.1990 - Austin Magnús Bracey , íslenskur körfuknattleiksmaður.1431 - Jóhanna af Örk (Jeanne d'Arc, mærin frá Orleans).1574 - Karl 9. Frakkakonungur (f. 1550 ).1593 - Christopher Marlowe , enskt skáld (f. 1564 ).1606 - Ardjan Dev, síkagúrú (f. 1563 ).1640 - Peter Paul Rubens , flæmskur listmálari (f. 1577 ).1695 - Pierre Mignard , franskur listmálari (f. 1612 ).1744 - Alexander Pope , bresk skáld (f. 1688 ).1768 - Eggert Ólafsson , íslenskt skáld og varalögmaður (f. 1726 ).1778 - Voltaire , franskur heimspekingur (f. 1694 ).1912 - Wilbur Wright , frumkvöðull í flugi (f. 1867 ).1960 - Boris Pasternak , rússneskur rithöfundur (f. 1890 ).1961 - Rafael Trujillo , dóminískur einræðisherra (f. 1891 ).1970 - Heinrich Brüning , þýskur stjórnmálamaður (f. 1885 ).2011 - Rosalyn Yalow , bandarískur Nóbelsverðlaunahafi í lífeðlis- og læknisfræði (f. 1921 ).2012 - Andrew Huxley , breskur líffræðingur og nóbelsverðlaunahafi (f. 1917 ).
Mánuðir og dagar ársins
Janúar Febrúar Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október Nóvember Desember Tengt efni